Ný og ódýrari Tesla, hjólhýsi sem Breiðholt alþýðunnar og Frakkland 2016

Það var nóg af gæða­efni í boði á Kjarn­anum síð­ustu daga.

Á gaml­árs­dag fór Magnús Hall­dórs­son yfir ítar­lega spá The Economist um hvað muni ger­ast á árinu 2016 í heimi við­skipta og efna­hags­mála. Þar kom meðal ann­ars fram að aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn í Brasilíu mun vaxa um ell­efu pró­sent vegna Ólymp­íu­leik­ana á næsta ári, hvergi verður meiri hag­vöxtur í en í Laos, átta pró­sent, og sala á raf­magns­bílum mun stór­aukast, einkum eftir að ný og ódýr­ari teg­und frá Tesla Motors, Model 3, verður kynnt í mars­mán­uði.

Um helg­ina birt­ist grein eftir Guð­mundur Gunn­ars­son þar sem hann spurði hvar almenn­ingur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ætti að búa? „Eru iðn­að­ar­hverfi, gámar og hjól­hýsi nýja „Breið­holtið“ fyrir íslenska alþýðu ?,“ spurði Guð­mundur.

Það tók Dani langan tíma að sætta sig við drottn­ing­ar­mann­inn Hinrik, sem nú ætlar að draga sig í hlé. Borgþór Arn­gríms­son, frétta­rit­ari Kjarnans í Kaup­manna­höfn, sagði okkur allt um franska diplómatann sem varð prins í Danmörku.

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða ávöxt­uð­ust um rúm­lega tíu pró­sent á síð­asta ári. En þegar horft er yfir lengra tíma­bil, hefur raun­á­vöxt­unin ekki verið svo góð, að því er fram kemur í skýrslu OECD. Friðrik Ind­riða­son fór yfir málið í frétta­skýr­ingu.

Svo er stórt ár framundan í Frakk­landi. Freyr Eyj­ólfs­son, frétta­rit­ari Kjarnans þar í landi, lagð­ist yfir það helsta sem er framundan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár