Sýni verið tekin af um 4 prósent íslensku þjóðarinnar

Rúmlega þrettán þús­und sýni hafa verið tekin hér á landi vegna nýju kór­ónu­veirunnar eða af um 4% íslensku þjóð­ar­innar. Þá eru yfir tíu þús­und manns, um 3% þjóð­ar­innar, í sótt­kví.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: EPA

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði frá því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að 21 pró­sent sýna sem tekin hefðu verið á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans síð­asta sól­ar­hring­inn hafi reynst jákvæð. Aðeins 1 pró­sent sýna sem tekin voru á sama tíma­bili hjá Íslenskri erfða­grein­ingu voru jákvæð. Helm­ingur allra nýgreindra var þegar í sótt­kví.

Staðfest smit eru nú 890. Átján sjúk­lingar liggja á Land­spít­al­anum vegna COVID-19 og sex eru á gjör­gæslu­deild og allir eru þeir í önd­un­ar­vél. Í heild hafa 97 náð bata.

Rúmlega þrettán þús­und sýni hafa verið tekin hér á landi vegna nýju kór­ónu­veirunnar eða af um 4% íslensku þjóð­ar­innar. Þá eru yfir tíu þús­und manns, um 3 pró­sent þjóð­ar­innar, í sótt­kví.

„Svo við ljúkum pinna­mál­inu mikla,“ sagði Þórólfur á fund­inum, „þá er ekki skortur á pinnum“. Einnig væri staða hlífð­ar­bún­aðar í land­inu góð. Gengið hafi nokkuð á þær birgðir en fyr­ir­sjá­an­legur skortur er þó ekki sjá­an­legur og unnið er að því að útvega meiri birgðir. Sömu sögu væri að segja með lyfja­birgðir, engar vís­bend­ingar væru um yfir­vof­andi skort.

Fjórar vikur eru í dag frá því að fyrsta til­fellið af COVID-19 greind­ist hér á landi. Þórólfur sagði að nú værum við lík­lega hálfnuð „í þessu lang­hlaupi sem við eigum fyrir höndum“.

Hann benti á að far­ald­ur­inn væri enn í vexti hér á landi, ekki mjög hröðum „en við eigum enn eftir að ná hápunkt­inum“.

Fjórar vikur frá fyrsta smiti

Þegar litið væri um öxl væri hægt að full­yrða að þær aðgerðir sem gripið hefði verið til hér hefðu skilað árangri. Það komi m.a. ber­sýni­lega í ljós þegar litið er til þess hversu mörg nýrra smita grein­ist hjá fólki sem er þegar í sótt­kví.

[links]Búast má við að far­aldr­inum ljúki í maí og þá vaknar sú spurn­ing hvort að önnur bylgja komi síðar. Þórólfur sagði að rann­saka þyrfti hversu margir Íslend­ingar hefði smit­ast þegar að því kemur. „Við eigum enn eftir að ná toppnum og getum búist við að sjá aukn­ingu á greindum til­fellum á næst­unni en von­andi mun það fylgja þeirri spá sem gefin hefur verið út.“

Brýndi hann fyrir fólki að virða sam­komu­bannið og búa sig undir að það verði fram­lengt. Það muni skýr­ast á næstu dögum eftir því hvernig far­ald­ur­inn þró­ast. Þá minnti hann fólk á að sýna þol­in­mæði, umburð­ar­lyndi og jákvæðni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár