Yfirmaður COVID-göngudeildar: „Þetta gæti meira segja verið Brynjar sjálfur“

Ragnar Freyr Ingv­ars­son, umsjón­ar­læknir COVID-göngu­deild­ar­innar, gagn­rýnir Brynjar Níelsson harð­lega og spyr hvort það geti verið að þing­mað­ur­inn eigi í erf­ið­leikum með að reikna.

Ragnar Freyr Ingvarsson er umsjónarlæknir COVID-göngudeildarinnar.
Ragnar Freyr Ingv­ars­son er umsjón­ar­læknir COVID-göngu­deild­ar­innar.

„Getur verið að Brynjar eigi í erf­ið­leikum með að skilja tölur og marg­feldi þeirra?“ spyr Ragnar Freyr Ingv­ars­son, umsjón­ar­læknir COVID-göngu­deildar Land­spít­al­ans. „Ef gefið verður frjálst munu fórn­ar­lömb far­ald­urs í mik­illi upp­sveiflu marg­fald­ast.“

Tilefni skrifa Ragnars Freys er við­tal sem birt er á mbl.is við Brynjar Níelsson, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þar segir Brynjar rík­is­stjórn­ina hljóta að velta því upp á hverjum degi hvort ástæða sé til þess að fara rólegar í sak­irnar í sótt­varna­að­gerðum sem hafi lam­andi áhrif á allt sam­fé­lagið. Sam­fé­lags­legi skað­inn sem þær valdi kunni að vera meiri en aug­ljós heilsu­fars­legur skaði af völdum far­sótt­ar­innar. „Fer allt á hlið­ina jafn­vel þó að við lokum ekki öllu?“ spyr Brynjar. „Er þessi veira svo skæð að við getum rétt­lætt þetta bara með því að ein­hver geti dáið?“

Ragnar Freyr bendir á í færslu sem hann skrifar á Facebook í kvöld að í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins hafi um 3.600 ein­stak­lingar smit­ast af veirunni hér á landi. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að það sé sú tala sem mótefna­mæl­ingar sem gerðar hafa verið bendi til. Í þeirri bylgju lögð­ust 115 inn á sjúkra­hús, 26 á gjör­gæslu og 10 lét­ust.

„Og það var á meðan allt sam­fé­lagið lagð­ist heils­hugar á eitt, breytti hegðun sinni, til að takast á við þessa gríð­ar­stóru áskorun,“ rifjar Ragnar upp. „Við þær aðstæður upp­skárum við þó þennan fórn­ar­kostnað. Ef tíu sinnum fleiri myndu veikj­ast myndum við að minnsta kosti upp­skera rúm­lega 1150 inn­lagnir, 260 á gjör­gæslu og 100 myndu deyja.“

Og þó væru þá ennþá tæp­lega 90% Íslend­inga næmir fyrir veirunni. „Fyrir hverja 1000 smit­aða fáum við um 32 inn­lagnir, 2,6 á gjör­gæslu og 1 deyr. Að minnsta kosti.“

[links]Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir var spurður út í hjarð­ó­næmi á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Hver hans skoðun væri á því núna eftir alla þá þekk­ingu og reynslu sem væri nú til staðar. Þórólfur benti á að ekk­ert land væri nálægt því að ná hjarð­ó­næmi. Svíþjóð væri enn langt frá því þó að leiðin væri oft kennd við það land. Þar hefðu um 10 pró­sent íbúa þeirra svæða sem verst hefðu orðið úti í far­aldr­inum sýkst en til að ná hjarð­ó­næmi þarf um 60-70 pró­sent af sam­fé­lagi að smit­ast. Ef veirunni væri leyft að ganga um sam­fé­lagið óáreitt þá myndi það hafa hræði­legar afleið­ingar og heil­brigð­is­kerfið verða yfir­keyrt, sagði sótt­varna­læknir.

Í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins hafa um 1.000 smit­ast hér á landi, 24 eru á sjúkra­húsi, þrír á gjör­gæslu. Ragnar Freyr segir að sem betur fer hafi eng­inn dáið. „En þetta eru ekki bara ein­hverjir ein­hverjir. Þetta eru afar okkar og ömmur, pabbar og mömmur. Vinir, vanda­menn og ást­vinir!

Þetta gæti meira segja verið Brynjar sjálfur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár