Rappstjarnan Donald Trump

Fjöl­breyttur fer­ill Donalds Trump hefur verið sam­of­inn sögu banda­rískrar rapptón­listar nán­ast frá fyrsta degi. Hann var árum saman dásamaður í rapptextum sem tákn­mynd þess auðs og fjár­hags­legs sjálf­stæðis sem blökku­menn þráðu. Eftir að hann varð umdeild­asti for­seti í nútíma­sögu Banda­ríkj­anna hefur tónn­inn breyst þó að Trump sé enn að reyna að höfða til yngri kyn­slóða í gegnum hip-hop tón­list.

Standa í stríði
Standa í stríði Snoop Dogg og Jay Z eru meðal þeirra rapp­ara sem töl­uðu opin­skátt um vin­skap sinn við Trump en hafa nú snú­ist gegn honum.

Aðeins er um ár til næstu for­seta­kosn­inga í Banda­ríkj­unum og Trump er kom­inn í kosn­inga­ham, ef hann fór þá ein­hvern tím­ann úr honum til að byrja með. For­set­inn sendi á dög­unum frá sér Twitter-skila­boð þar sem hann hleypti af stokk­unum sam­keppni í að semja og flytja rapptexta um hinn eina sanna Donald Trump og hvernig hann hafi gert Banda­ríkin frá­bær aftur. Sig­ur­veg­ar­anum verður boðið í Hvíta húsið til að rappa fyrir for­set­ann í eigin per­sónu.

Keppnin stendur enn yfir en afrakst­ur­inn til þessa þykir almennt hlægi­legur ef marka má við­brögðin við þeim umsóknum sem hafa borist á sam­fé­lags­miðlum. Það kann að vera vegna þess að flestir „alvöru“ rapp­arar hafa snúið baki við Trump á síð­ustu árum eftir að hann hóf afskipti af stjórn­málum fyrir alvöru og tók að njóta stuðn­ings hvítra kyn­þátta­hat­ara. En það var ekki alltaf svo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár