Þórunn: Annaðhvort að einhenda sér í reiði og fýlu eða gera það besta úr stöðunni

Þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins segir að við þurfum öll að búa okkur undir öðru­vísi jól.

Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Þórunn Egils­dóttir, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Á morgun taka gildi breyttar sótt­varna­reglur og þær til­slak­anir sem ein­hverjir von­uð­umst eftir verða ekki að veru­leika. Við þurfum sem sagt að búa okkur undir öðru­vísi jól. Það er tvennt í stöð­unni, ann­að­hvort að ein­henda sér í reiði og fýlu eða velja þann kost­inn að gera það besta úr stöð­unni.“

Þetta sagði Þórunn Egils­dóttir, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún benti jafn­framt á að við lifðum í ver­öld þar sem spritt­brúsi í vasa væri við­ur­kenndur stað­al­bún­aður og gríma væri hluti af grunn­bún­aði. „Einhvern tím­ann tald­ist svona útbúið fólk til hóps sem fáir vildu kenna sig við. En nú er öldin önnur. Einn dag­inn munum við öll hugsa til baka til jól­anna 2020 og segja kom­andi kyn­slóðum sögur frá þessum óvenju­legu jólum og hvernig við gerðum okkar besta. Eflaust verður hægt að hlæja að jóla­boð­unum sem haldin voru í gegnum fjar­fund, já eða spila­kvöldum eða það getur verið bara eitt­hvað allt annað.“

Þórunn fór með lagið um það sem ekki má með heima­til­búnum texta og upp­skar hlátur í þing­sal:

Það má ekki halda jóla­boð,

það má ekki drekka saman jóla­mjöð,

það má ekki fara á skemmtun og hitta góða vini,

og það þarf kannski að taka sýni.

Þetta sótt­varna­fólk er svo skrýtið,

það er alltaf að banna allt.

Þó maður geri ekki neitt,

það er alltaf að banna allt.

Hún sagði að nú væru Íslend­ingar hvattir til þess að velja jóla­vini. „Þegar fjöl­skyldur búa ekki í sama lands­hluta getur verið snið­ugt að búa til jólakúlu með vinum eða nágrönnum. Þannig kynn­umst við kannski nýjum jóla­hefðum sem vert er að taka upp. Erfiðast verður þetta þó fyrir ein­stak­linga sem eru í við­kvæmum hópum. Hugsa má um nýjar leiðir til þess að gleðja ætt­ingja sem þurfa að halda sig til hlés heilsu sinnar vegna.

Njótum saman raf­rænna sam­veru­stunda. Þær eru öðru­vísi, en til þess að við getum látið þetta ganga upp þurfum við líka að halda öðru­vísi jól,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár