Íslenskur karlmaður bauð „einstæðri móður með barn“ aðstoð

Íslenskur karl­maður setti inn umdeilda Facebook-færslu í hóp­inn Aðstoð við Grind­vík­inga, þar sem fólki í neyð er boðin marg­vís­leg aðstoð frá hjálp­fúsum Íslend­ingum. Meðlimir hóps­ins brugð­ust illa við þegar mað­ur­inn bauðst til að aðstoða ein­stæða móður með barn. „Skammastu þín karl fauskur.“

Fjöldahjálparstöð í Kórnum
Fjölda­hjálp­ar­stöð í Kórnum Rauði kross­inn heldur úti fjölda­hjálp­ar­stöðum á nokkrum stöðum. Ein þeirra er í Kórnum í Kópavogi þar sem þessi mynd var tekin aðfar­arnótt laug­ar­dags. Mynd: Golli

Íslenskur karl­maður óskar eftir því að kom­ast í sam­band við ein­stæða móður með barn á flótta undan nátt­úru­ham­förum við Grinda­vík. Í Facebook-hópnum Aðstoð við Grind­vík­inga rignir nú inn skila­boðum frá fólki sem býður fólki á hrak­hólum aðstoð, með einum eða öðrum hætti. 

Ein færslan sker sig hins vegar úr, en þar segir íslenskur karl­maður að ein­stæð móðir með barn geti haft sam­band við sig. Færslan fékk væg­ast sagt slæm við­brögð ann­arra með­lima hóps­ins, sem hvöttu ráða­lausa ein­stak­linga til að hafa frekar sam­band við Rauða kross Íslands til að fá aðstoð við að finna hús­næði. 

Á meðal þess sem fólk gerði athuga­semd við var að mað­ur­inn vildi bara bjóða konu í vanda aðstoð, en ekki karl­manni. Ein­stæðum föður til dæmis. „Ein­stæður faðir kemur þá ekki til greina og af hverju?“ spurði ein. Fleiri spurn­ingar kvikn­uðu: „Af hverju bara ein­stæð?“ spurði önnur. 

„Andskotans á …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár