Skógareldarnir í Ástralíu stækkuðu gatið á ósonlaginu

Reykur frá skóg­ar­eld­unum miklu sem geisuðu í Ástralíu árin 2019 og 2020 olli skyndi­legri hækkun hita­stigs og gerði gatið í óson­lag­inu að öllum lík­indum stærra. Þetta er nið­ur­staða nýrrar rann­sóknar.

Skógareldarnir í Ástralíu eyddu að minnsta kosti 5,8 milljónum hektara lands.
Skóg­ar­eld­arnir í Ástralíu eyddu að minnsta kosti 5,8 millj­ónum hekt­ara lands. Mynd: EPA

Árin 2019 og 2020 brunnu um 5,8 millj­ónir hekt­ara lands í gríð­ar­legum skóg­ar­eldum í kjöl­far mik­illa þurrka í Ástralíu. Hundruð þús­unda dýra drápust í eld­unum, aldagamlir skógar urðu að engu og fjöldi fólks missti heim­ili sín. En þetta voru ekki einu áhrif eld­anna miklu. Svaka­legur reykur fór út í and­rúms­loftið sem olli því að hita­stig hækk­aði stað­bundið um þrjár gráður. Á heims­vísu olli þetta um 0,7 gráðu hækkun hita­stigs í lægri hluta heið­hvolfs­ins. Þetta er mesta hækkun hita vegna nátt­úru­ham­fara sem orðið hefur frá því að ham­fara­gos varð í Pinatubo-eld­fjall­inu á Fil­ipps­eyjum árið 1991.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri rann­sókn sem birt var í vís­inda­tíma­rit­inu Scientific Reports. Þar segir að hita­stigs­hækk­unin hafi varað í fjóra mán­uði.

Heið­hvolfið er sá hluti loft­hjúps jarðar sem er í 10-50 km hæð frá jörðu. Venju­lega kom­ast reykagnir ekki þangað en þar sem skóg­ar­eld­arnir í Ástralíu voru svo miklir og stóðu svo lengi þá náði reyk­ur­inn í óvenju mikla hæð og söfn­uð­ust þar í reyk­ský. Í slíkum skýjum er mikið magn af kolefni sem bindur hita. Þess vegna lyft­ast þau upp í neðri hluta heið­hvolfs­ins eins og loft­belgur, segir einn höf­unda rann­sókn­ar­innar, Jim Haywood, við vís­inda­tíma­ritið Nature.

[links]Til rann­sókn­ar­innar not­uðu Haywood og félagar m.a. gögn úr gervi­tunglum sem sveimað hafa um heim­skautin. Gögnin, sem m.a. fólu í sér dreif­ingu og magn reykagna í heið­hvolf­inu, voru svo sett inn í reikni­líkön. Nið­ur­staðan styður rann­sóknir sem þegar hafa verið gerðar á hækkun hita­stigs nær jörð­inni vegna eld­anna.

Reikni­lík­önin benda til að vegna efna­hvarfa milli reyks­ins og ósons í and­rúms­loft­inu hafi skóg­ar­eld­arnir stækkað gatið í óson­lag­inu sem er yfir suð­ur­pólnum.

„Ári áður en eld­arnir hófust var lítið gat á óson­lag­inu,“ segir Haywood við Nature. „Árið 2020 var okkur nokkuð brugðið því það var komið mjög, mjög djúpt gat í óson­lagið.“ Stækk­unin varði í fimm mán­uði.

Eftir því sem óson­lagið er þynnra því meira af útfjólu­bláum geislum sólar ná til jarðar. Slík geislun veldur skaða á öllu líf­ríki, þar á meðal á heilsu fólks.

Haywood segir að það sé enn ekki full­ljóst hvernig sam­spil reyks og ósons sé. Það skýrist af því að fjöl­mörg efni geta verið í reyk og af mis­jöfnu magni. Hann segir mik­il­vægt að rann­saka þetta frekar vegna þess að vís­inda­menn telja að með frek­ari lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum muni skóg­ar­eldar verða tíð­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár