Gera grín að ræðu Gunnars Braga

Net­verjar gagn­rýna rík­is­stjórn­ina undir myllu­merk­inu #Ekki­Sig­ríð­urIngi­björg­Inga­dóttir. Sigríður Ingi­björg seg­ist hafa gaman af upp­á­tæk­inu.

Net­verjar kepp­ast nú við að gagn­rýna rík­is­stjórn­ina undir myllu­merk­inu #Ekki­Sig­ríð­urIngi­björg­Inga­dóttir á sam­skipta­vefnum Twitter. Dæmi um brand­ara sem nú fljúga á net­inu eru: Hver telur þjóð­ina geð­veika því hún skilur ekki hvað rík­is­stjórnin er frá­bær? #Ekki­Sig­ríð­urIngi­björg­Inga­dóttir. Hver yfir­gaf þing­fund til að fá sér köku? #Ekki­Sig­ríð­urIngi­björg­Inga­dóttir. Í báðum til­vikum er verið að gagn­rýna Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra. 

Hér má sjá fleiri dæmi:

Brand­ar­arnir komu í kjöl­far popp­lags­ins Hvar er kjark­ur­inn? sem vef­mið­ill­inn Nútíminn birti í morgun og er unnið upp úr eldræðu Gunnars Braga Sveins­sonar utan­rík­is­ráð­herra á Alþingi í síð­ustu viku. Gunnari var heitt í hamsi eftir að minni­hlut­inn gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir kjark­leysi þegar hún setti lög á verk­efall heil­brigð­is­starfs­fólk. Gunnar Bragi spurði á móti hvar kjark­ur­inn hefði verið hjá síð­ustu rík­is­stjórn í tengslum við kröfu­haf­ana, Icesave og lán heim­il­anna. 

Stundin náði tali af Sigríði Ingi­björgu sem hafði gaman af upp­á­tæk­inu. „Mér þykir vænt um það að sjá að fólk noti nafnið mitt sem mót­vægi við rík­is­stjórn­ina. Ég get ekki verið annað en stolt af því,“ segir hún. 

Hér má sjá lagið:

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár