Meirihlutinn fellur í Bretlandi samkvæmt útgönguspá BBC

Breyt­ingar eru í vændum í breskum stjórn­málum, gangi útgöngu­spá BBC eftir.

Theresa May.
Theresa May. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­stjórn Theresu May í Bret­landi, leið­toga Íhalds­flokks­ins, fellur gangi útgöngu­spá breska rík­is­út­varps­ins BBC eftir, en þing­kosn­ingar fara fram í Bret­landi.

Breski Íhalds­flokk­ur­inn missir meiri­hluta sinn í neðri deild breska þings­ins, sam­kvæmt út­göngu­spánni, sem op­in­ber­aðar voru klukkan 10:00 að stað­ar­tíma.

Gengi punds­ins gaf hressi­lega eftir á eft­ir­mark­aði, þegar útgöngu­spáin birt­ist, sam­kvæmt frétt BBC.

Sam­kvæmt spánni miss­ir Íhalds­flokk­ur­inn sautján sæti, og þar með meiri­hlut­ann, og fær 314 þing­menn kjörna. 326 þarf fyr­ir meiri­hluta á 650 manna þing­inu. Verka­manna­flokk­ur­inn bæt­ir þá við sig og fær 266 þing­menn kjörna, sem er aukn­ing um 34 sæti.

Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn miss­ir 22 þing­sæti og fær 34 menn kjörna, sam­kvæmt spánni.Frjáls­lynd­ir demó­krat­ar fá þá 14 þing­menn og fjölg­ar sæt­um þeirra á þing­inu um sex.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár