Tekjulág heimili eiga að geta sótt um frístundastyrki um miðjan mánuðinn

Sér­stakur stuðn­ingur við íþrótta- og tóm­stunda­iðkun barna af tekju­lágum heim­ilum er loks að kom­ast til fram­kvæmda, en aðgerðin var kynnt í apríl. Styrkur getur numið 45 þús­und krónum á hvert barn, sam­kvæmt reglum sem sveit­ar­fé­lög hafa birt.

Sérstakir styrkir vegna íþrótta- og frístundastarfs barna af tekjulágum heimilum líta brátt dagsins ljós.
Sér­stakir styrkir vegna íþrótta- og frí­stunda­starfs barna af tekju­lágum heim­ilum líta brátt dags­ins ljós. Mynd: Pexels

Opnað verður fyrir umsóknir um stuðn­ing til íþrótta- og frí­stunda­starfs barna af tekju­lágum heim­ilum þann 15. nóv­em­ber. Styrkirnir verða greiddir út af sveit­ar­fé­lögum lands­ins, sem sjá um end­an­lega útfærslu aðgerð­ar­innar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá félags­mála­ráðu­neyt­inu.

Nokkur sveit­ar­fé­lög hafa þegar opnað fyrir umsóknir um þessa styrki á vef­síðum sínum og hafa meðal ann­ars Suð­ur­nesja­bær, Norð­ur­þing, Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staður og fleiri birt reglur um það hvernig nákvæm­lega styrkirnir verða útfærðir.

Regl­urnar sem þessi þrjú sveit­ar­fé­lög og fleiri hafa sett sér um úthlut­un­ina eru sam­hljóða. Þær fela í öllum til­fellum í sér að styrk­ur­inn geti numið allt að 45.000 krónum fyrir útlögðum kostn­aði vegna íþrótta- og tóm­stunda­starfs fyrir hvert barn af heim­ilum þar sem heild­ar­tekjur fram­fær­enda; ein­stak­lings, hjóna eða sam­búð­ar­fólks, voru að með­al­tali lægri en 740.000 kr. á mán­uði á tíma­bil­inu mars til júlí 2020. Umsóknir skulu ber­ast til sveit­ar­fé­laga fyrir 1. mars 2021.

Seinna á ferðinni en hugsunin var

Þessi sér­staki stuðn­ingur við íþrótta- og frí­stunda­starf barna af tekju­lágum heim­ilum var kynntur til sög­unnar þann 21. apríl, sem hluti af svoköll­uðum öðrum aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar til þess að bregð­ast við COVID-19 far­aldr­inum.

[adspot]

Áætlun gerir ráð fyrir að þessi efna­hags­að­gerð kosti um 600 millj­ónir króna, en hún er búin að vera lengi að kom­ast til fram­kvæmda, þrátt fyrir að fjár­út­látin til sveit­ar­fé­lag­anna hafi verið sam­þykkt með fjár­auka­lögum strax í vor. Þá sagði í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar að aðgerðin væri í því skyni að öll börn gætu óháð efna­hag for­eldra stundað íþróttir og aðrar tóm­stundir í sumar, en nú er þessi aðgerð hugsuð fyrir íþrótta­starf skóla­árs­ins 2020-2021.

Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra fór yfir aðgerðir á mál­efna­sviði ráðu­neytis síns á rík­is­stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku og hefur Kjarninn fengið það yfir­lit afhent. Samkvæmt yfir­lit­inu hafa alls 1,6 millj­arðar króna farið í félags­legar aðgerðir til að tryggja stuðn­ing og þjón­ustu við við­kvæma hópa vegna COVID-19. Íþrótta- og frí­stunda­styrkirnir eru langstærsta ein­staka aðgerðin í þeirri summu og hafa verið lengi að kom­ast til fram­kvæmda, sem áður segir.

Í sumar fengu 30 sveit­ar­fé­lög þó sam­tals 75 millj­óna króna styrki vegna við­bót­ar­verk­efna sem tengd­ust frí­stunda­starfi barna í við­kvæmri stöðu og var þar sér­stak­lega horft til ald­urs­hóps­ins 12-16 ára og reynt að ná til barna sem hvað síst sækja í hefð­bundið frí­stunda­starf.

Vinnumarkaðsaðgerðir veigamestar

Í yfir­lit­inu er farið yfir allar þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á mál­efna­sviði ráðu­neyt­is­ins vegna far­ald­urs­ins og afleið­inga hans, en alls eru þær verð­metnar á um 24 millj­arðar króna. Langstærstur hluti af því er vegna greiðslu hluta­bóta til fólks í skertu starfs­hlut­falli, en í lok októ­ber hafði Vinnu­mála­stofnun greitt tæp­lega 20 millj­arða króna í hluta­bætur til alls 35.474 laun­þega hjá um 6.600 atvinnu­rek­endum.

Aðrir stórir kostn­að­ar­liðir á mál­efna­sviði félags­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna COVID-19 eru tíma­bundin sum­ar­störf fyrir náms­menn hjá ríki og sveit­ar­fé­lögum, en Vinnu­mála­stofnun gerir ráð fyrir því að kostn­aður við það úrræði nemi á bil­inu 1,7-1,8 millj­arði króna, sem er þó minna en þeir 2,2 millj­arðar sem áætlað var að aðgerðin kost­aði.

Þá höfðu um 250 millj­ónir króna verið greiddar vegna launa í sótt­kví um miðjan októ­ber­mánuð, til alls 1.866 ein­stak­linga eða um 5 pró­sent þeirra sem þá höfðu lokið sótt­kví.

Vinnu­mála­stofnun fékk 100 millj­óna króna auka­fjár­veit­ingu til að ráða inn fólk fyrr á árinu og hafði starfs­fólki þar fjölgað um 48 stöðu­gildi frá sept­em­ber 2019 til sept­em­ber 2020. Í yfir­liti ráðu­neyt­is­ins segir að enn sé þörf á að fjölga starfs­mönnum hjá stofn­un­inni til að mæta auknu álagi vegna fjölda atvinnu­leit­enda.

Aðgerðir vegna COVID-19 á mál­efna­sviði ráðu­neyt­is­ins hafa verið margs­konar og snert á ýmsum þáttum tengdum far­aldr­inum. Meðal ann­ars hafa um 100 millj­ónir farið í þjón­ustu við heim­il­is­lausa með fjöl­þættan vanda bæði í Reykja­vík og á Akureyri, gripið hefur verið til vit­und­ar­vakn­ingar gegn heim­il­is­of­beldi og aðgengi að fræðslu­efni vegna COVID-19 til fólks af erlendum upp­runa hefur verið aukið, m.a. með þýð­ingum á vefnum covid.is og þýð­ingu smitrakn­ing­ar­for­rits­ins yfir á pólsku og ensku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár