Vildu að Lilja útskýrði orð sín um að Samherji hefði gengið „of langt“

Lögmaður á vegum Samherja óskaði eftir því 27. apríl að Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra útskýrði nákvæm­lega hvað hún átti við, þegar hún sagði á þingi deg­inum áður að Samherji hefði gengið „of langt“ í við­brögðum sínum.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji fól lög­manni á vegum fyr­ir­tæk­is­ins að senda form­legt erindi á Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra í lok apríl, í kjöl­far þess að Lilja sagði á Alþingi að Samherji hefði gengið „of langt“ í við­brögðum sínum við frétta­flutn­ingi af hinu svo­kall­aða Namib­íu­máli.

Ráðherra er í bréfi lög­manns­ins krafin um svör og nán­ari útskýr­ingar á ummælum sínum og yfir­lýstum stuðn­ingi sínum við Rík­is­út­varpið og stjórn þess. Erindinu hefur ekki verið svarað af hálfu ráð­herra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu, en lög­maður Samherja óskaði eftir því að svörum yrði beint til sín eigi síðar en viku eftir að bréfið var sent.

Kjarninn fékk bréf lög­manns Samherja afhent í dag, eftir að hafa óskað eftir því við öll ráðu­neyti á grund­velli upp­lýs­inga­laga að fá sam­skipti Samherja eða full­trúa fyr­ir­tæk­is­ins við ráðu­neytin eða ráð­herra und­an­farna tvo mán­uði afhent, ef ein­hver væru til staðar.

Lilja sagði Samherja vera að „þreyta laxinn“

„Mér finnst Sam­herji ganga of langt. Hann geng­ur of langt í sín­um við­brögðum. Og mér finnst að þetta sé gert til að þess að þreyta lax­inn og von­ast til þess að hann gef­ist upp,“ sagði Lilja á þingi 26. apríl, í svari við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Guðmundi Andra Thors­syni þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Fyr­ir­spurn Guð­mundar Andra laut meðal ann­ars að mynd­bands­gerð Samherja um störf frétta­manns­ins Helga Seljan. „Ég er spurð út í það hvort ég styðji ekki Rík­is­út­varpið. Jú, að sjálf­sögðu geri ég það í þess­ari um­fjöll­un og þess­ari orra­hríð,“ sagði Lilja einnig í þing­inu þann 26. apríl.

Ráðherra berst bréf

Daginn eftir sendi Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður á lög­manns­stof­unni Lex, bréf fyrir hönd Samherja á mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, þar sem Lilja var beðin um nán­ari útskýr­ingar á ummælum sínum um að Samherji hefði gengið „of langt“.

„Var það t.d. of langt gengið að skjóta mál­inu til siða­nefndar Rík­is­út­varps­ins eða að fjalla um nið­ur­stöð­una? Var það mynd­bands­gerðin um nið­ur­stöð­una sem gekk of langt? Þess er óskað að þér útskýrið af tölu­verðri nákvæmni ummæli yðar á þingi um þessi efni,“ segir í bréfi lög­manns­ins til ráð­herra.

Þetta er ekki það eina sem Lilja var krafin um að skýra fyrir í Samherja í bréf­inu frá lög­mann­inum. Hún var einnig beðin um að skýra það að hún hefði lýst yfir ein­dregnum stuðn­ingi við Rík­is­út­varpið og stjórn­endur þess.

„Skiptir í því sam­hengi engu máli, að yðar dómi, það siða­reglu­brot starfs­manns Rík­is­út­varps­ins sem slegið hefur verið föstu með úrskurði siða­nefndar Rík­is­út­varps­ins? Skipta við­brögð stjórn­enda Rík­is­út­varps­ins við úrskurð­inum heldur engu máli í þessu sam­bandi?“ sagði í bréfi lög­manns­ins.

Afsökunarbeiðni frá Samherja síðan í gær

Lög­mað­ur­inn spurði ráð­herra einnig út í það, fyrir hönd Samherja, hvort í stuðn­ingi hennar við stjórn Rík­is­út­varps­ins fælist einnig stuðn­ingur við ummæli stjórn­ar­manns­ins Marðar Árna­sonar um afgreiðslu stjórnar RÚV á erindi frá Samherja. Mörður lét hafa eftir sér í við­tali við Mannlíf, í kjöl­far þess að stjórn RÚV sagði Samherja að það væri ekki í hennar verka­hring stjórn­ar­innar að skipta sér af því hvort frétta­mað­ur­inn Helgi Seljan fjall­aði um eitt mál eða annað, að hans túlkun á bréf­inu væri sú að stjórnin hefði verið að segja „fokkið ykkur“ við Samherja.

Spurningar um hæfi Helga Seljan

Í erindi lög­manns Samherja til Lilju er vísað til þess að hún hafi sagt á þingi að stjórn RÚV hefði brugð­ist rétt við í mál­inu. „Óskar umbj. minn eftir útskýr­ingum á ummælum þessum, sér­stak­lega í ljósi þess að í úrskurði siða­nefndar Rík­is­út­varps­ins er bein­línis kveðið á um að við­kom­andi frétta- og dag­skrár­gerð­ar­maður hafi með ummælum sínum gerst hlut­drægur og brotið alvar­lega gegn siða­reglum Rík­is­út­varps­ins,“ segir í bréf­inu frá Arnari Þór.

Þar sagði enn­fremur að slíkt hlyti að vekja upp spurn­ingar um hæfi Helga Seljan til umfjöll­unar um mál­efni Samherja, í ljósi hlut­lægn­is­skyldu sem kveðið væri á um í lögum um Rík­is­út­varpið, sem heyrðu undir mál­efna­svið Lilju sem ráð­herra.

Ný viðmið um hvenær megi bera hönd fyrir höfuð sér?

„Það er mat umbj. míns að rétt sé, í ljósi ummæla yðar á Alþingi í gær, að þér, sem sá aðili sem fer með eign­ar­hlut íslenska rík­is­ins í Rík­is­út­varp­inu sem og stjórn­ar­fars­lega með mál­efni fjöl­miðla og menn­ing­ar­mála yfir­leitt, gerið fyllri grein fyrir því hvort ein­hvern ný við­mið hafi verið sett á yðar vegum um það hvenær aðilar, sem vegið er að, megi bera hönd fyrir höfuð sér í opin­beri umræðu og hvort þar skipti máli hvort í hlut á Rík­is­út­varpið eða aðrir fjöl­miðlar.

Í bréfi lög­manns­ins segir einnig að það sé „rétt að minna á“ að í gildi sé þjón­ustu­samn­ingur á milli ráð­herra og Rík­is­út­varps­ins og í þeim samn­ingi væri m.a. fjallað um hlut­verk og skyldur RÚV. „Þá hefur ráð­herra heim­ildir til aðgerða á grund­velli samn­ings­ins, sbr. 16. gr. hans,“ segir í bréfi Arnars Þórs.

Ráðherra lítur svo á að málinu sé lokið

Kjarninn beindi síð­degis í dag spurn­ingum til mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra um þetta erindi frá lög­manni Samherja. Blaða­maður fal­að­ist eftir svörum um það hvaða augum ráð­herra liti þetta bréf, af hverju því hefði ekki verið svarað, hvort algengt væri að fyr­ir­tæki krefðu þing­menn eða ráð­herra um útskýr­ingar á til­teknum ummælum sem féllu á þingi og einnig, hvort hún liti á bréfið sem þrýst­ing um að hún sem mennta­mála­ráð­herra beitti sér á ein­hvern hátt fyrir því að Helgi Seljan fjall­aði ekki frekar um mál­efni Samherja.

Lilja segir í skrif­legum svörum til Kjarnans, sem lesa má í heild sinni hér að neðan, að brýnni mál hafi verið sett í for­gang hjá sér en að svara þessu erindi. Hún líti svo á að mál­inu sé lokið.

Þó kemur fram í svari ráð­herra að það sé ekki algengt að form­legar beiðnir sem þessar ber­ist um útskýr­ingar á orðum sem falla á þingi, enda segi í stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins að eng­inn alþing­is­maður verði kraf­inn reikn­ings­skapar utan þings fyrir það sem hann hafi sagt í þing­inu nema Alþingi leyfi.

„Á grund­velli ákvæð­is­ins njóta alþing­is­menn þing­helgi og felur það í sér víð­tækt mál­frelsi þing­manna,“ segir Lilja í svari við spurn­ingu blaða­manns.

Svör mennta- og menningarmálaráðherra:

1) Af hverju hefur þessu erindi ekki verið svarað?

Hér hafa brýnni mál verið sett í for­gang. Orð mín skýra sig sjálf og raunar hefur fyr­ir­tækið geng­ist við því að hafa gengið of langt í sínum við­brögðum. Ég lít svo á, að þessum hluta máls­ins sé lokið.

2) Hvaða augum lítur þú þetta erindi?

Hverjum og einum er heim­ilt að senda erindi til stjórn­valda. Ég lít svo á að mál­inu sé lokið.

3) Er algengt að form­legar beiðnir ber­ist frá fyr­ir­tækjum um nákvæmar útskýr­ingar á orðum sem þing­menn eða ráð­herrar láta falla í umræðum á þingi? Hefur þú upp­lifað slíkt áður, sem þing­maður eða ráð­herra?

Nei, enda njóta alþing­is­menn þing­helgi sam­kvæmt ákvæði í stjórn­ar­skrá. Í 2. mgr. 49. gr. stjórn­ar­skrár lýð­veld­is­ins Íslands nr. 33/1944, kemur fram að eng­inn alþing­is­maður verði kraf­inn reikn­ings­skapar utan þings fyrir það sem hann hefur sagt í þing­inu nema Alþingi leyfi. Á grund­velli ákvæð­is­ins njóta alþing­is­menn þing­helgi og felur það í sér víð­tækt mál­frelsi þing­manna.

4) Upplifir þú þetta erindi sem þrýst­ing um að þú sem ráð­herra beitir þér á þann hátt að Helgi Seljan frétta­maður á RÚV verði lát­inn víkja frá frek­ari umfjöllun um mál­efni Samherja, vegna nið­ur­stöðu siða­nefndar í máli hans?

RÚV er sjálf­stætt félag, með stjórn sem kjörin er af Alþingi. Ég gef RÚV ekki fyr­ir­mæli um neitt, né hef ég afskipti af innri málum þess. Lög um Rík­is­út­varpið eru afdrátt­ar­laus varð­andi það og úti­lokað að ráð­herra beiti sér í ein­stökum málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár