„Það eina sem er alveg öruggt“ er að meiri útbreiðsla þýðir meira af alvarlegum veikindum

Von­brigði. Áfall. Erfið staða. „Það er aldrei hægt að leggja of mikla áherslu á það að í þess­ari bar­áttu er veiran óvin­ur­inn,“ sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn á upp­lýs­inga­fundi þar sem okkur voru fluttar þungar fréttir.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

Von­brigði. Áfall. Erfið staða. Þungar fréttir.

Upp­lýs­inga­fundur almanna­varna og land­læknis í dag var með öðrum brag en hann hefur verið lengi. Tilkynnt var að einn lægi nú á gjör­gæslu­deild og í önd­un­ar­vél vegna COVID-19. Sá er ungur, aðeins á fer­tugs­aldri.

Þessar þungu fréttir voru okkur færðar eftir að ítrekað hefur komið fram á síð­ustu fundum að veik­indi væru ekki mjög alvar­leg þrátt fyrir fjölgun smita. Sótt­varna­læknir segir nú ekk­ert benda til þess að veiran sé að veikj­ast eins og velt hafði verið upp á fyrri upp­lýs­inga­fundum. Skýr­ingin á minni veik­indum í upp­hafi þess­arar bylgju far­ald­urs­ins væri lík­lega sú að ungt fólk er í meiri­hluta þeirra sem greinst hafa með COVID-19. Reynslan hefur sýnt að hann leggst harðar á eldra fólk og þá sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma.

[adspot]

„Það er aldrei hægt að leggja of mikla áherslu á það að í þess­ari bar­áttu er veiran óvin­ur­inn,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, á fund­inum. „Það er auð­vitað mikið sjokk að grein­ast [með COVID-19], að fá þetta sím­tal frá rakn­ing­arteym­inu og COVID-göngu­deild­inni. Og síðan fyrir aðra að fá sím­tal um að vera í sótt­kví.“

[links]Hann sagði „kannski of snemmt“ að segja til um hvort að það verði mikil og útbreidd veik­indi. „En þetta breyt­ist hratt. Við sjáum það í dag. Það er stutt síðan við fengum fréttir af þess­ari inn­lögn á Land­spít­al­ann. Við sáum þetta ger­ast í mars. Við sáum þetta ger­ast hér á Íslandi. Við sjáum þetta ger­ast í útlöndum. Það eina sem er alveg öruggt í þessu er að ef að veiran er að dreifa sér þá munum við fá meira af alvar­legum veik­indum. Og við munum sjá fleiri ein­stak­linga leggj­ast inn á spít­ala.“

Hann sagði að nú væri mik­il­vægt að beita dóm­greind­inni og vera var­kár. Að sýna til­lits­semi og taka ábyrgð. „Við höfum áður talað um mik­il­vægi þess að verja við­kvæmu hópana. Og þeir sem umgang­ast slíka hópa þurfa að vanda sig sér­stak­lega. Það á við okkur sem eigum aldr­aða for­eldra eða ömmur og afa sem við þurfum að huga að.“

Veiran er að smit­ast úti í sam­fé­lag­inu, sagði Víðir. „Við vitum það að mikið návígi, jafn­vel lítil partí, geta verið upp­runi að alvar­legum smitum. Við viljum hitta fólk, maður er manns gaman, en á svona stundum og á svona tímum er mik­il­vægt að eiga það inni og skapa öðru­vísi minn­ingar. [...] Þetta er erfið staða og þungar fréttir sem við erum að færa í dag. En við höfum sýnt það áður og við ætlum að sýna það aftur að við getum tek­ist á við hvað sem er ef við stöndum saman.“

Hann sagði okkur hafa lært ýmis­legt í vetur og að nú værum við að læra enn fleira. „Við getum öll gert aðeins betur, ef allir leggja sig örlítið betur fram þá náum við góðum árangri.“

Hans loka­orð á þessum fundi voru: „Við höfum sagt það áður og ég segi það aftur: Þetta verk­efni er ALGJÖRLEGA í okkar höndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár