Björk um Katrínu Jakobsdóttur: „Hún hefur ekki gert neitt fyrir umhverfið“

Þekktasta tón­list­ar­kona Íslands­sög­unnar segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi gert sig fokreiða árið 2019 með því að draga sig út úr því að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum með henni og Gretu Thunberg.

Tón­list­ar­konan Björk Guð­munds­dóttir segir að Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, hafi ekki gert neitt fyrir umhverfið í starfi sínu. Hún hafi viljað styðja við Katrínu sem for­sæt­is­ráð­herra en von­brigði með fram­göngu hennar í tengslum við við­burð þar sem til stóð að að Björk, Greta Thunberg og Katrín lýstu yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum hafi gert hana fokreiða. Sú reiði hafi síðan þró­ast yfir í gremju.

Þetta kemur fram í stóru við­tali við Björk í The Guardian í dag í til­efni þess að tíunda sóló­plata hennar, Fossora, er að koma út. Þar ræðir hún meðal ann­ars um móður sína, Hildi Rúnu Hauks­dóttur, sem lést árið 2018, og umhverf­isaktí­visma hennar. Hann fólst meðal ann­ars í því að fara í hung­ur­verk­fall árið 2002 til að mót­mæla bygg­ingu álvers Alcoa og Reyð­ar­firði og þeim umhverf­is­spjöllum sem fylgdu bygg­ingu Kára­hnjúka­virkj­unnar, sem sér álver­inu fyrir raf­magni.

Beitt sér á undanförnum árum

Í við­tal­inu segir Björk að hún hafi alla tíð síðan þá eytt miklum tíma í að vekja athygli á eyð­ingu umhverf­is­ins. Aktí­vismi hennar hefur átt sér nokkrar birt­ing­ar­myndir á því tíma­bili. Hún stóð til að mynda, ásamt leik­stjór­anum Darren Aronof­sky, fyrir við­burði sem bar yfir­skrift­ina „Stopp - gætum garðs­ins!“ árið 2014.

Í við­tali við Kjarnann í mars það ár sagði hún að drop­inn sem fyllti mæl­inn fyrir henni væri þegar þáver­andi umhverf­is­ráð­herra Íslands, Sigurður Ingi Jóhanns­son, ákvað að fresta gild­is­töku nátt­úru­vernd­ar­laga sem höfðu verið mörg ár í gerjun.

[adspot]Björk, og sam­starfs­fólk hennar, krafð­ist þess að lögin myndu taka gildi. „Svo langar okkur að sýna stuðn­ings við bæði Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin og Land­vernd. Við viljum virkja þjóð­ina í fjár­söfnun svo að sam­tökin geti starfað af fullum styrk og sem full­trúar okkar og nátt­úr­unnar. Svo þau geti ráðið sér lög­menn, prentað plaköt og verið með alvöru skot­færi til að fylgja þessu máli alla leið.“

Með alla kallakallana á bakinu

Björk rifjar upp við The Guardian að Cornucopia-tón­leika­ferða­lag hennar árið 2019 hafi inni­haldið mynd­bands­skila­boð frá loft­lags­að­gerð­ar­sinn­anum Gretu Thunberg. Sama ár hafi Björk og Thunberg ákveðið að taka höndum saman við Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Þær von­uð­ust til þess að það myndi leiða til opin­berra við­bragða frá íslensku rík­is­stjórn­inni. Þegar kom að því að gefa út yfir­lýs­ingu um málið hafi Katrín hins vegar hætt við þátt­töku. „Ég eig­in­lega treysti henni, kannski vegna þess að hún er kona, en svo fór hún og flutti ræðu og sagði ekk­ert. Hún minnt­ist ekki einu sinna á þetta. Ég varð fokreið, þar sem ég hafði verið að skipu­leggja þetta í marga mán­uði,“ segir Björk við The Guardian.

Í kjöl­farið hafi von­brigði hennar þró­ast út í gremju, og jafn­vel nokk­urs konar aðgerð­ar­sinna-kulnun.

Björk segir að henni hafi langað að styðja við Katrínu í hennar hlut­verki. „Það er erfitt að vera kven­kyns for­sæt­is­ráð­herra. Hún er með alla kalla­kall­ana (e. rednecks) á bak­inu. En hún hefur ekki gert neitt fyrir umhverfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár