Varð útlægur úr Bandaríkjunum og kom til Íslands

Þor­valdur Mawby fædd­ist á Íslandi en ólst upp í Banda­ríkj­unum. Hann sneri aftur til Íslands eftir að hafa verið grip­inn við gras­reyk­ingar þar vestra.

Ólst upp í Bandaríkjunum
Ólst upp í Banda­ríkj­unum Þor­valdur sneri aftur til Íslands eftir að hafa verið grip­inn við gras­reyk­ingar.

Það hafði mikil áhrif á líf mitt að flytja til Íslands. Það breytti líf­inu mínu klár­lega að koma hingað. Ég fædd­ist hér. Mamma og pabbi fluttu út með mig þegar ég var ungur til að elt­ast við amer­íska draum­inn – og þau fundu hann. Pabbi á bygg­inga­fyr­ir­tæki og mamma mín hefur það fínt. Hún segir að Ísland hafi ekki verið slæmur staður. Það var bara auð­veld­ara að græða pen­inga í Banda­ríkj­unum. 

Ég er búinn að vera hérna í tíu ár. Ég var gerður útlægur úr Banda­ríkj­unum. Ég hafði verið þar í 34 ár. Það var fyrir að reykja gras. Veistu hvað er fyndið við það? Núna er það lög­legt alls staðar.

Ég var líka tek­inn fyrir að aka undir áhrifum nokkrum sinnum. Þeir breyttu regl­unum. Einu sinni var hægt að fremja tvö lítil brot svo lengi sem þú værir ekki fang­els­aður á fimm ára tíma­bili. En eftir 11. sept­em­ber breyttu þeir því svo það væri tíu ára tíma­bil. Svo það fór illa með mig. Eins og ég segi, þetta er eitt­hvað sem er selt á hverju götu­horni.

Veistu hvað var mesta sjokkið þegar ég kom til Íslands? Ég hélt að það væru engin eit­ur­lyf hér. Því síð­ast þegar ég var hér var árið 1988 og það reykti eng­inn gras. Það er fínt að vera hérna. Niðri í bæ eru það rónar og fíklar sem vakta göt­urnar, meira en held ég lög­reglan gerir. Hefur þú hangið eitt­hvað með þeim? Þeir dæma ekki, það eru allir frekar fínir.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár