Söngvaseiður 60 ára

Í byrjun nóv­em­ber verða 60 ár síðan einn vin­sæl­asti söng­leikur allra tíma Sound of Music, Söngva­seiður, var fyrst sýndur á sviði. Kvikmynd með sama nafni, frum­sýnd árið 1965 sló öll aðsókn­ar­met.

Fræg pósa leikkonunnar Julie Andrews úr kvikmyndinni Sound of music.
Fræg pósa leikkon­unnar Julie Andrews úr kvik­mynd­inni Sound of music. Mynd: Úr safni

Árið 1949 kom út í Banda­ríkj­unum bók sem bar heitið The Story of the Trapp Family Singers. Hún hafði að geyma end­ur­minn­ingar Marie von Trapp, sem fædd­ist og ólst upp í Aust­ur­ríki. Eig­in­maður hennar, Georg von Trapp, sem var af ung­verskum ættum, hafði lát­ist tveimur árum fyrr og Marie von­að­ist til að bókin myndi afla henni tekna. Þegar Marie og Georg Trapp gift­ust átti Georg, sem var ekkju­maður og 22 árum eldri en Marie, sjö börn og síðar eign­uð­ust þau þrjú til við­bótar. Fjöl­skyldan flúði til Banda­ríkj­anna árið 1938 skömmu áður en síð­ari heims­styrj­öldin braust út. Fjöl­skyldan hafði þá um nokk­urra ára skeið aflað tekna með söng og hélt því áfram eftir flutn­ing­ana vestur um haf.

Trapp family sin­gers eins og þau nefndu sig nutu vin­sælda og fjöl­skyldan ferð­að­ist víða um lönd. Eftir að stríð­inu lauk stofn­uðu Trapp hjónin sjóð, sem styrkti fátækt fólk í Aust­ur­ríki. Georg lést, eins og áður sagði 1947 en Trapp fjöl­skyldan söng inn á nokkrar hljóm­plötur á árunum eftir 1950 en hætti störfum árið 1957. Marie von Trapp lést 28. mars 1987.

[adspot]

The Trapp family og The Trapp family in America

Fljót­lega eftir útkomu bók­ar­innar The Story of the Trapp Family Singers vildu tveir kvik­mynda­fram­leið­endur í Hollywood kaupa titil bók­ar­innar en Marie neit­aði að semja um slíkt, hún vildi því aðeins semja ef saga fjöl­skyld­unnar yrði sögð í slíkri mynd. Árið 1956 keypti þýskur kvik­mynda­fram­leið­andi fram­leiðslu­rétt­inn og gerði sama ár kvik­mynd­ina The Trapp family og tveimur árum síðar aðra mynd, sú bar heitið The Trapp family in America. Báðar urðu þessar myndir mjög vin­sælar í Þýska­landi og víðar. Tón­listin í báðum mynd­unum sam­an­stóð af aust­ur­rískum þjóð­lögum.

Sound of Music – Söngvaseiður – á svið

Leik­stjór­inn Vincent J. Donehue sá báðar kvik­mynd­irnar um Trapp fjöl­skyld­una og sá fyrir sér að hægt væri að setja sög­una á svið. Eftir að hafa fengið sam­þykki Trapp fjöl­skyld­unnar samdi hann við tvo þekkta hand­rits­höf­unda, Lindsay og Cruise, um að skrifa leik­rit byggt á bók­inni, þótt mörgu væri breytt, og nota nokkur lög úr kvik­mynd­unum. Samkvæmt upp­haf­legri áætlun átti saga Trapp fjöl­skyld­unnar að vera leik­rit, með söngvum. Síðar var ákveðið að bæta við eins og einum eða tveimur lögum við „kannski eftir Rodgers og Hammer­stein“ eins og leik­stjór­inn orð­aði það, þegar hann samdi við leikkon­una Mary Martin um að leika tit­il­hlut­verkið. Þeir Richard Rodgers og Oscar Hammer­stein II voru mjög þekktir, höfðu samið fjöld­ann allan af lögum við þekkta söng­leiki, meðal ann­ars Oklahoma!, The King and I og South Pacific.

Fljót­lega eftir að samið hafði verið við þá félaga, um eitt eða tvö lög var ákveðið að verkið, sem ekki hafði enn fengið nafn, yrði söng­leikur og þeir Rodgers og Hammer­stein myndu semja alla tón­list­ina. Þeir Lindsay og Cruise sömdu hand­ritið, eins og áður hafði verið ákveðið og Rodgers og Hammer­stein sett­ust við og sömdu lög og texta.

Hlaut frábærar viðtökur

Þann 16. nóv­em­ber 1959 var söng­leik­ur­inn, sem nú hafði fengið nafnið Sound of Music frum­sýndur á Broadway í New York eftir nokkrar for­sýn­ingar í New Haven og Boston. Skemmst er frá því að segja að verkið sló ræki­lega í gegn og þegar sýn­ingum lauk árið 1963 voru þær orðnar 1443. Gagn­rýnendur voru sam­mála um að allt hefði lagst á eitt, sögu­þráð­ur­inn, frammi­staða leik­ar­anna, dans­at­riðin og ekki síst tón­listin. Oft hafði þeim félögum Rodgers og Hammer­stein tek­ist vel upp en að mati gagn­rý­enda aldrei jafn vel og í þetta sinn. Hljóm­plata með söngvunum úr sýn­ing­unni seld­ist í rúm­lega þremur millj­ónum ein­taka. Reyndar fór svo að Sound of Music varð síð­asta sam­starfs­verk­efni þeirra Rodgers og Hammer­stein því sá síð­ar­nefndi lést nokkrum mán­uðum eftir frum­sýn­ing­una á Broadway.

Sound of Music eða Söngva­seiður eins og verkið er nefnt á íslensku var fyrst sýnt í Lundúnum 1961, sýn­ing­arnar urðu sam­tals 2.385. Upp­setn­ingin byggði að mestu á sýn­ing­unni í New York.

Sound of Music hefur verið sett á svið um víða ver­öld allt frá því að verkið kom fyrst fram, þar á meðal nokkrum sinnum hér á Íslandi, bæði í Þjóð­leik­hús­inu og Borg­ar­leik­hús­inu og enn­fremur hjá nokkrum leik­fé­lögum á lands­byggð­inni.

[adspot]

Kvikmyndin og Julie Andrews

Vel­gengni Sound of Music á Broadway fór ekki fram­hjá kvik­mynda­fram­leið­endum vest­an­hafs og í árs­lok 1962 réði 20th Century Fox fyr­ir­tækið Ernest Lehman til að skrifa kvik­mynda­hand­rit, byggt á söng­leiknum vin­sæla. Lehman hélt sig við sögu­þráð­inn en breytti þó ýmsu, einkum með það fyrir augum að auka á sjón­ræn áhrif áhorf­enda. Útisenur mynd­ar­innar voru að mestu leyti teknar í nágrenni Salzburg í Aust­ur­ríki. Leik­stjór­inn Robert Wise var ekki nýgræð­ingur, hafði meðal ann­ars leik­stýrt West Side Story nokkrum árum fyrr.

Óhætt er að segja að myndin standi og falli með frammi­stöðu leikkon­unnar í hlut­verki Marie. Nokkrar komu til greina en dag nokkurn, meðan á und­ir­bún­ingnum stóð kom hand­rits­höf­und­ur­inn Ernest Lehman til leik­stjór­ans Robert Wise og þeir fóru í Disney kvik­mynda­verið og fengu að líta á nokkra búta úr kvik­mynd­inni Mary Poppins sem átti bráð­lega að frum­sýna. Eftir að þeir félagar höfðu horft í nokkrar mín­útur sagði leik­stjór­inn: „Semjum við þessa áður en ein­hver annar upp­götvar hana.“ Þessi var breska leik­konan Julie Andrews. Leik­stjór­inn hafði séð Christopher Plummer á sviði á Broadway og þótti hann rétti mað­ur­inn til að leika Captain von Trapp.

Tökur hófust í mars 1964 og lauk 1. sept­em­ber. Útisenur mynd­ar­innar voru að mestu leyti teknar í Salzburg og nágrenni í Aust­ur­ríki en nán­ast allt annað í Fox kvik­mynda­ver­inu í Los Angeles. Julie Andrews var til­tölu­lega lítið þekkt þangað til Mary Poppins birt­ist á hvíta tjald­inu en þegar Sound of Music kom svo í kvik­mynda­húsin ári síðar varð hún heims­fræg, frum­sýn­ingin var 2. mars 1965, í New York.

Viðtökurnar

Banda­rískir gagn­rýnendur voru ekki á einu máli varð­andi mynd­ina. Sumir sögðu hana alltof væmna og syk­ur­sæta, aðrir hrósuðu henni í hástert. Dómur áhorf­enda var hins vegar afger­andi; Sound of Music sló algjör­lega í gegn og er ein vin­sælasta og mest sótta kvik­mynd allra tíma. Hljóm­plata með lög­unum úr kvik­mynd­inni hefur selst í meira en 20 millj­ónum ein­taka.

Þótt nú séu liðin 60 ár frá frum­sýn­ingu söng­leiks­ins og 54 ár síðan kvik­myndin birt­ist á hvíta tjald­inu er ekk­ert lát á vin­sæld­unum. Leikhús víða um heim svið­setja söng­leik­inn með reglu­legu milli­bili og millj­ónir sjá kvik­mynd­ina á hverju ári. Á sínum tíma þegar myndin var sýnd í Suður – Kóreu brá einn kvik­mynda­hús­eig­andi á það ráð að klippa alla söngvana burt, til að geta haft fleiri sýn­ingar á hverjum degi.

Fyr­ir­tæki í Salzburg býður upp á skoð­un­ar­ferðir í rútu­bíl á Slóðir Sound of Music, þar er myndin sýnd á skjá meðan á ferð­inni stendur, leið­sögu­mað­ur­inn leiðir fjölda­söng og þarf ekki að útbýta text­unum, þá kunna allir. Árlega fara um 50 þús­und manns í þessar ferðir. Skrifari þessa pistils fór í svona ferð fyrir tveimur árum. Af um það bil 30 far­þegum í rút­unni voru pistils­höf­undur og sessu­nautur hans (eig­in­konan) þeir einu sem aðeins höfðu séð kvik­mynd­ina einu sinni. Nokkrir í hópnum höfðu séð hana oftar en 20 sinnum, einn oftar en 30 sinnum. Leið­sögu­mað­ur­inn sagði að þetta væri síður en svo eins­dæmi.

Það má svo í lokin geta þess að þegar sýn­ingar á söng­leiknum hófust í London árið 1961 mætti 13 ára drengur með boðsmiða. Hann hafði skrifað Richard Rogers aðdá­enda­bréf og fékk mið­ann að launum. Dreng­ur­inn hét, og heitir, Andrew Lloyd Webber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár