Bílaleigur fengu 875 milljónir í niðurfelld vörugjöld vegna bensín- og dísilbíla í fyrra

Ívilnun sem sam­þykkt var árið 2020, í nafni orku­skipta og aðgerðar gegn lofts­lags­breyt­ingum, hefur tryggt bíla­leigum lang­leið­ina í millj­arð króna í afslátt vegna bíla sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti.

Beinn kostn­aður rík­is­sjóðs vegna lækk­unar á vöru­gjaldi af bensín- og dísil­bílum sem bíla­leigur keyptu árið 2021, á grund­velli tíma­bund­ins ákvæðis sem inn­leitt var í lög árið 2020, var 875 millj­ónir króna. Alls 23 bíla­leigur nýttu sér ákvæðið um lækkun vöru­gjalda. Samkvæmt tekju­á­ætlun sem liggur til grund­vallar fjár­lögum fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna lækk­unar vöru­gjalds á grund­velli lækk­un­ar­innar verði um einn millj­arður króna í ár.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls Jóhanns­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um málið.

Á árinu 2021 hefur engin öku­tækja­leiga fengið lækkun á vöru­gjaldi tengilt­vinn­bílum.

Umrædd ívilnun, sem var inn­leidd í nafni orku­skipta og aðgerða gegn lofts­lags­breyt­ing­um, felur í sér að bíla­leigur fá allt að 400 þús­und króna afslátt af vöru­gjaldi vegna allra bíla sem þær kaupa, hvort sem bíl­arnir ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti eða öðrum orku­gjöf­um, svo lengi sem hlut­fall bens­ín- og dísil­bíla af heild­ar­inn­kaupum er ekki hærra en 85 pró­sent árið 2021 og 75 pró­sent árið 2022.

Fengu afslátt á öllu gegn því að flytja inn fleiri hreinorkubíla

Virð­is­auka­skattur hefur verið felldur nið­­ur, upp að vissu marki, vegna inn­­­flutn­ings á raf­­­magns-, vetn­is- og tengilt­vinn­bílum frá því um mitt ár 2012.

Árið 2020 ákvað Alþingi, eftir til­lögu efna­hags- og við­skipta­nefndar þar um, að bæta við þegar fyr­ir­liggj­andi hvata til bíla­leiga til orku­skipta. Var það gert með því að tryggja leig­unum rétt til afsláttar af vöru­gjöldum sem lögð eru á bíla við inn­flutn­ing gegn skuld­bind­ingu um að hlutur raf­magns-, vetn­is- og tengilt­vinn­bíla ​nemi 15 pró­sent af heild­ar­inn­kaupum þeirra árið 2021 og 25 pró­sent 2022.

Þetta var rök­stutt á þeim grund­velli að bíla­leigur kaupi inn stóran hluta allar nýskráðra bíla hér­lend­is, selji þær svo á almennum mark­aði eftir til­tekin tíma og hafi því veru­leg áhrif á þróun og sam­setn­ingu bíla­flot­ans á Ísland­i.

Þing­menn Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins studdu laga­breyt­ing­una en Sam­fylk­ing­in, Pírat­ar, Við­reisn og Flokkur fólks­ins lögð­ust gegn henni.

„Óskil­virk aðgerð sem orki tví­mæl­is“

Í minn­is­blaði sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið sendi Alþingi í des­em­ber síð­ast­liðnum, vegna umsagna sem bár­ust um band­orm vegna fjár­­laga­frum­varps árs­ins 2022 og við­brögð þess við þeim, var þessi vöru­gjaldsí­vilnun harð­lega gagn­rýnd.

[links]Þar sagði að mat ráðu­neyt­is­ins væri að íviln­unin, sem hafði það mark­mið að draga úr losun koltví­sýr­ings, væri „óskil­virk aðgerð sem orki tví­mæl­is“. Hún geri jarð­efna­elds­neyt­is­bíla ódýr­ari og vinni því að hluta gegn raf­væð­ingu bíla­l­eigna. „Bíla­leigur í heild hafa nú þegar náð 27 pró­sent hlut­deild vist­vænna bíla í nýsk­rán­ingum það sem af er þessu ári, en hverri og einni nægir 15 pró­sent hlut­deild árið 2021 og 25 pró­sent hlut­deild árið 2022 til að fá veru­legan skatt­afslátt af jarð­efna­elds­neyt­is­bílum sín­um. Hjá bíla­leigum sem hafa náð til­skil­inni hlut­deild skapar kerfið hvata til að kaupa jarð­efn­iselds­neyt­is­bíla sem síðan fara í end­ur­sölu að 1-2 árum liðn­um [..] Í ljósi mik­ils veltu­hraða í nýsk­rán­ingum og end­ur­sölu bíla­leigu­bíla er hætta á að slíkt fyr­ir­komu­lag geti verið til þess fallið að tefja orku­skipt­in, einkum sé tekið til­lit þess að tekju­tap rík­is­ins í formi eft­ir­gjafar af vöru­gjaldi er ígildi fórnaðra fram­laga til ann­arra aðgerða í þágu lofts­lags­mála.“

Þurfa að endurgreiða með álagi ef skuldbindingu er ekki mætt

Í svari Bjarna við fyr­ir­spurn Jóhanns Páls segir að hinn 15. jan­úar síð­ast­lið­inn hafi bíla­leigum borið að skila til Skatts­ins skýrslu um hvernig þær hafa staðið við þá skuld­bind­ingu, sem ákvæðið um vöru­gjaldaí­viln­un­ina mælti fyrir um, að keypt vist­væn öku­tæki á árinu 2021 nemi 15 pró­sentu af heild­ar­inn­kaupum á öku­tækjum á því ári.

Þar segir að Skatt­ur­inn vinni nú að því að fara yfir skýrsl­urnar. „Komi í ljós að öku­tækja­leiga hafi ekki staðið við skuld­bind­ing­una ber henni að end­ur­greiða í rík­is­sjóð alla þá vöru­gjalds­lækkun sem hún fékk á árinu 2021 [...] að við­bættu 10 pró­sent álagi, og skal end­ur­greiðslan innt af hendi þriðju­dag­inn 1. febr­úar. Ákvarð­anir Skatts­ins um end­ur­greiðslu vöru­gjalda, ef til þess kemur, liggja fyrir um mán­aða­mótin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár