Ár rafbíla og efnahagslegra árekstra framundan

Hvað ger­ist á árinu 2016 í heimi við­skipta og efna­hags­mála? Magnús Hall­dórs­son rýndi í ítar­lega spá The Economist.

Aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn í Brasilíu mun vaxa um ell­efu pró­sent vegna Ólymp­íu­leik­ana á næsta ári, hvergi verður meiri hag­vöxtur í en í Laos, átta pró­sent, og sala á raf­magns­bílum mun stór­aukast, einkum eftir að ný og ódýr­ari teg­und frá Tesla Motors, Model 3, verður kynnt í mars­mán­uði.

Þetta er meðal þess sem má lesa úr spá The Economist fyrir árið 2016, en í sér­riti um horfur á árinu 2016 er farið ítar­lega yfir stöðu mála í heimi efna­hags­mála, og spáð fyrir um gang mála í hinum ýmsu löndum og atvinnu­vegum.

Þau tíu ríki sem munu sýna mesta hag­vöxt­inn telj­ast fæst til þró­aðra ríkja. Vöxt­ur­inn verður mestur í Asíu en einnig í Afr­íku­ríkjum sem eru byrjuð að brjót­ast út úr mik­illi almennri fátækt.

Þau tíu ríki sem munu sýna mestan hag­vöxt á næsta ári eru eft­ir­far­andi:

1. Laos – 8 pró­sent

2. Túrk­menistan – 8 pró­sent

3. Kambódía – 7,5 pró­sent

4. Síerra Leone – 7,5 pró­sent

5. Mósambík – 7,3 pró­sent

6. Mjanmar (Búrma) – 7,2 pró­sent

7. Bútan – 7,1 pró­sent

8. Kongó – 7,1 pró­sent

9. Indland – 7,1 pró­sent

10. Fíla­beins­ströndin – 7 pró­sent

Helstu tíð­indin á list­anum eru þau að Kína verður ekki meðal tíu helstu vaxt­ar­ríkja á kom­andi ári, en ris­inn á list­anum, Indland, mun halda miklu hag­vaxt­ar­skeiði sínu áfram. Und­ir­liggj­andi þættir sem munu hafa áhrif á hag­vaxt­ar­þró­un­ina í heim­inum eru styrk­ing Banda­ríkja­dals, ekki síst þar sem stýri­vextir voru nýlega hækk­aðir úr 0,25 pró­sentum í 0,5 pró­sent, og lágt hrá­vöru­verð. Þessi staða er hag­felld sumum þjóðum, meðal ann­ars mörgum á list­anum hér að ofan, en önnur verða í vand­ræðum. Meðal ann­ars ríki eins og Brasilía. Hag­vöxtur í þeirri Suður-Ameríku verður 1,3 pró­sent, sam­kvæmt spánni, en í Brasilíu verður hann nei­kvæður um 0,7 pró­sent. Það munar um minna fyrir álf­una alla.

Túrk­menistan er hástökkvari á list­anum en vax­andi gas­fram­leiðslu og utan­rík­is­við­skipti sem henni teng­ist er ástæðan fyrir miklum vexti þar.

Asía vex mest

Mesta vaxt­ar­svæðið í ver­öld­inni verður í Asíu en hag­vöxtur þar verður 5,4 pró­sent, ef litið er fram­hjá Japan. Þar hefur staða mála lengi ein­kennst af litlum hag­vexti en þó er gert ráð fyrir að vöxtur á kom­andi ári verði 1,7 pró­sent.

Í Evrópu verður frekar lít­ill miðað það sem hann þarf að vera, sam­kvæmt umfjöllun The Economist. Í Vestur-Evrópu, þar sem staða efna­hags­mála hefur verið afar ólík vanda­mál­unum í Suður-Evrópu, þá verður hag­vöxtur um 1,8 pró­sent. Í Austur-Evrópu verður enn minni vöxtur, 1,2 pró­sent, og krefj­andi tímar framundan. Ekki síst vegna áhættu sem snýr að póli­tískum átökum og flótta­mönnum. Ef ekki verður haldið vel á spil­unum gæti skap­ast mik­ill vandi í Austur-Evrópu, að því er segir í umfjöllun The Economist.

Mið-Aust­ur­lönd og Norður-Afríka, sem glíma við stríðs­á­tök þessi miss­erin og mikil áhrif vegna þeirra, munu þrátt fyrir allt vaxa í efna­hags­legu til­liti. Hag­vöxtur verður um 3,2 pró­sent, en í Suður-Afríku verður enn meiri vöxtur, 3, 6 pró­sent.

Banda­ríkin og Kanada sigla lygnan stöðugan sjó, og verður þar ásætt­an­legur hag­vöxtur upp á 2,5 pró­sent.

Hægagangur á Norðurlöndunum nema í Svíþjóð og Íslandi

Hæga­gangur verður á Norð­ur­lönd­unum á næsta ári miðað við oft áður. Hag­vöxtur í Danmörku verður 1,4 pró­sent og Norðmenn halda áfram að finna fyrir lágu hrá­vöru­verði, einkum á olíu, og verður hag­vöxtur í Noregi 1,2 pró­sent. Í Finn­landi verður hag­vöxtur 1,4 pró­sent, en Svíar halda áfram að vaxa til­tölega hratt miðað við flestar aðrar Evr­ópu­þjóðir, en sam­kvæmt spá The Economist verður hag­vöxt­ur­inn 2,9 pró­sent þar í landi. Því er einkum þakkað sterkum grunni í iðn­aði, ekki síst á útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins.

Til sam­an­burðar spáir Hagstofa Íslands 3,5 pró­sent hag­vexti á Íslandi á kom­andi ári.

Rafmagnsbílar

En hag­vaxt­ar­töl­urnar segja ekki alla sög­una þegar gang­ur­inn í efna­hags­málum heims­ins er ann­ars vegar. Samkvæmt spá The Economist verður kom­andi ár sér­stak­lega stórt og mikið fyrir raf­magns­bíl­ara­m­leið­endur. Gert er ráð fyrir að sala á raf­magns­bílum muni stór­aukast, og þar verður lykilaugna­blikið þegar Tesla Motors kynnir nýjasta bíl­inn, Tesla Model 3, í mars. Sá bíll kemur svo í sölu árið 2017 og er gert ráð fyrir að verðið á honum verði frá 35 þús­und Banda­ríkja­dölum, eða sem nemur 4,5 millj­ónum miðað við núver­andi gengi. Þetta augna­blik, þegar bíll­inn verður kynntur, er sagt lík­legt til þess að auka áhuga á raf­bílum sem val­kosti fyrir fólk úr öllum stéttum.

Þá er þróun hjá öðrum bíla­fram­leið­endum einnig ör þegar kemur að raf­magns­bílum og ekki úti­lokað að meiri fram­farir náist fram, þegar kemur að þróun raf­magns­batt­ería fyrir bíla.

Gert er ráð fyrir að bíla­sala auk­ist um þrjú pró­sent í Evrópu á kom­andi ári, en sala á raf­magns­bílum muni nærri tvölfald­ast miðað við árið í ár.

Tekjur vaxa af kvikmyndum

Gert er ráð fyrir því að árið 2016 verði nokkuð gott fyrir kvik­mynda­iðn­að­inn og munu tekjur vaxa um 5 pró­sent milli ára. Taka verður fram að spá The Economist kom fram áður en nýja Star Wars myndin, The Force Awakens, var tekin til sýn­inga, en hún hefur á rúm­lega tveimur vikum halað inn meira en einn millj­arð Banda­ríkja­dala í tekjur, og er þegar orðin fimmta tekju­hæsta mynd sög­unnar. Gera má ráð fyrir að tekjur mynd­ar­innar muni aukast mikið á kom­andi ári, og hafa áhrif á það hvernig heild­ar­myndin verður í kvik­mynda­iðn­aði á árinu.

Mestu munar um það í spá The Economist, að tekjur vegna bíó­ferða fólks, muni aukast umtals­vert, eða sem nemur sjö pró­sentum.

Aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn, sem er næsti bær við kvik­mynda­iðn­að­inn og sam­of­inn honum að miklu leyti, mun vaxa lít­il­lega milli ára eða sem nemur þremur pró­sentum. En innan hans verða vaxta­svæði, meðal ann­ars í Brasilíu, þrátt fyrir að þar verði sam­dráttur í efn­hags­lífi. Því er spáð að aug­lýs­ing­ar­mark­að­ur­inn í Brasilíu muni vaxa um ell­efu pró­sent vegna áhrifa af því að Ólymp­íu­leik­arnir fara fram í Ríó. Munar um minna fyrir fjöl­miðla í þessu lang­sam­lega stærsta landi Suður-Ameríku með 200 millj­ónir íbúa.

Óvissa vegna stríðs

Eins og alltaf í spám sem þessum er óvissa mikil og vandi um margt að spá. Eitt af því sem er ríkur áhættu­þáttur í gangi efna­hags­mála heims­ins um þessar mundir eru áhrifin af stríðs­á­tökum í Sýrlandi, Írak og Afganistan. Eins og komið hefur í ljós þá eru þjóðir heims­ins til­búnar að beita við­skipt­þving­unum til að verja hags­muni sína og koma höggi á and­stæð­inga sína, eins og Rússar hafa gert gagn­vart Vest­ur­löndum und­an­farna mán­uði, Íslandi þar á meðal, og Vest­ur­lönd gagn­vart Rússum. Allt hefur þetta áhrif á stóru mynd­ina, þó strikin séu mis­jafn­lega stór eftir því hversu djúp­stæð og áhrifa­mikil þau eru. Efna­hags­legir árekstrar geta hafa mikil áhrif ekki síður en stríðs­á­tökin sjálf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár