Andfætlingar okkar, kolafíklarnir

Áströlsk stjórn­völd eru víða gagn­rýnd fyrir að vera lofts­lags-skussar sem neiti að draga úr vinnslu jarð­efna­elds­neytis. Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra segir stærsta stjórn­mála­flokki lands­ins haldið í gísl­ingu af „eitr­uðu banda­lagi“ loft­lagsaf­neit­ara.

Scott Morrison forsætisráðherra Ástralíu.
Scott Morrison for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu. Mynd: EPA

Áströlsk stjórn­völd gáfu í októ­ber út yfir­lýs­ingu um að ríkið stefndi að kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2050, en það var í fyrsta sinn sem ríkið setti sér tíma­sett mark­mið um hvenær því marki yrði náð. Það þykir þó ansi óljóst hvernig ríkið ætlar að ná þessu mark­miði, sem sett var fram ein­ungis rúmri viku áður en COP26-ráð­stefnan hófst í Glasgow.

Hafa inn­lendir sem og erlendir gagn­rýnendur ástr­al­skra stjórn­valda sagt að það sé ekki nóg að segj­ast vera með mark­mið, það þurfi líka að vera með áætlun. Áætlun verði nefni­lega ekki til við það eitt að segj­ast nógu oft vera með áætlun.

Það sem áströlsk stjórn­völd hafa boðað til þessa er að 20 millj­örðum ástr­al­skra dala, jafn­virði rúm­lega 1.900 millj­arða íslenskra króna, verði varið í tækni­lausnir eins og kolefn­is­bind­ingu og þróun græns iðn­aðar á næstu 20 árum. Á sama tíma er Ástralía þó að auka gas­notkun sína til skamms tíma og hefur ekki sett fram neinar áætl­anir um að tak­marka notkun jarð­efna­elds­neytis eða kola.

Þver­sagna­kenndar fyr­ir­ætl­anir Ástrala í þessum efnum þurfa ef til vill ekki að koma á óvart, þar sem Ástralía, sem er næst stærsti kola­út­flytj­andi í heim­inum, er fremur alræmdur lofts­lags-sóði í flestum sam­an­burði og hefur verið það lengi, þrátt fyrir að tölu­verðar sveiflur hafi orðið á stefnu lands­ins í mála­flokknum við valda­skipti á und­an­förnum ára­tugum.

Á meðan að flest önnur þróuð og auðug ríki eru fyrir all­nokkru byrjuð að huga að því að draga hratt úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eru mark­mið Ástrala um sam­drátt fram til árs­ins 2030 ein­ungis hálf­drætt­ingur í sam­an­burði við fyr­ir­ætl­anir til dæmis Bret­lands, Banda­ríkj­anna og ríkja ESB. Orðræða æðstu ráða­manna í Ástralíu um lofts­lags­mál hefur svo á und­an­förnum árum ratað reglu­lega í heims­frétt­irnar, helst fyrir að þykja fjar­stæðu­kennd.

Keyra sig á gasi út úr COVID-19

Ástralir ætla sér að vera búnir að draga saman losun um 26-28 pró­sent árið 2030 og segj­ast á réttri leið með það, en kynntu engin ný mark­mið í þessum efnum fyrir fund­inn í Glasgow. Samkvæmt grein­ingu á vefnum Climate Action Tracker, sem rýnir í mark­mið og stefnur ríkja í lofts­lags­málum, er Ástralía á veg­ferð sem er á engan hátt sam­ræm­an­leg mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins frá 2015.

[adspot]

Í umfjöllun á vef Climate Action Tracker er sér­stak­lega hnýtt í sókn­ar­á­ætlun Ástrala út úr far­aldri COVID-19, sem snýst fyrst og fremst um að vinna meira jarð­gas til heima­brúks og útflutn­ings. „Gas-knúin end­ur­reisn,“ var yfir­skrift frétta­til­kynn­ingar stjórn­valda um þetta efni frá því í fyrra.

Þyrnum stráð saga í loftslagsmálum

Í frétta­skýr­ingu á vef ástr­alska mið­ils­ins ABC er saga Ástralíu í lofts­lags­málum und­an­farna ára­tugi rakin og rýnt í ástæður þess að sendi­nefnd Ástrala verði lík­lega litin horn­auga af ýmsum á ráð­stefn­unni sem nú stendur yfir í Glasgow. Þar segir að slæmt orð­spor Ástralíu í þessum mála­flokki hafi tekið að mynd­ast þegar árið 1997, er leið­togar heims hitt­ust og sömdu um Kýótó-bók­un­ina.

Á meðan að flest þróuð ríki hétu því að fara að huga að auknum sam­drætti í losun sperrt­ist Ástralía á móti og sagði að sitt fram­lag til mál­anna yrði að auka losun sína um ein 8 pró­sent. Ástralía stað­festi svo reyndar ekki Kýótó-bók­un­ina fyrr en árið 2007, er valda­skipti urðu og Kevin Rudd leið­togi Verka­manna­flokks­ins varð for­sæt­is­ráð­herra.

Næsti for­sæt­is­ráð­herra var svo Julia Gillard, einnig fyrir Verka­manna­flokk­inn, og í hennar stjórn­ar­tíð var sett á lagg­irnar við­skipta­kerfi með los­un­ar­heim­ildir, sam­bæri­legt ETS-kerf­inu í Evrópu, sem skap­aði hvata til þess að draga úr losun. Ástralía virt­ist á lofts­lagsvænni leið.

Það kerfi var hins vegar bútað í sundur nán­ast um leið og Tony Abbott leið­togi Frjáls­lynda flokks­ins varð for­sæt­is­ráð­herra árið 2013. Það þarf ef til vill ekki að koma á óvart, því þetta er sami Tony Abbott og sagði í ræðu árið 2017, eftir að hann hafði látið af emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra, að aðgerðir til þess að draga úr lofts­lags­breyt­ingum væru svip­aðar því er frum­stætt fólk „drap geitur til að frið­þægja eld­fjalla­guð­ina.“

Stærsta eftirsjá Turnbull að draga ekki úr losun

Í kjöl­far for­sæt­is­ráð­herra­tíðar Abbott tók Malcolm Turnbull við völdum, en hann var einnig leið­togi Frjáls­lynda flokks­ins. Hvað lofts­lags­málin varðar var hann þó á allt annarri línu en Abbott og lýsti því í við­tali í fyrra að það sem hann sæi mest eftir úr emb­ætt­is­tíð sinni hefði verið að koma ekki í gegn lög­gjöf sem drægi mark­vert úr losun Ástrala.

Í við­tal­inu lýsti Turnbull því einnig að hann hefði tví­vegis misst for­manns­stól­inn í Frjáls­lynda flokknum vegna afstöðu sinnar til lofts­lags­mála og fyrir að leggja fram stefnu­mál sem fóru illa í hægri væng flokks­ins. Þetta gerð­ist fyrst árið 2009 til er hann missti for­manns­stól­inn til áður­nefnds Abbotts og svo árið 2018 til núver­andi leið­toga flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu – Scott Morrison.

„Frjáls­lynda flokknum hefur verið haldið í gísl­ingu af eitr­uðu banda­lagi innan flokks­ins sem trúir ekki á lofts­lags­breyt­ingar, með stuðn­ingi vina þeirra á fjöl­miðl­unum,“ er haft eftir Turnbull í þessu sama við­tali, en hvað fjöl­miðl­ana varð­aði sagð­ist hann sér­stak­lega eiga við fjöl­miðla­veldi auð­kýf­ings­ins Roberts Murdoch í þessu sam­hengi.

Scott Morrison, nýjasti full­trúi þessa banda­lags sem Turnbull kallar eitrað, hefur svo sann­ar­lega látið ekki valdið von­brigðum hjá þeim stuðn­ings­mönnum flokks­ins sem eru á þeirri línu að það sé ekki þess virði að grípa til aðgerða í lofts­lags­málum.

Hann er nefni­lega harður tals­maður þess að gera mest lítið í lofts­lags­málum og ver kola­iðn­að­inn í land­inu með kjafti og klóm á hinu póli­tíska sviði. Það vakti til dæmis mikla athygli árið 2017 er Morrison kom til þing­fundar með kola­mola í hönd­unum. „Þetta eru kol, ekki vera hrædd,“ voru skila­boð Morrison til stjórn­ar­and­stöð­unnar, sem hann sagði haldna kola­fó­bíu.

Rúmlega helm­ingur alls raf­magns í Ástralíu er fram­leiddur með kolum og um 20 pró­sent til við­bótar með jarð­gasi. Ráðandi öfl í land­inu eru ekki að gera mikið til að breyta þessu og lítil áhersla er sömu­leiðis á orku­skipti í sam­göngum.

Rafbílar sem eyðileggja helgina

Það þarf ekki endi­lega að koma á óvart, enda hefur for­sæt­is­ráð­herr­ann Morrison ekki virst hafa mikla trú á að raf­bílar séu í þann mund að verða væn­legur kostur fyrir ástr­alskan almenn­ing.

Árið 2019 sak­aði hann stjórn­ar­and­stöð­una um að vilja „eyði­leggja helg­ar­fríin“ hjá alþýðu manna í Ástralíu, þegar Verka­manna­flokk­ur­inn hafði lagt til að hvatar yrðu skap­aðir til að raf­bílar yrðu 50 pró­sent af öllum nýjum bílum í Ástralíu árið 2030.

Morrison sagði að raf­bíl­arnir sem stjórn­ar­and­staðan vildi „troða ofan í kokið“ á lands­mönnum yrðu bæði dýrir og þeir sem væru það ekki yrðu ófærir um að draga hús­bíla og báta og hent­uðu ekki til að „koma þér út á upp­á­hald­stjald­stað­inn með fjöl­skyld­unni þinni.“

„Ástralska leiðin“ að veðja á að vísindin reddi þessu

Í ræðu sinni á COP26 í upp­hafi mán­aðar lagði Morrison mikla áherslu á að tækni­lausnir myndu í fyll­ingu tím­ans leysa lofts­lags­vand­ann – og að það væri „ástr­alska leiðin“ að veðja á að vís­inda­fólk, frum­kvöðlar og fjár­festar myndu feta veg­inn í átt að kolefn­is­lausu hag­kerfi.

Þessu – og ýmsu öðru í ræðu Morrison – var harð­lega and­mælt af lofts­lags­ráði Ástralíu, Climate Council. Vert er að taka fram að lofts­lags­ráðið er sjálf­stætt starf­andi og fjár­magnað með fram­lögum almenn­ings – en það var stofnað í kjöl­far þess að rík­is­stjórn Abbott lagði hið opin­bera en sjálf­stæða lofts­lags­ráð lands­ins, Australian Climate Commission, niður árið 2013.

„Ástr­alska leiðin er ekki að veðja, kross­leggja fingur og gera ekk­ert,“ segir í umfjöllun lofts­lags­ráðs­ins um ræðu Morrison á ráð­stefn­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár