Ekkert skriflegt til um samkomulag sem ráðherra kannast ekki við

„Þetta voru í raun sam­töl milli for­ystu­manna, og allt sem er til um þetta var skrifað af okkur með nákvæmu orða­lagi,“ segir Hannes G. Sig­urðs­son, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Engin skrif­leg gögn eru til um sam­komu­lag fjár­mála­ráð­herra við Samtök atvinnu­lífs­ins um lækkun trygg­inga­gjalds sem gert var í tengslum við kjara­samn­inga í árs­byrjun 2016. Ítrekað hefur verið vitnað til umrædds sam­komu­lags í umræðum um skatt­breyt­ingar, fjár­lög og vinnu­mark­aðs­mál und­an­farin ár. Milli jóla og nýárs gagn­rýndu Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og fleiri þing­menn Mið­flokks­ins rík­is­stjórn­ina harð­lega fyrir að halda trygg­inga­gjald­inu óbreyttu og full­yrtu að með því væri verið að svíkja skrif­legt sam­komu­lag við atvinnu­rek­endur. 

Hannes G. Sig­urðs­son, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, segir að engu hafi verið lofað skrif­lega á sínum tíma heldur hafi verið hand­salað sam­komu­lag um lækkun trygg­inga­gjalds­ins í áföngum. „Það er ekki hægt að segja að ein­hverju hafi verið lofað skrif­lega og það síðan svikið. Þetta voru í raun sam­töl milli for­ystu­manna, og allt sem er til um þetta var skrifað af okkur með nákvæmu orða­lagi,“ segir hann. 

„Ekkert slíkt skrif­legt sam­komu­lag var gert á milli mín …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár