Þegar Hitler bauð Íslendingum í sundknattleik

Íslend­ingar sendu sund­knatt­leikslið til leiks á Ólymp­íu­leika nas­istana í Berlin 1936. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur rýndi í magn­aða sögu íslenska sund­knatt­leiks­lands­liðs­ins.

Um 80 ár eru síðan lands­lið Íslands í sund­knatt­leik keppti á ólymp­íu­leik­unum í Berlín í Þýska­landi nas­ism­ans. Þátttaka liðs­ins orsak­að­ist af áhuga þýskra stjórn­valda á hinum nor­ræna kyn­þætti en aðstæður hér­lendis til sund­knatt­leiks voru lítið betri en þær þegar Jamaíku­menn kepptu í bobbs­leða­keppn­inni á vetr­ar­ólymp­íu­leik­unum í Calgary 1988. Þetta er saga af tíma þegar Íslend­ingar voru fyrst að kynn­ast stóra sviði íþrótt­anna.

Handbolti í vatni

Sund­knatt­leikur á rætur sínar að rekja til Bret­lands á 19. öld og þar voru fyrst skrif­aðar sam­ræmdar reglur fyrir leik­inn árið 1877. Átta árum síðar var leik­ur­inn við­ur­kenndur af breska sund­sam­band­inu. Leik­ur­inn náði strax mik­illi útbreiðslu og var tek­inn inn á aðra sum­ar­ólymp­íu­leik­ana, árið 1900 í París. Síðan þá hefur verið keppt í greinni á hverjum ein­ustu ólymp­íu­leikum í karla­flokki og árið 2000 var kvenna­flokknum bætt við. Íþróttin er Íslend­ingum nokkuð fram­andi í dag og flestir sjá hana aldrei nema rétt bregða fyrir í sjón­varps­yf­ir­liti á ólymp­íu­leik­unum. Fæstir þekkja regl­urnar utan þess að liðin eiga að reyna að koma knett­inum í mark and­stæð­ings­ins.

Sumir hafa sagt sund­knatt­leik vera nokk­urs konar „hand­knatt­leik í vatni“. Sjö leik­menn eru inná hjá hvoru liði, þar af einn mark­vörður, og bæði sókn­ar­leikur og varn­ar­leikur spil­ast svipað í báðum íþróttum. Líkt og í hand­knatt­leik er mikið návígi í sund­knatt­leik og leik­irnir geta orðið mjög grófir og jafn­vel ofbeld­is­fullir. Leikmenn klæð­ast sér­stökum sund­hettum sem vernda eyrun því sárs­auka­fullt getur verið að fá knött­inn í höf­uðið. Dæmi eru um að menn tak­ist á, sparki, klípi, gefi oln­boga­skot, togi í og kaf­færi hvorum öðrum í leiknum. Sund­knatt­leikur er ákaf­lega lík­am­lega krefj­andi íþrótt. Hún útheimtir bæði að kepp­endur séu færir sund­menn og leiknir með knött­inn. Leikmenn eru alltaf annað hvort á sundi eða að troða mar­vaða. Auk þess má aldrei taka bolt­ann með báðum höndum og aldrei dýfa honum undir vatns­yf­ir­borðið.

Þó að Bretar hafi skapað leik­inn og haft yfir­burði fyrstu ára­tug­ina þá hellt­ust þeir fljótt úr lest­inni. Seinustu gull­verð­laun þeirra komu árið 1924 og frá árinu 1956 hafa þeir ein­ungis einu sinni kom­ist á leik­ana. Þjóðir suður og austur Evrópu tóku við kefl­inu og eru þær lang­sterk­ustu í dag. Ung­verjar eru sig­ur­sælasta liðið á ólymp­íu­leik­unum með 9 gull­verð­laun, þeir voru sam­fleytt á verð­launa­palli á árunum 1928-1980. Júgóslav­nesku ríkin hafa svo unnið flest verð­laun á heims­meist­ara­mótum. Auk þeirra hafa Sov­ét­menn, Spán­verjar og Ítalir verið sig­ur­sælir í gegnum tíð­ina.

Áhugi nasistanna á Íslandi

Sú hóp­í­þrótt sem Íslend­ingar hafa náð bestum árangri í er vita­skuld hand­knatt­leikur. Sjö sinnum hefur karla­lands­liðið kom­ist á ólymp­íu­leik­ana og meira að segja unnið silf­ur­verð­laun á leik­unum í Peking 2008. Fjöldi ein­stak­linga hafa kom­ist á leik­ana í hinum ýmsu greinum en ekk­ert annað keppn­islið hefur keppt, hvorki á sumar né vetr­ar­leikum, nema íslenska sund­knatt­leiksliðið árið 1936. Sum­ar­leik­arnir árið 1936 voru eins og frægt er orðið haldnir í Berlín í Þýska­landi nas­ism­ans og því mjög umdeildir í ljósi kyn­þátta og hern­að­ar­stefnu Hitlers. En Berlín var valin árið 1931, tveimur árum áður en nas­ist­arnir komust til valda. Ein­hverjar þjóðir snið­gengu leik­ana en Íslend­ingar ákváðu að taka þátt þrátt fyrir deilur hér á landi og nokkurar tregðu rík­is­stjórn­ar­innar, t.d. við að útvega gjald­eyr­is­leyfi. Leik­arnir voru ákaf­lega þýð­ing­ar­miklir fyrir Íslend­inga þar sem þetta var í fyrsta skipti sem þeir kepptu sem full­valda þjóð undir eigin fána. Íslend­ingar höfðu áður keppt á ólymp­íu­leikum, en þá undir fána Dan­merkur og eng­inn hafði keppt frá árinu 1912.

Viðvera Íslend­inga var kær­komin fyrir þýsku nas­ista­stjórn­ina. Það var ekk­ert laum­ung­ar­mál að Hitler hugð­ist nota leik­ana til að sýna fram á yfir­burði hins germ­anska aríska kyn­stofns og þeir litu svo á að Íslend­ingar féllu vel inn í það mengi. Vanda­málið var hins vegar að á Íslandi bjuggu ein­ungis um 115.000 sálir og lítið um íþrótta­fólk á heims­mæli­kvarða. Aðstaða til íþrótta­iðk­unar var einnig bág­borin hér sem og skortur á vel mennt­uðum þjálf­urum. Því var brugðið á það ráð að bjóða Íslend­ingum að taka þátt í sund­knatt­leik til að stækka íslenska hóp­inn til muna því það myndi líta vel út á setn­ing­ar­at­höfn­inni. Þetta stækk­aði íslenska hóp­inn úr 4 upp í 15 auk þjálf­ara og far­ar­stjóra. Alls buðu Þjóð­verjar um 50 Íslend­ingum að koma á leik­ana, 30 af þeim íþrótta­kenn­arar og nemar sem boðið var í náms­ferð af „hinni arísku íþrótta­þjóð í Mið-Evrópu“. Við fyrstu sýn hefði það legið bein­ast við að bjóða hand­knatt­leiks­lands­lið­inu á leik­ana. Leik­arnir 1936 voru þeir fyrstu þar sem keppt var í hand­knatt­leik, okkar þjóð­ar­hóp­í­þrótt. En sund­knatt­leiks­mótið var mun stærra og rót­grón­ara á ólymp­íu­leik­unum og því í raun meiri heiður að vera boðið á það. En Íslend­ingum beið þá það verk­efni að koma saman liði sem ekki yrði hlegið að.

Strákarnir okkar

Nátt­úru­legar aðstæður eru ákaf­lega hag­stæðar fyrir sund­iðkun á Íslandi, vegna vatns­magns og jarð­varma. Tilbúnar sund­laugar og nátt­úru­legar eru sam­an­lagt yfir 150 tals­ins í dag. En á fjórða ára­tug sein­ustu aldar var aðstaða kepp­enda í sundi og sund­knatt­leik ákaf­lega bág­borin. Mesta gróskan var í Mos­fells­sveit við Álafoss í í Varmá. Þar stóð ull­ar­kóng­ur­inn Sigurjón Pét­urs­son (í Álafossi) að íþrótta­skóla frá árinu 1928 og keppnum sem voru kall­aðar fána­dagar ár hvert. Sigurjón, sem var mik­ill áhuga­maður um íþróttir, hafði sjálfur keppt á ólymp­íu­leik­unum í Stokk­hólmi árið 1912 í grísk-róm­verskri glímu. Í heitu stíflu­lón­inu var keppt í sundi, dýf­ingum og sund­knatt­leik. Þar kepptu íslenskir sund­knatt­leiks­menn m.a. við enska skip­verja af póst­skip­inu Rosemary árið 1930. Sund­knatt­leikur var æfður í nokkrum sund­fé­lögum hér á landi en aug­ljós skortur á inni­sund­laug haml­aði iðkun. Vandræði með bygg­ingu og fjár­mögnun Sund­hallar Reykja­víkur hjálp­aði ekki, en það tók tæp­lega ára­tug að reisa húsið. Fyrir utan Álafoss voru laug­arnar við Sund­lauga­veg í Laug­ar­dal einn helsti æfinga­staður fyrir sund­knatt­leiks­menn.

Þegar Íslend­ingar fengu boð um að senda sund­knatt­leikslið til Berlínar um ári fyrir leik­ana blasti annað vanda­mál við, reynslu­leysið. Íslend­ingar höfðu aldrei keppt erlendis áður þannig að stökkva út í djúpu laug­ina með bestu sund­knatt­leiks­þjóðum heims á stærsta sviði heims var hálf óraun­veru­legt. Á sein­ustu mán­uðum fyrir leik­ana fékk liðið þó að æfa sig inni í ókláraðri Sund­höll­inni (hún var opnuð árið 1937). Þrír bræður, Jón, Ólafur og Erlingur Páls­synir, voru fengnir til að þjálfa og sjá um far­ar­stjórn fyrir íslenska liðið. Allir voru þeir miklir sund­menn og Jón einn helsti sund­fröm­uður lands­ins sem stofn­aði m.a. sund­fé­lagið Ægir árið 1927. Erlingur, sem var fyrsti yfir­lög­reglu­þjónn Íslands, sá um far­ar­stjórn og frétta­flutn­ing fyrir liðið.

Liðið var valið úr þremur sund­fé­lögum í Reykja­vík, Ægi, K.R. og Ármanni. Margir af lands­liðs­mönn­unum áttu það sam­eig­in­legt að hafa bæði reynslu úr sundi og íslenskri glímu sem þótti einkar hent­ugt fyrir lík­am­lega návígið í sund­knatt­leiknum. Margir bestu sund­menn lands­ins voru valdir í liðið, þar á meðal Jón Ingi Guð­munds­son, Jón D. Jónsson og Jónas O. Hall­dórs­son. Með­al­aldur liðs­ins var ekki hár og leik­menn á aldr­inum 18-28 ára. Sund­menn­irnir urðu sam­rýmdur hópur og færri komust á leik­ana en vildu. Einungis 11 leik­menn komust í hóp­inn og því urðu sund­kapp­arnir Haraldur Sæmunds­son og Ragnar Þor­gríms­son eftir í landi en þeir höfðu æft með lið­inu í und­ir­bún­ingnum. Þegar liðið lagði af stað í ólymp­íu­för­ina með skip­inu Detti­fossi þann 16. júlí heiðr­uðu þeir félag­ana tvo. „Lifi Halli Sæm og lifi Ragnar Þor­gríms­son!“ Þá var hrópað fer­falt húrra fyrir þeim. Svo lagði fyrsta ólymp­íulið Íslands af stað yfir hafið.

Skömm og hróður í Berlín

Ferðin tók viku með við­komu í Vest­manna­eyjum og enska bænum Hull. Um borð í skip­inu var hvergi slegið slöku við og íþrótta­menn­irnir stund­uðu kast-, göngu- og hlaupa­æf­ingar á þil­far­inu. Þar var einnig heit laug og gufu­bað sem nýtt­ist vel. Detti­foss kom að höfn í Hamborg þann 22. júlí og þar tók á móti þeim Lutz Koch, trún­að­ar­maður Íslands á leik­unum. Þá var tek­inn lest til Berlínar og í ólymp­íu­þorpið. Setn­ing­ar­at­höfn leik­anna þann 1. ágúst var notuð sem áróð­urstæki fyrir Hitler. Eins og alræmt er orðið heils­aði íslenski hóp­ur­inn að nas­istasið á athöfn­inni, með útréttan lófa. Fáar aðrar þjóðir gerðu þetta og t.a.m. engin önnur Norð­ur­landa­þjóð. Menn hafa velt vöngum yfir því af hverju þetta var gert. En það var að und­ir­lagi far­ar­stjór­anna. Annars vegar dr. Björns Björns­sonar, aðal­far­ar­stjóra sem hallur var undir þriðja ríkið, og hins vegar Ásgeirs Ein­ars­sonar. Íþrótta­mönn­unum var í raun fyr­ir­skipað að heilsa að nas­istasið allan tím­ann meðan þeir voru í ólymp­íu­þorp­inu og voru margir þeirra ósáttir við það. Fregnir af athæf­inu voru birtar hér á landi við mis­jafnar und­ir­tektir.

Fyrir leik­ana fengu Íslend­ingar tæki­færi til að reyna sig gegn alvöru sund­knatt­leiksliðum. Þeir kepptu við ýmis sund­fé­lög frá Berlín s.s. Spandau, Schöneberg, Hellas og Weissennsee. Mótherj­arnir voru sterkir og íslenska lið­inu gekk illa í upp­hafi. Spila­mennska þeirra fór þó batn­andi með hverjum leiknum og í sein­asta leiknum náðu þeir jafn­tefli. Þetta var góður und­ir­bún­ingur fyrir keppn­ina sjálfa sem hófst þann 8. ágúst í Olymp­i­ap­ark Schwimmstadion, glæsi­legum sund­leik­vangi sem hafði verið byggður fyrir leik­ana.

Keppt var í fjórum riðlum og Íslend­ingar voru í riðli númer 4. Fyrsti leik­ur­inn var gegn Sviss­lend­ingum. Íslend­ingar höfðu lent í því að missa besta leik­mann sinn, Jónas O. Hall­dórs­son, í hita­sótt þremur dögum fyrir leik. Hann hafði legið rúm­fastur en að morgni upp­haf­s­leiks­ins var ákveðið að Jónas skildi spila. Snemma færð­ist harka í leik­inn og menn tók­ust heift­ar­lega á. Tveir voru reknir upp úr laug­inni og Íslend­ingum fannst dóm­ar­inn mjög vil­hallur Sviss­lend­ingum. Sviss­lend­ingar höfðu yfir­hönd­ina en Íslend­ingar náðu að skora eitt mark og það var sjálfur Jónas sem náði því. Loka­tölur 7-1 fyrir Sviss. Annar leik­ur­inn var dag­inn eftir gegn Svíþjóð en Jónas spil­aði þá ekki með. Nú var allt annað upp á ten­ingnum og leik­ur­inn þótti ein­stak­lega prúð­mann­lega leik­inn af beggja hálfu. En yfir­burðir Svíanna voru algjörir og leik­ur­inn end­aði 11-0. Loka­leik­ur­inn var þann 10. ágúst gegn Aust­ur­ríki. Mikill áhugi var fyrir leiknum og leik­vang­ur­inn troð­fullur. Ekki nóg með það þá var leik­ur­inn kvik­mynd­aður í heild sinni. Þetta var best spil­aði leik­ur­inn af hálfu Íslend­inga en mun­ur­inn var þó tölu­verður á lið­unum. Loka­tölur 6-0 fyrir Aust­ur­ríki en Íslend­ingar fengu mikla athygli og hrós fyrir leik sinn.

Þetta reynd­ist sein­asti leikur íslenska sund­knatt­leiksliðið á ólymp­íu­leik­unum og þeir end­uðu mótið neðstir í riðl­inum með marka­töl­una 1-24. Þeir voru þó ekki slakasta liðið á mót­inu því að Malt­verjar voru með verri marka­tölu. Ung­verjar unnu keppn­ina eftir að hafa mætt Þjóð­verjum í úrslita­leik en Belgar hlutu brons­verð­laun. Þrátt fyrir léleg úrslit íslenska liðs­ins vöktu þeir athygli og menn höfðu skiln­ing á stöðu íþrótt­ar­innar hér á landi. Lutz Koch sagði:

„Íslend­ingar geta og kom­ist langt í sundi. Það sýndi hinn mikið umtal­aði sund­knatt­leikur þeirra í Berlín. Þeir hafa til þess góða lík­ams­hæfi­leika. Með góðri þjálfun gætu þeir jafn­ast á við sund­flokka ann­ara þjóða. Í Berlín tóku menn til­lit til að íþrotta­grein þessi er aðeins tveggja ára gömul á Íslandi, svo hún er þar á byrj­un­ar­stigi.“

Framtíð sundknattsleiks á Íslandi

Áhugi lands­manna á sund­knatt­leik dó ekki alveg strax út eftir leik­ana 1936. Ólymp­íu­far­arnir sýndu íþrótt­ina á næstu árum bæði að Álafossi og í nýopn­aðri Sundhöll Reykja­víkur. Íslend­ingar gátu séð „Bestu sund­menn lands­ins leika listir í vatn­inu.“ Síðan þá hefur áhugi á sund­knatt­leik minnkað og á köflum legið í algerum dvala. Sund­knatt­leiks­fé­lag Reykja­víkur og Sund­fé­lag Hafn­ar­fjarðar hafa þó haldið uppi ein­hverri starf­semi á und­an­förnum árum og stór hluti iðk­enda hafa verið útlend­ingar. Óvíst er hvort að greinin nái nokkurn tím­ann vin­sældum hér á landi aftur en hún á vissu­lega sinn sess í íþrótta­sögu Íslands. Hefð­bundnar sund­greinar lifa þó mjög góðu lífi hér á landi og það sýnir frá­bær árangur Hrafn­hildar Lúth­ers­dóttur og Eyglóar Gúst­afs­dóttur á ólymp­íu­leik­unum í Ríó svo um munar.

Íslenska sundknattleiksliðið 1936

Markverðir

  • Jón Ingi Guð­munds­son (1909-1989) – Sund­kóngur og sund­kenn­ari
  • Pétur Snæland (1918-2002) – Iðn­fröm­uður

Útileikmenn

  • Jón D. Jónsson (1908-1973) – Sund­kenn­ari og mál­ara­meist­ari
  • Jónas O. Hall­dórs­son (1914-2005) – Sund­kóngur, Sund­kenn­ari og eig­andi gufu­baðs­stofu
  • Magnús B. Pálsson (1912-1990) – Gler­slíp­un­ar­meist­ari
  • Úlfar Þórð­ar­son (1911-2002) – Augn­læknir
  • Þor­steinn Hjálm­ars­son (1911-1984) – Sund­þjálf­ari og hús­gagna­smíða­meist­ari
  • Þórður Guð­munds­son (1908-1988) – Skó­kaup­maður

Varamenn

  • Logi Ein­ars­son (1917-2000) – Hæstar­rétt­ar­dóm­ari
  • Rögn­valdur K. Sig­ur­jóns­son (1918-2004) – Píanó­leik­ari
  • Stefán Jónsson (1918-2011) – Sýn­ing­ar­stjóri í Aust­ur­bæj­ar­bíói
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ólympíuleikar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár