Víðir: Faraldur skollinn á að nýju

Mögulega verða ein­hverjir lagðir inn vegna COVID-19. Annað hópsmitið hefur verið rakið til veit­inga­staðar í Reykja­vík. Tæplega 50 manns eru í sótt­kví í Vest­manna­eyjum vegna smits sem greind­ist hjá ein­stak­lingum sem þar voru um versl­un­ar­manna­helg­ina.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. Mynd: Lögreglan

Fáir af þeim sautján sem greindust með COVID-19 inn­an­lands í gær voru í sótt­kví. Alls greindust 20 til­felli í gær því þrjú til við­bótar greindust í landamæra­skimun.

Flestir sem eru sýktir eru í ald­urs­hópnum 18-29 ára eða sam­tals 40 manns. RÚV seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að búið sé að rekja annað hópsmitið sem verið hefur í gangi hér á landi til veit­inga­staðar í Reykja­vík.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði í hádeg­is­fréttum RÚV að veik­indi fólks­ins væru mis­jöfn en að mögu­lega yrðu ein­hverjir lagðir inn.

[adspot]

Ein­stak­lingar sem dvöldu í Vest­manna­eyjum um versl­un­ar­manna­helg­ina hafa nú greinst með COVID-19 og af þeim sökum eru tæp­lega 50 manns komin í sótt­kví í Eyjum.

[links]Sótt­varna­læknir sagði á fundi almanna­varna í gær að ekki væri að svo stöddu tíma­bært að herða sam­fé­lags­legar aðgerðir. Það kann nú að breyt­ast því Víðir sagði í fréttum RÚV að það væri nú til skoð­unar. Fyrst yrði hins vegar að kanna hvort að hert­ari aðgerðir hefðu komið í veg fyrir þau smit sem komið hafa upp síð­ustu daga. Sagði hann engar fregnir hafa borist af brotum á sam­komu­banni. Líklegra væri að 2 metra reglan væri ekki virt.

Víðir sagði ekki lengur um hópsmit að ræða. „Ég held að við séum að tala um far­aldur. Við erum komin í far­aldur. Eins og í vetur erum við að sjá smit koma upp um allt land.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár