Samherji endurgreiðir hlutabótagreiðslur í ríkissjóð

Samherji ákvað að setja starfs­menn í tveimur félögum í eigu sam­stæð­unnar á hluta­bætur. Nú hefur hún ákveðið að skila þeim fjár­munum í rík­is­sjóð vegna þess að „veiðar, vinnsla og sala hafa gengið betur en menn þorðu að vona“.

Björgólfur Jóhannsson, tímabundinn forstjóri Samherja.
Björgólfur Jóhanns­son, tíma­bund­inn for­stjóri Samherja. Mynd: Kjarninn.

Sjáv­ar­út­vegs­ris­inn Samherji hefur ákveðið að end­ur­greiða rík­is­sjóði hluta­bætur sem greiddar voru greiddar til starfs­manna tveggja dótt­ur­fé­laga sam­stæð­unnar, Samherja Íslands og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga.

Kjarn­inn greindi frá því 10. apríl að Sam­herjasam­stæðan, sem er stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins sem átti 111 millj­arða króna í eigið fé í lok árs 2018, hefði sett starfs­menn í fisk­vinnslum Sam­herja og dótt­ur­fé­lags­ins Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga á hluta­bóta­leið­ina.

Í til­kynn­ingu á vef Samherja segir að fyr­ir­tækin Samherji Ísland og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyrar hafi þurft að minnka starfs­hlut­fall starfs­manna í vinnslu á Akureyri og á Dalvík eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn hófst og voru þessir starfs­menn um tíma í 50 pró­sent starfi. Breytt starfs­hlut­fall hafi meðal ann­ars til komið vegna krafna stjórn­valda um sótt­varnir en mark­miðið hafi verið að minnka líkur á að smit bær­ist á milli fólks og tryggja að starfs­fólk gæti unnið í sem mestu öryggi.

[adspot]Stjórn­endur Samherja Íslands og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyrar hafi talið „sjálf­sagt að nýta hluta­starfa­leið­ina þar sem um var að ræða lög­bundið úrræði stjórn­valda. Það var svo talið jafn eðli­legt að láta fyr­ir­tækin sjálf bera kostn­að­inn, af þeirri röskun sem varð á starf­semi þeirra, þegar ljóst var að rekst­ur­inn gekk betur en útlit var fyrir í upp­hafi far­ald­urs­ins“.

Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Samherja, segir að betur hafi tek­ist að vinna úr þeirri stöðu sem var uppi í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins en útlit var fyrir í byrjun. „Veiðar, vinnsla og sala hafa gengið betur en menn þorðu að vona. Af þeim sökum hafa þessi fyr­ir­tæki ákveðið að nýta ekki hluta­bóta­leið­ina og greiða starfs­fólki að fullu. Félögin munu því bera allan kostnað sem féll til vegna trufl­unar á starf­sem­inni í þágu sótt­varna.“

Mikil reiði í samfélaginu

Samherji bæt­ist þar með í hóp fjöl­margra ann­arra stöndugra fyr­ir­tækja sem ákváðu að setja starfs­menn á hluta­bætur en hafa ákveðið að annað hvort end­ur­greiða þær eða í það minnsta hætta að láta starfs­menn sína þiggja þær. Á meðal fyr­ir­tækja sem tekið hafa þá ákvörðun eru Skelj­ungur, Hagar, Festi, Origo, Brim og Össur.

Mikil reiði greip um sig í sam­fé­lag­inu í síð­ustu viku þegar opin­berað var að fyr­ir­tæki sem sum hver eru rekin með miklum hagn­aði, eiga mikið eigið fé, ætla að greiða arð eða eru með virkar áætl­anir um end­ur­kaup á eigin bréfum hefðu nýtt hluta­bóta­leið­ina.

[links]For­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­innar lýsti því meðal ann­ars yfir að það væri veru­lega óánægt með þessa stöðu og að rétt­ast væri að gagn­sæi ríkti um hvaða fyr­ir­tæki hefðu nýtt sér þetta úrræði stjórn­valda um að semja við starfs­fólk um minnkað starfs­hlut­fall.

Fyrr í dag var greint frá því að Per­sónu­vernd telji ekk­ert í lögum um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga sem komi í veg fyrir að Vinnu­mála­stofnun birti eða afhendi upp­lýs­ingar um það hvaða fyr­ir­tæki hafa nýtt sér hluta­bóta­leið­ina svoköll­uð­u.

Per­sónu­vernd tekur þó ekki afstöðu til þess hvort birt­ing þess­ara upp­lýs­inga sé lög­mæt, þar sem beiðni um birt­ingu þurfi að skoð­ast í ljósi upp­lýs­inga­laga. Þetta kemur fram í svari Per­sónu­verndar til Vinnu­mála­stofn­unar vegna bréfs sem Vinnu­mála­stofnun sendi á dög­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár