Stofna félag um dánaraðstoð

Lífs­virð­ing, félag um dán­ar­að­stoð, var stofnað í jan­úar. Til­gangur félags­ins er að stuðla að opinni, upp­byggi­legri og víð­tækri umræðu um dán­ar­að­stoð og að vinna að því að sam­þykkt verði lög­gjöf um að við vissar aðstæður og að upp­fylltum ströngum skil­yrðum verði dán­ar­að­stoð val­kostur fyrir þá sem kjósa að mæta örlögum sínum með þeim hætti.

Faðir hennar valdi að deyja með reisn
Faðir hennar valdi að deyja með reisn Ingrid Kuhlman tók þátt í stofnun félags­ins, en faðir hennar var einn af þeim fyrstu sem nýttu sér lög sem voru sett í Hollandi árið 2002 og heim­il­uðu dán­ar­að­stoð. Hún seg­ist vita af nokkrum læknum sem eru fylgj­andi þessum val­kosti og enn fleiri hjúkr­un­ar­fræð­ingum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Lífs­virð­ing, félag um dán­ar­að­stoð var stofnað í jan­úar. Áður hafði hópur fólks hist í um eitt og hálft ár til að und­ir­búa stofnun félags­ins, en þeirra á meðal er Ingrid Kuhlman. Hún hefur búið á Íslandi í um tvo ára­tugi, en faðir hennar var á meðal þeirra fyrstu í Hollandi sem nýttu sér lög sem tóku gildi þar í landi í apríl 2002 og heim­il­uðu dán­ar­að­stoð, eða líkn­ar­dauða eins og það er stundum kallað. 

Á stofn­fundi félags­ins sagði hún að þetta væri mál­efni sem hefði reglu­lega komið upp í sam­fé­lag­inu, en árið 2014 hélt Öldr­un­ar­ráð mál­þing um dán­ar­að­stoð og í kjöl­farið skap­að­ist mikil umræða um mál­efnið og sömu­leiðis þegar Siðmennt stóð fyrir mál­þingi um sama mál­efni ári síðar. „Við í hópnum fundum að þetta er mál­efni sem þarf nán­ari og betri umræðu um. Maskína gerði könnun fyrir Siðmennt í nóv­em­ber 2015 á ýmsum málum og var meðal ann­ars spurt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár