Ætti Strætó að losa sig við aksturshattinn?

Strætó lét nýlega vinna fyrir sig skýrslu um útvistun á akstri. Hjálmar Sveins­son borg­ar­full­trúi og stjórn­ar­for­maður Strætó segir útvistun á öllum akstri hafa komið til umræðu hjá stjórn, en að engar ákvarð­anir hafi verið teknar.

Rekstr­ar­fyr­ir­komu­lag almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sker sig frá því sem tíðkast í flestum nágranna­löndum Íslands, en fátítt er að bæði stjórn og skipu­lagn­ing þjón­ust­unnar og akstur vagna sé á sömu opin­beru hend­inni, sam­kvæmt því sem fram kemur í nýlegri skýrslu sem VSB verk­fræði­stofa vann fyrir Strætó.

Almenningsferðastofur og akstursaðilar

Á enskri tungu eru tvö mis­mun­andi nöfn yfir þessi tvö mis­mun­andi hlut­verk, stofn­anir sem stýra og skipu­leggja almenn­ings­sam­göngu­þjón­ustu eru kall­aðar Public Tran­sport Aut­hority en þeir aðilar sem keyra stræt­is­vagn­ana eru Public Tran­sport Operator.

Orð yfir fyrr­nefndu stofnana­gerð­ina er varla til í íslenskri tungu, sökum þess að engar hrein­rækt­aðar slíkar eru starf­andi á Íslandi, en þær eru kall­aðar almenn­ings­ferða­stofur í skýrslu VSB en þau félög sem aka vag­an­ana akst­urs­að­ilar.

Strætó sinnir þessum báðum hlut­verkum í dag án nokk­urra skila á milli mis­mun­andi þátta rekst­urs­ins, en fyr­ir­tækið útvistar þó um helm­ingi pró­sent af öllum akstri sínum til ann­arra akst­urs­að­ila.

„Strætó bs er því með tvo hatta, almenn­ings­ferða­stofu­hatt (AFS) og akst­urs­að­ila­hatt,“ segir í skýrsl­unni, sem var ætlað að vera inn­legg í skoðun á því hvort Strætó skuli halda áfram að aka eigin vagna að ein­hverju leyti eða bjóða út allan akstur og hvað megi læra af reynslu ann­arra ríkja í þessum efnum.

Fyrirkomulag Strætó á skjön við öll Norðurlöndin, Holland og Eistland

Við skýrslu­gerð­ina setti VSB sig í sam­band við sex almenn­ings­ferða­stofur og tvo akst­urs­að­ila í Danmörku, Finn­landi, Noregi, Svíþjóð, Hollandi og Eist­landi til þess að að skoða kosti og galla núver­andi kerfis hjá Strætó.

„Engin for­dæmi fund­ust í lönd­unum sex fyrir sams­konar fyr­ir­komu­lagi og upp­setn­ingu og Strætó bs. Einstaka dæmi voru nefnd þar sem akstur vagna er ennþá á höndum opin­berra aðila en þá er um að ræða akst­urs­að­ila í opin­berri eigu. Skýr skil eru þannig alltaf á milli stjórn­sýslu­ein­ing­ar­innar/almenn­ings­ferða­stof­unnar (AFS) og aksturað­il­ans,“ segir í skýrsl­unni.

Fyrir árið 1990 var hins vegar algengt að stjórn­sýsla og skipu­lag akst­urs væru á sömum höndum í Norður-Evrópu, en það er liðin tíð. Lagaum­hverfið fyrir almennnings­sam­göngur og útboðs­mál í Evrópu breytt­ist á árunum 1985-2000 og það leiddi til þess að skilið var á milli þeirra opin­beru aðila sem skipu­leggja og stýra sam­göng­unum og þeirra aðila sem keyra.

[adspot]

Þó eru dæmi um það, t.d. í Árósum í Danmörku, að opin­berir aðilar eigi fyr­ir­tæki sem sinnir akstri almenn­ings­vagna. En það er bara af því að það tókst ekki að selja fyr­ir­tækið, sam­kvæmt því sem segir í skýrsl­unni.

Strætó hefur notað svo­kall­aða samn­ings­kaupa­leið við útvistun á sínum eigin akstri og hið sama á við hjá öllum þeim almenn­ings­ferða­stofum í Norður-Evrópu sem veittu VSB upp­lýs­ingar um sína starf­semi. Þau svör feng­ust að almennt tæki útboðs­ferli fyrir almenn­ings­sam­göngur fremur langan tíma, eða á bil­inu 2-3 ár.

Mikil endurnýjunarþörf í flotanum

Eins og Kjarninn sagði frá í frétta­skýr­ingu um rekstr­ar­stöðu Strætó fyrir rúmu ári síðan var aukin útvistun akst­urs á meðal þess sem ráð­gjafar frá KPMG sögðu vert að skoða til þess að mæta þeirri stöðu að stræt­is­vagna­flot­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er orð­inn fremur gam­all.[links]

Strætó á lítið fé til þess að ráð­ast í nauð­syn­lega end­ur­nýjun vagna­kosts­ins og er meira að segja að grípa til hag­fræð­ing­ar­að­gerða um þessar mundir – sem fel­ast í því að skera síð­ustu ferð dags­ins aftan af ferða­á­ætl­unum á all­mörgum leiðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Jóhannes Svavar Rún­ars­son fram­kvæmda­stjóri Strætó sagði við Kjarnann í fyrra að útboðs­ferli fyrir vagna væri tíma­frekt og leysti ekki málin til skemmri tíma, en að til lengri tíma þyrftu sveit­ar­fé­lögin sem eiga Strætó að marka sér stefnu um hvort halda ætti áfram að aka eigin vagna eða útvista öllum akstri eins og gert væri í höf­uð­borgum nágranna­landa.

Hjálmar Sveins­son borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ingar er stjórn­ar­for­maður Strætó bs. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að það sé ekki búið að taka neinar ákvarð­anir um þessi mál í stjórn Strætó, en að það geti verið að hlut­fall útvist­unar breytt­ist aðeins með hinu nýja leiða­kerfi Strætó sem til stendur að inn­leiða.

Hann segir hug­myndir um að útvista öllum akstri Strætó hafa komið til umræðu á vett­vangi stjórnar, en að það sé ekki búið að taka neina ákvörðun. „Í mínum huga er eðli­legt að taka ákvörðun um það þegar nær dregur því að Borg­ar­línan fari að kom­ast í gagnið,“ segir Hjálmar.

Spurður um hvort ekki þurfi að fara að taka ákvarð­anir um þessi efni, þar sem útboð um hvort heldur nýja vagna eða útvistun akst­urs geti verið tíma­frek, segir Hjálmar að stjórnin sé „með­vituð um að tím­inn líður“ en þó sé ekki komið að neinni úrslita­stundu enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár