Segja 25-30 prósent ekki geta nýtt sér úrræði stjórnvalda

Trygg­inga­fyr­ir­tækið Allianz segir að frum­varp um Fyrstu fast­eign feli í sér mis­munun og brjóti gegn jafn­ræð­is­reglu. Fyr­ir­tækið hefur leitað til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna þess.

Um 22 þús­und Íslend­ingar, sem eru með við­bót­ar­sér­eigna­sparnað sinn hjá Allianz, munu ekki geta notað úrræði rík­is­stjórn­ar­innar um ráð­stöfun slíks sparn­aðar, „Fyrsta fast­eign“, ef frum­varpið nær fram að ganga óbreytt. Þetta kemur fram í umsögn Allianz um frum­varpið. Þetta felur í sér ólög­mæta mis­munun, segir fyr­ir­tækið, og hefur leitað til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna frum­varps­ins.

Erlend fyr­ir­tæki eins og Allianz nota öðru­vísi kerfi þegar kemur að nýt­ingu við­bót­ar­ið­gjalda fólks. Samn­ingar sem fólk gerir við Allianz og önnur líf­trygg­inga­fé­lög fela það í sér að við­bót­ar­líf­eyri er ráð­stafað til kaupa á líf­eyr­is­trygg­ingu, og því eru samn­ing­arnir trygg­inga­samn­ingar. Það er ólíkt þeim samn­ingum sem fólk gerir við líf­eyr­is­sjóði, banka og verð­bréfa­fyr­ir­tæki.

Samkvæmt því sem fram kemur í umsögn Allianz er ekki gert ráð fyrir líf­trygg­inga­fé­lög­unum í frum­varp­inu, ekki frekar en gert hafi verið þegar ráð­stöfun sér­eigna­sparn­aðar inn á fast­eigna­lán var fyrst kynnt sam­hliða leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu árið 2014. Fyr­ir­tækið segir að ef nota eigi sér­eigna­sparn­að­ar­kerfið til að veita skatta­legar og ann­ars konar íviln­anir þá sé það ólög­mæt mis­munun og brot á jafn­ræð­is­reglu að úti­loka einn hóp, það er fólkið sem hefur valið að semja við líf­trygg­inga­fé­lögin. Hópurinn sem er hjá Allianz er um 25 til 30 pró­sent allra Íslend­inga sem á annað borð safna við­bót­ar­líf­eyri.

„Verði frum­varpið óbreytt að lögum munu við­skipta­vinir Allianz ekki sitja við sama borð og við­skipta­vinir ann­arra vörslu­að­ila líf­eyr­is­sparn­aðar þegar kemur að því að not­færa sér þau úrræði sem þar eru lögð til. Engin mál­efna­leg sjón­ar­mið geta legið að baki slíkri mis­munun og ber lög­gjaf­anum að sjá til þess að fullt jafn­ræði sé með rétt­höfum alger­lega óháð því hvaða samn­ings­form eða vörslu­að­ila við­kom­andi hefur valið sér,“ segir í umsögn Allianz.

Fengu ekki kynningu og ekki beðin um umsögn

Allianz segir að fyr­ir­tæk­inu hafi ekki verið kynnt efni frum­varps­ins, og hafi ekki einu sinni verið beðið um að veita umsögn sína um það, þrátt fyrir að hafa um 25 til 30 pró­senta mark­aðs­hlut­deild í kerf­inu sem frum­varpið lýtur að. Þessi með­ferð máls­ins sé til þess fallin að vekja tor­tryggni á því að sam­keppn­is­sjón­ar­miða og fulls jafn­ræðis hafi verið gætt. „Og er brýn ástæða fyrir nefnd­ar­menn að leita eftir stað­fest­ingu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á því að ákvæði frum­varps­ins feli ekki í sér sam­keppn­is­hömlur eða brjóti í bága við ákvæði sam­keppn­islaga og að eft­ir­litið grípi til við­eig­andi aðgerða verði svo talið.“

Þá hefur fyr­ir­tækið sent Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu erindi vegna frum­varps­ins og óskað eftir því að eft­ir­litið skoði hvort ákvæði frum­varps­ins fari í bága við ákvæði sam­keppn­islaga. Allianz segir einnig ástæðu til að skoða hvort ákvæði í frum­varp­inu, og í lög­unum um ráð­stöfun sér­eigna­sparn­aðs, feli í sér tak­mörkun á mögu­leikum erlendra aðila.

Gerðu ítrekaðar athugasemdir

Allianz seg­ist hafa gert ítrek­aðar athuga­semdir í kringum leið­rétt­ing­una, þegar boðið var upp á þann mögu­leika að ráð­stafa sér­eigna­sparn­aði inn á fast­eigna­lán tíma­bundið. Í lög­unum sem sam­þykkt voru var gert ráð fyrir að sá mögu­leiki yrði í gildi í þrjú ár, en nú stendur til að fram­lengja þann tíma. Fyr­ir­tækið segir að ekk­ert til­lit hafi verið tekið til athuga­semda þess, en hægt hafi verið að útfæra leið til að gera við­skipta­vinum kleift að not­færa sér leið­ina engu að síður, vegna þess að sam­kvæmt skil­málum má taka allt að þriggja ára iðgjalda­hlé hjá Allianz. Nú þegar til stendur að lengja tíma­bilið er það hins vegar ekki lengur hægt.

Allianz segir að með þessu inn­gripi lög­gjafans í kerfi við­bót­ar­líf­eyr­is­sparnað hafi sam­keppni verið tak­mörkuð á mark­aðnum og fyr­ir­tæk­inu hamlað að starfa á mark­aði.

Fyr­ir­tækið muni ekki að óbreyttu geta boðið nýjum við­skipta­vinum, sem ekki hafi átt fast­eign, samn­inga. Auk þess muni núver­andi við­skipta­vinir Allianz ekki eiga kost á að not­færa sér úrræðin til jafns við aðra. Við­skipta­vinir Allianz muni eiga þann eina kost að loka sínum samn­ingum og ráð­stafa við­bót­ar­ið­gjaldi eitt­hvert annað ef þeir ætli að nýta heim­ildir frum­varps­ins. Það mun oft hafa í för með sér tjón vegna þess að trygg­inga­fé­lagið greiðir end­ur­kaups­virði, og fyrstu tíu árin er það yfir­leitt lægra en þau iðgjöld sem fólk hefur borgað á þeim tíma.

„Engin mál­efna­leg rök geta rétt­lætt það að ein­ungis hluti þeirra aðila sem ráð­stafa við­bót­ar­ið­gjöldum sínum skv. 8. gr. líf­eyr­is­lag­anna fái nýtt þá skattaí­vilnun sem um ræðir en ekki allir. Verður að telja að um óheim­ila mis­munun sé að ræða sem brjóti gegn jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár,“ segir í umsögn­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár