Útvarpsgjaldið afnumið í Frakklandi

Franska þingið sam­þykkti í nótt að afnema útvarps­gjaldið, sem notað hefur verið til að fjár­magna France Télé­vision og Radio France ára­tugum saman. Frakk­lands­for­seti hafði lofað því að afnema gjaldið í kosn­inga­bar­áttu sinni og hefur lof­orðið nú verið efnt.

Afnám útvarpsgjaldsins var á meðal loforða sem Emmanuel Macron Frakklandsforseti setti fram í baráttu sinni fyrir endurkjöri í embætti fyrr á þessu ári.
Afnám útvarps­gjalds­ins var á meðal lof­orða sem Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti setti fram í bar­áttu sinni fyrir end­ur­kjöri í emb­ætti fyrr á þessu ári. Mynd: EPA

Efri deild franska þjóð­þings­ins hefur sam­þykkt að afnema útvarps­gjaldið sem notað er til að fjár­magna rekstur franskra rík­is­fjöl­miðla, en afnám útvarps­gjalds­ins var eitt af kosn­inga­lof­orðum Emmanu­els Macron Frakk­lands­for­seta í nýlega afstöðnum for­seta­kosn­ingum í land­inu.

Þingið tók þessa ákvörðun í nótt, með 196 atkvæðum gegn 147, en umræður um málið stóðu yfir fram yfir mið­nætti og voru nokkuð heitar, sam­kvæmt end­ur­sögn breska blaðs­ins Guardian og umfjöllun vef­mið­ils­ins Deadline. Áður hafði neðri deild þings­ins sam­þykkt málið fyrir rúmri viku síðan.

Stjórn­ar­and­stæð­ingar úr röðum vinstri­manna í efri deild­inni settu fram áhyggjur af fram­tíð­ar­fjár­mögnun og sjálf­stæði almanna­sjón­varps- og útvarps í land­inu.

Sumir þing­menn á hægri kant­inum voru jafn­framt gagn­rýnir á umræð­una í þing­inu, sögðu hana hafa verið laka að gæðum og að rétt væri að eiga almenni­legt sam­tal um frek­ari yfir­haln­ingu á fyr­ir­komu­lagi rík­is­fjöl­miðl­unar í Frakk­landi.

Marine Le Pen, sem bauð sig fram gegn Macron í for­seta­kosn­ing­unum, var með það á stefnu­skrá sinni ganga enn lengra og einka­væða rík­is­fjöl­miðl­ana í Frakk­landi, sem eru sjón­varps­sam­steypan France Télé­visions og útvarps­stöðvar sem reknar eru undir hatti Radio France.

Flatt 19 þúsund króna gjald á alla sem eiga sjónvarp

Franska útvarps­gjaldið hefur verið 138 evrur, jafn­virði rúm­lega 19 þús­und íslenskra króna, og hefur verið greitt af öllum þeim heim­ilum sem skráð eru fyrir sjón­varps­tæki í Frakk­landi. Það eru um 23 millj­ónir heim­ila um þessar mundir. Gjaldið var fyrst sett á árið 1933 til þess að fjár­magna almanna­út­varp og var svo útvíkkað til þess að fjár­magna sjón­varps­út­send­ingar árið 1946.

Það verður ekki inn­heimt í októ­ber næst­kom­andi eins og stóð til, og þeir sem höfðu ákveðið að greiða það snemma munu fá end­ur­greitt.

Í frétt Guardian kemur fram að menn­ing­ar­mála­ráð­herr­ann Rima Abdul Malak hafi komið því á fram­færi í umræð­unum að rík­is­stjórnin myndi standa vörð um fjár­mögnun rík­is­fjöl­miðl­anna á meðan að áætl­anir lengra inn í fram­tíð­ina yrðu teikn­aðar upp.

Hún sagði að ákveðið hefði verið að láta ákveðið brot af inn­heimtum virð­is­auka­skatti renna til rekst­urs rík­is­fjöl­miðl­anna til skamms tíma, alls um 3,7 millj­arða evra, sem er svipað mikið og útvarps­gjaldið hefur skilað í rík­is­kass­ann árlega.

Gagn­rýnendur benda á að þetta sé ein­ungis tíma­bundin fjár­mögnun fram til árs­loka árið 2024. Alls óvíst sé hvernig til standi að fjár­magna rík­is­fjöl­miðla Frakk­lands að því loknu og mögu­lega verði slag­kraft­ur­inn í starf­semi þeirra háður duttl­ungum stjórn­mála­manna hverju sinni.

Framkvæmdastjóri EBU segist hafa áhyggjur

Noel Curran, fram­kvæmda­stjóri Samtaka evr­ópska sjón­varps­stöðva (EBU), hefur áhyggjur af stöð­unni, þar sem óljóst sé hvernig sjálf­stæði frönsku rík­is­fjöl­miðl­anna verði tryggt.

Hann segir í sam­tali við fjöl­mið­il­inn Deadline að þessar breyt­ingar í Frakk­landi, og sömu­leiðis end­ur­skoðun á fjár­mögnun BBC sem nú stendur yfir í Bret­landi, geti haft áhrif í öðrum ríkjum, þar sem Frakk­land og Bretland státi af stærstu almanna­þjón­ustu­fjöl­miðlum álf­unnar.

Samkvæmt EBU voru heild­ar­tekjur evr­ópska rík­is­fjöl­miðla 35,5 millj­arðar evra árið 2020 og höfðu tekj­urnar dreg­ist saman um 7 pró­sent að raun­virði á fimm ára tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár