Félags Þorsteins Más ekki lengur á meðal stærstu eigenda Sýnar

Í lok júlí var greint frá því að félag í eigu for­stjóra Samherja væri á meðal stærstu eig­enda fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Sýnar. Samkvæmt nýbirtum hlut­haf­alista hefur það breyst.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/Samherji

Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn, í meiri­hluta­eigu Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Samherja, er ekki lengur á meðal 20 stærsta eig­enda fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Sýnar.

Þegar listi yfir 20 stærstu hlut­hafa þess í lok júlí var birtur kom fram að félag Þor­steins ætti 0,67 pró­sent hlut í Sýn. Félagið hafði ekki verið á lista yfir stærstu hlut­hafa mán­uði áður og ljóst að það hafði bætt við sig hluta­bréfum í júlí.

Samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hlut­hafa Sýnar, sem birtur er á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins og sýnir eign­ar­hald þess 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, þá er Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn ekki lengur á meðal 20 stærstu hlut­hafa, en ein­ungis er birtur listi yfir þá. Sá eig­andi sem er í 20. sæti yfir stærstu eig­endur Sýnar á 0,57 pró­sent hlut og því liggur fyrir að félag Þor­steins Más hefur selt sig niður í fyr­ir­tæk­inu á síð­ustu vikum.

Virði þess hlutar sem sem Eign­ar­halds­fé­lagið Steinn átti í Sýn í lok júlí var tæp­lega 48 millj­ónir króna miðað við gengi bréfa á þeim tíma. Félagið hélt utan um eign­ar­hlut Þor­steins Más í Samherja sem hann fram­seldi að nán­ast öllu leyti til barna sinna í sumar, en eigið fé þeirra tveggja félaga sem mynda Sam­herj­a­sam­stæð­una, Sam­herja hf. og Sam­herja Holding, var 111 millj­arða króna í lok árs 2018. Félögin hafa ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2019 þrátt fyrir að frestur til þess sé lið­inn, en þeim á að skila til árs­reikn­inga­skrár fyrir 31. ágúst.

Bréf í Sýn hafa hækkað

Sýn tap­aði 410 millj­ónum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Félagið tap­aði 1,7 millj­arði króna á árinu 2019 og hefur því tapað yfir tveimur millj­örðum króna á einu og hálfu ári.

[adspot]Inni í þeirri tölu er ein­skipt­is­hagn­aður vegna sölu á fær­eyska félag­inu Hey upp á 817 millj­ónir króna í byrjun árs í fyrra. Án hans hefði tapið auk­ist um þá tölu.

Tapið á öðrum árs­fjórð­ungi, sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní, nam 60 millj­ónum króna en það er umtals­vert minna tap en á sama árs­fjórð­ungi í fyrra þegar tapið var 215 millj­ónir króna.

Tekjur Sýnar uxu milli ára. Þær voru 10,3 millj­arðar króna á fyrri hluta árs­ins en höfðu verið rétt um tíu millj­arðar króna á sama tíma­bili 2019. Tekju­hækk­unin er að öllu leyti til­komin vegna þess að tekjur Endor, upp­­lýs­inga­­fyr­ir­tækis sem stýrir ofur­­tölvum sem Sýn keypti í fyrra, komu inn í sam­stæðu­reikn­ing félags­ins í ár. Tekjur vegna hýs­ing­ar- og rekstr­ar­lausna voru því 1.315 millj­ónir króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2020 en þær voru engar í fyrra.

Bréf í Sýn hafa hækkað umtals­vert frá því að hálfs­árs­upp­gjör Sýnar var birt, sem gefur til kynna að fjár­festar hafi aukna trú á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Nú er mark­aðsvirði Sýnar rúm­lega níu millj­arðar króna. Innan lið­ins árs hefur virði bréfa í Sýn þó lækkað um tæp 13 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár