Samherja virðist „skorta auðmýkt“ gagnvart því að auðlindin sé í eigu þjóðarinnar allrar

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að fyr­ir­tæki sem nýta auð­lind þjóð­ar­innar verði að sýna eig­and­anum, sem er íslenskt sam­fé­lag, virð­ingu og auð­mýkt.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að fyr­ir­tæki sem nýta auð­lind þjóð­ar­innar verði einnig að standa undir meiri kröfum en aðrir til sam­fé­lags­legrar ábyrgðar. „Þau verða að vinna í sátt við sam­fé­lagið sem þau starfa í, fylgja lögum og reglum og ekki bara að greiða fullt gjald til eig­and­ans fyrir nýt­ing­una heldur líka sýna eig­and­anum, sem er íslenskt sam­fé­lag, virð­ingu og auð­mýkt.“

Þetta sagði hún í störfum þings­ins á Alþingi í dag en til­efnið er Sam­herj­a­málið svo­kallað sem mikið hefur verið fjallað um í fjöl­miðlum að und­an­förnu.

[links]„Þrátt fyrir afsök­un­ar­beiðni Samherja, sem var löngu tíma­bær en er mjög óljós, þá halda áfram að birt­ast fréttir af fram­göngu for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart lyk­il­stofn­unum sam­fé­lags­ins. Samherji hefur gengið óvenju­hart fram gegn fjöl­miðla­fólki, kraf­ist þess með bréfi að ráð­herra gefi skýr­ingar á ummælum sínum hér í ræðu­stóli Alþingis og í morgun kom fram að fyr­ir­tækið hafi haldið áfram veg­ferð sinni gagn­vart starfs­fólki Seðla­banka Íslands og seðla­banka­stjóra. Ég end­ur­tek það sem sagt var hér í gær: Alþing­is­menn skulda Samherja engar skýr­ingar á ummælum sínum sem falla hér í ræðu­stól,“ sagði hún en þarna vísar hún í ummæli kollega síns, Guð­mundar Andra Thors­sonar þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, en í gær sagði hann að alþing­is­menn skuld­uðu Samherja engar skýr­ingar á ummælum sínum sem falla í ræðu­stól þings­ins.

Vill raunverulegar breytingar á auðlindaákvæðinu

Rósa Björk sagði að stóra málið væri að sam­fé­lagið þyrfti með ein­hverjum hætti að geta tek­ist á við svona fram­göngu. „Við verðum að geta tryggt vernd fjöl­miðla­fólks betur gegn ágangi stór­fyr­ir­tækja og tryggja nægj­an­legar fjár­heim­ildir til lög­reglu, sak­sókn­ara og ann­arra eft­ir­lits­stofn­ana til að hefja rann­sókn ef upp kemur grunur um refsi­vert athæfi. Kerfið okkar verður nefni­lega að virka og lög­gjaf­inn, við hér á Alþingi, verður að veita starfs­fólki grunn­stofn­ana sam­fé­lags­ins vernd fyrir svona ásókn, eins og seðla­banka­stjóri sagði sjálfur.“

Sagðist hún hafa von­ast til þess að taka mætti afsök­un­ar­beiðni Samherja sem dæmi um ein­lægan vilja þessa mik­il­væga fyr­ir­tækis til sátta við sam­fé­lagið. „En því miður virð­ist skorta auð­mýkt gagn­vart því að auð­lindin sem fyr­ir­tækið hefur fengið sinn arð af að nýta er í eigu þjóð­ar­innar allrar.“

Vonaðist hún jafn­framt til þess að þessi mál öll­sömul hjálp­uðu þing­mönnum til að ná saman um raun­veru­legar „en ekki sýnd­ar­breyt­ingar á auð­linda­á­kvæð­inu í stjórn­ar­skrá. Oft var þörf en nú er nauð­syn.“

Alþingismenn heyra ekki undir Samherja

Guð­mundur Andi Thorsson þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði á þingi í gær undir sama lið að alþing­is­menn sæktu ekki til Samherja umboð sitt til starfa á Alþingi heldur til kjós­enda, til almenn­ings í land­inu.

„Stundum sér maður eitt­hvað sem verður til þess eig­in­lega að mann setur hljóðan. Á hvaða heilafoks­fundi skyldi hafa komið upp sú hug­mynd að láta lög­mann á virðu­legri lög­manns­stofu senda hæst­virtan mennta­mála­ráð­herra bréf í valds­manns­legum kans­ellístíl með ábúð­ar­fullum þér­ingum og spurn­ingum sem ráð­herr­anum er gef­inn frestur til að svara, án þess að afleið­ingar þess að hunsa þann frest séu nánar til­greindar, allt út af fyr­ir­spurn sem hún svar­aði í þessum stól frá mér um það hvort hún styddi Rík­is­út­varpið sem heyrir undir þann ráð­herra.

Hæst­virtur ráð­herra sagð­ist gera það og not­aði síðan orða­lag sem for­svars­menn Samherja hafa sjálfir notað um sína fram­göngu í afsök­un­ar­beiðni sem þeir sendu út í kosmósið, að þeir hefðu gengið of langt. Fyrir þau orð er ráð­herr­ann krafin sagna með sér­stöku lög­manns­bréfi í ábyrgð­ar­pósti, vænt­an­lega, eins og hér sé jafn­vel til skoð­unar að hún hafi brotið ein­hver lög með ummælum sínum. Það verður að segj­ast eins og er að það er ákaf­lega sér­kenni­legt sam­skipta­form að standa í bréfa­skiptum af þessu tagi og lýsir hugs­un­ar­hætti manna sem telja sig ekki ríki í rík­inu heldur ríki yfir rík­inu,“ sagði hann.

Enn fremur benti hann á að alþing­is­menn heyrðu ekki undir Samherja. „Alþing­is­menn sækja ekki til Samherja umboð sitt til starfa hér heldur til kjós­enda, til almenn­ings í land­inu. Alþing­is­menn skulda Samherja engar skýr­ingar á ummælum sínum sem falla í ræðu­stól hér og lúta að fram­göngu og ummælum sem þegar liggja fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár