Víðir: „Komm on, það er ekki að ástæðulausu að við settum þetta bann á“

Víðir Reyn­is­son segir að dæmi séu um að starf­semi hár­greiðslu­stofa hafi verið flutt í heima­hús. „Það er ekk­ert hættu­m­inna að gera þetta heima hjá sér en inni á hár­greiðslu­stofu. Við verðum bara að vera með ljóta hár­greiðslu næstu vik­urnar.“

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

Lög­reglan hefur fengið ábend­ingar um það að verið sé að færa þjón­ustu sem veitt er á hár­greiðslu­stofum til dæmis í heima­hús eftir að hertar reglur um sam­komu­bann tóku gildi fyrr í vik­unni. „Komm on, það er ekki að ástæðu­lausu að við settum þetta bann á,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. „Það er ekk­ert hættu­m­inna að gera þetta heima hjá sér en inni á hár­greiðslu­stof­unni. Við verðum bara að vera með ljóta hár­greiðslu næstu vik­urnar. Við verðum að lifa með því.“

Víðir minnti á að fólk í sótt­kví mætti fara út að ganga en þyrfti að gæta þess að halda 2 metra fjar­lægð milli sín og ann­arra veg­far­enda. En hann árétt­aði að fólk í sótt­kví mætti ekki fara í versl­anir eða annað slíkt. „Við erum að fá allt of mikið af til­kynn­ingum um fólk í sótt­kví sem er að fara í versl­anir. Þó að þú reynir að halda tveggja metra fjar­lægð þá er það ekki leyfi­legt.“

Víðir minnti einnig á að ekki fleiri en tutt­ugu mættu vera á hverjum vinnu­stað sam­kvæmt hertu regl­unum og að allir yrðu að gæta þess að halda tveggja metra fjar­lægð frá næsta manni. „Við erum með ágæta rým­is­greind og ágæt í stærð­fræði og kunnum að telja upp á tutt­ugu.“

Hvað versl­anir varðar benti Víðir á að ef ekki væri lengra en tveir metrar milli afgreiðslu­kassa yrði annar hver kassi að vera lok­aður. „Það er ekki flókn­ara en það.“

[links]Versl­anir eiga sam­kvæmt regl­unum að merkja á gólf hvar tveggja metra línan er. „Og ekki vera að sækja um und­an­þágur fyrir hvað sem er. Þetta sam­komu­bann og þessar tak­mark­anir eru settar í ákveðnum til­gangi, til að verja líf. Við sjáum stöð­una á gjör­gæsl­unni núna, við sjáum stöð­una á Land­spít­al­anum. Og þetta er ástæðan fyrir því að við erum að fara í þetta. Verið ekki að sækja um und­an­þágur fyrir starf­semi sem getur beðið.“

Víðir sagði að öllum ætti að vera full­kunn­ugt um að margt í sam­fé­lag­inu lægi niður að stóru leyti. „Það mun leggj­ast ennþá meira niður á næst­unni. Við verðum bara að aðlaga okkur að því ástandi. Það kemur betri tíð, það kemur sumar. Vinnum þetta saman þangað til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár