Dagur með Barack Obama á fjarfundi

Fjallað var um COVID-19 á fundi borg­ar­stjóra víðs vegar að úr heim­inum sem hald­inn var í gær. Dagur B. Egg­erts­son var á fund­inum.

Dagur B. Eggertsson og Obama
Dagur B. Egg­erts­son og Obama Mynd: Samsett mynd

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri Reykja­vík­ur­borgar tók þátt í fundi borg­ar­stjóra víðs vegar að úr heim­inum í gær þar sem fjallað var um COVID-19. Frá þessu greinir hann á Facebook-síðu sinni í dag.

Á fjar­fund­inum var fjallað um það risa­stóra verk­efni sem framundan er: Að aflétta þeim tak­mörk­unum sem öll borg­ar­sam­fé­lög hafa meira eða minna þurft að grípa til „og við köllum einu nafni „sam­komu­bann“ hér landi,“ skrifar hann.

Fram kemur í færslu Dags að fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna, Barack Obama, hafi verið á fund­inum, ásamt fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra New York-borgar og Tom Frieden, fyrr­ver­andi yfir­manni Center of Disease Control í Banda­ríkj­unum, „sem hefur af mörgum verið þakkað fyrir árang­urs­ríka glímu við E-bólu og SARS-veiruna alþjóð­lega“. Dagur við­ur­kennir að það hafi fylgt því sér­stök til­finn­ing að vera með þessum herra­mönnum á fundi.

„Ég treysti mér nán­ast til að full­yrða að allar borg­irnar á fund­inum í gær hefðu sann­ar­lega óskað þess að hafa und­ir­búið sig jafn snemma og við fengum tæki­færi til,“ skrifar Dagur.

Þá kemur enn fremur fram í færsl­unni að í lok jan­úar hafi almanna­varn­ar­nefnd höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fengið Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni til þeirra til að fara yfir hvað væri hugs­an­lega framundan. „Tilefnið var að við vorum komin á óvissu­stig almanna­varna vegna yfir­vof­andi heims­far­ald­urs. Þórólfur hitti neyð­ar­stjórn borg­ar­innar strax sama dag og við hóf­umst handa við að upp­færa allar við­bragðs­á­ætl­anir og búa okkur undir það sem gæti verið í vændum. Fyrir til­viljun höfðum við skipu­lagt æfingu - sem átti að vera rútu­slys með meiðslum á börnum - en snérum henni á punkt­inum í það að und­ir­búa starf­semi borg­ar­innar fyrir veiruna.“

Það séu ekki ein­ungis sveit­ar­fé­lögin sem hafi fengið tíma til að und­ir­búa sig heldur líka heil­brigð­is­kerfið, við­bragð­að­ilar og allir sem hafi þurft að vera við­búnir í verk­efnum sem þessum.

Sumt mun þurfa að breytast – jafnvel varanlega

„Mestu skipti þó að kerfi smit­grein­ingar, rakn­ingar á smitum, sótt­kví og ein­angrun fór strax af stað. Og öllu var miðlar opið og reglu­lega til almenn­ings. Þetta er lyk­ill­inn að árangri og þetta er lyk­ill­inn að öllum frek­ari skrefum. Borgir, lönd og heim­inn allan dreymir um að hafa þá yfir­sýn og yfir­vegun í öllum aðgerðum sem við höfum búið að hér á Íslandi frá fyrsta degi.

Það mun líka reyn­ast okkur ómet­an­legt í að feta leið­ina fram á við, þar sem við opnum í áföngum fyrir stærri og stærri hluta starf­semi og sam­fé­lags­ins. Sumt mun án efa þurfa að breyt­ast, jafn­vel var­an­lega í því hvernig við útfærum og hugsum hlut­ina. En við skulum gera þetta allt á sama hátt og við bjuggum okkur undir far­ald­ur­inn: með virku sam­tali og for­sjálni, öflun og rýni gagna, með yfir­vegun og fag­mennsku að leið­ar­ljósi, kjarki til að taka ákvarð­anir en líka var­færni í ljósi óvissu. Við skulum ekki skella hlutum fram að óat­hug­uðu máli og gætum þess áfram að skila­boð stjórn­valda og sótt­varna séu sam­ræmd, rök­studd og skýr. Þá mun okkur áfram ganga eins og best verður á kosið í þessum erf­iðu verk­efnum,“ skrifar Dagur.

Stóra hrós dags­ins fer að mati borg­ar­stjór­ans til Ölmu Möller land­læknis, Þórólfs og Víðis Reyn­is­sonar yfir­lög­reglu­þjóns og þeim „ótrú­lega stóra og öfl­uga hópi fag­fólks sem að baki þeim stendur. Þið eruð hreint og beint á heims­mæli­kvarða!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár