Engin fyrirheit gefin um að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum

Í svari við fyr­ir­spurn á þingi segir for­sæt­is­ráð­herra að hún hafi ekki gefið Björk Guð­munds­dóttur nein fyr­ir­heit um að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna árið 2019.

Björk Guðmundsdóttir og Katrín Jakobsdóttir ræddust við í síma í september 2019. Forsætisráðherra segist hvergi hafa gefið fyrirheit um að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum.
Björk Guð­munds­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir rædd­ust við í síma í sept­em­ber 2019. For­sæt­is­ráð­herra seg­ist hvergi hafa gefið fyr­ir­heit um að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Mynd: Samsett

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekki hafa gefið Björk Guð­munds­dóttur tón­list­ar­konu nein fyr­ir­heit um að gefa frá sér form­lega yfir­lýs­ingu um neyð­ar­á­stand í lofts­lags­málum í sam­skiptum þeirra á milli sem fram áttu sér stað í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York árið 2019.

Katrín sagð­ist hins vegar ætla að ræða málið við sam­ráð­herra sína. Frá þessu segir í svari for­sæt­is­ráð­herra við skrif­legri fyr­ir­spurn frá Jóhanni Páli Jóhann­syni þing­manni Sam­fylk­ingar, sem birt­ist á vef Alþingis í dag.

Björk gaf í skyn, í við­tali við breska blaðið Guardian í ágúst­mán­uði, að hún og Greta Thunberg hefðu vænst þess að Katrín lýsti yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum í ræðu sinni á lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna. „Ég eig­in­lega treysti henni, kannski vegna þess að hún er kona, en svo fór hún og flutti ræðu og sagði ekk­ert. Hún minnt­ist ekki einu sinni á þetta. Ég varð fokreið, þar sem ég hafði verið að skipu­leggja þetta í marga mán­uð­i,“ sagði Björk við Guardian.

SMS frá Björk til forsætisráðherra

Fram kemur í svar­inu frá for­sæt­is­ráð­herra að erindið frá Björk til for­sæt­is­ráð­herra hafi borist með SMS-skila­boðum í síma Katrínar, þann 6. sept­em­ber 2019. „Ráðherra svar­aði sam­dæg­urs með smá­skila­boðum og síðan rædd­ust þær við í síma í fram­haldi af því. Eftir sím­talið sendi Björk for­sæt­is­ráð­herra nokkur smá­skila­boð dag­ana 19., 22. og 23. sept­em­ber. Ráðherra sendi ein skila­boð 19. sept­em­ber. Í öllum til­fellum voru þessi sam­skipti við Björk Guð­munds­dóttur og var for­sæt­is­ráð­herra aldrei í sam­skiptum við Gretu Thunberg,“ segir í svar­inu.

Í svari ráð­herra er vikið að því að Björk hafi talið mik­il­vægt að for­sæt­is­ráð­herra lýsti í ræðu sinni á fund­inum yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum af hálfu Íslands og Norð­ur­landa. „Af hálfu ráð­herra kom fram að hún myndi ræða málið við sam­ráð­herra sína en engin fyr­ir­heit voru gefin um form­lega yfir­lýs­ingu,“ segir í svari for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn­inni.

Þar er nánar rakið að í „sam­skiptum for­sæt­is­ráð­herra við Björk Guð­munds­dóttur voru engin fyr­ir­heit gefin um form­lega yfir­lýs­ingu af hálfu ráð­herra, rík­is­stjórnar eða Alþingis um neyð­ar­á­stand í lofts­lags­málum“ og jafn­framt segir að í ræð­unni á fyrr­nefndu þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna hafi for­sæt­is­ráð­herra sagt að eng­inn velkt­ist í vafa um það lengur að heim­ur­inn stæði frammi fyrir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. [links]

„Eftir umræðu á vett­vangi rík­is­stjórnar um lofts­lags­mál var það nið­ur­staðan, eftir póli­tískt sam­ráð, að betur færi á því að láta verkin tala og leggja áherslu á að ná árangri með raun­hæfum og nauð­syn­legum aðgerðum í lofts­lags­málum en að nálg­ast við­fangs­efnið með yfir­lýs­ingu af þessu tagi sem væri tákn­ræn í eðli sínu og hefði ekki sjálf­krafa áhrif á aðgerðir gegn lofts­lags­vánni. Þá var málið rætt í óform­legum sam­tölum nor­rænna for­sæt­is­ráð­herra en lofts­lags­mál höfðu verið aðal­efni fundar þeirra hér á landi í ágúst sama ár og hafði verið tölu­verð umræða allt árið 2019 um gagn­semi slíkra yfir­lýs­inga alls staðar á Norð­ur­löndum,“ segir í svar­inu frá ráð­herra.

Jóhann Páll spurði einnig að því hvort Katrín hefði hvatt Björk og Gretu til að hætta við að halda blaða­manna­fund þar sem kraf­ist yrði yfir­lýs­ingar um neyð­ar­á­stand í lofts­lags­málum, eins og Björk lét að liggja í við­tali í þætt­inum Víðsjá á RÚV undir lok sept­em­ber.

Í svar­inu frá for­sæt­is­ráð­herra segir að í sam­skiptum Katrínar við Björk hafi komið fram að til stæði skora opin­ber­lega á for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­landa að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum.

„For­sæt­is­ráð­herra hvatti ekki til þess að hætt yrði við slíkt en upp­lýsti um að þessi mál hefðu verið og væru til umræðu við rík­is­stjórn­ar­borðið,“ segir í svar­inu frá for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár