Stöff sem tekur alla athyglina í nokkrar vikur en gufar svo upp og hverfur í eterinn

Fátt er meira ofanjarðar en skammtur af mögu­legum fram­lögum til Eurovision. Gunnar Lárus Hjálm­ars­son rýndi í lögin sem kepptu um að verða full­trúi Íslands í Liverpool í vor.

Tónlist

Söngvakeppnin 2023

Gefðu umsögn

Lögin 10 eru bæði á íslensku og ensku á streym­isveitum og ef eitt­hvað er að marka hlust­un­ar­tölur er Diljá að fara að vinna þetta með Lifandi inn í mér / Power. Lagið er enda velpump­andi fána­veif­andi kraft­popp og ágæt­lega gríp­andi. Diljá er veru­lega kraft­mikil, bæði sem söng­kona og flytj­andi (enda í crossfit). Hún er eins og margir hér búin að reyna sig við meikið í Idol eða Talent, en er samt nýtt and­lit fyrir mér, sem fylgist ekki með hæfi­leika­keppnum. Ég þekkti bara þrjá flytj­endur fyrir fram. Það eru Langi Seli og skugg­arnir, sem eru óvænt­ustu kepp­end­urnir í ár. Lagið OK er þó ekk­ert óvænt úr þess­ari átt, ekta töffara­billý í gúddí fíl­ingi og senni­lega ekki að fara langt í keppn­inni. Varla fer Móa langt heldur þótt lagið sé ágætt og Móa góð eftir langa fjar­veru með sínar Earthu Kitt-legu áherslur.

Súg­firsku systk­inin í Celebs gætu vel blandað sér í topp­bar­átt­una með hressi­legu danslagi, en kannski er það bara einum of flókið til að ná í gegn og fara alla leið. Ein­fald­leik­inn borgar sig í þess­ari keppni enda lang­flestir að heyra lögin í fyrsta skipti þegar þau birt­ast á stóra svið­inu. Stærstur hluti flytj­enda eru von­góðir krakkar að stíga sín fyrstu skref. Þeir þurfa að bera sig inn að beini fyrir framan þjóð­ina og vona það besta. Lögin sem boðið er upp á fengju seint verð­laun fyrir frum­leika og sum eru eins og gervi­greind hafi búið þau til eftir að hafa verið mötuð á Eurovision-lögum síð­ustu ára.

Sigga Ózk er með þokka­legt froðu­popp og syngur ágæt­lega. Bæði Úlfar og Benedikt eru á inni­legu popp­lín­unni með sjálfs­skoðun að leið­ar­ljósi í texta­gerð. Bragi er á svip­uðum slóðum og lagið mjög fyr­ir­sjá­an­legt. Silja Rós og Kjalar syngja saman þokka­lega ferskan hægeld­aðan poppslag­ara með krúsidúllu-við­lagi og Kristín Sesselja sýnir góða söng­hæfi­leika í dramat­ísku popp­lagi með snið­ugum texta.

Söngvakeppnin er á pari við síð­ustu ár í gæðum og for­gengi­leika. Þetta er stöff sem brestur á og tekur alla athygl­ina í nokkrar vikur, en gufar svo upp og hverfur í eter­inn. Svona eins og allt annað, svo sem. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár