Enginn losnað úr öndunarvél enn sem komið er

Sótt­varna­læknir furðar sig á þeim fjölda beiðna um und­an­þágur frá sótt­kví og sam­komu­banni sem ber­ast. Ekki sé hægt að veita mörgum und­an­þágu ein­fald­lega af því að þá eykst hættan á því að smitum fjölgi hratt.

Alma Möller, landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Alma Möller, land­læknir og Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Skjáskot úr útsendingu RÚV.

Ellefu manns með COVID-19 sjúk­dóm­inn liggja á gjör­gæslu­deild Land­spít­al­ans. Níu eru í önd­un­ar­vél. Enginn sjúk­lingur sem hefur þurft á slíkri með­ferð að halda hefur enn sem komið er lokið henni. Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, segir að þetta stað­festi það sem sést hafi í öðrum löndum: Það tekur tölu­vert langan tíma að ná sér af veik­indum.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að bestu spár væru að ganga eftir hvað varðar fjölda smit­aðra en verstu spár hvað varðar þann fjölda sem veik­ist alvar­lega og þarf á gjör­gæslu­með­ferð að halda.

Níu pró­sent sýna sem tekin voru á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans í gær reynd­ust jákvæð. Hjá Íslenskri erfða­grein­ingu voru aðeins tvö ný smit stað­fest eða um 0,2 pró­sent af öllum sýnum sem tekin voru. „Þetta er með því lægsta sem við höfum séð,“ sagði Þórólfur á fund­inum. Hann sagði að lík­lega væri of snemmt að segja til um hvort að farið sé að hægja á vexti far­ald­urs­ins. Til þess þyrftu enn nokkrir dagar að líða.

Mikið álag væri á Land­spít­ala og gjör­gæslu­deild­inni og lítið þarf útaf að bera í fjölda smita svo þar skap­ist erfitt ástand. Því sé gríð­ar­lega mik­il­vægt að halda áfram þeim aðgerðum sem hér hefur verið beitt. Sam­komu­bannið standi til 13. Apríl en lands­menn þurfi að und­ir­búa sig fyrir áfram­hald á því. „Við megum ekki hætta of snemma svo að við fáum eitt­hvert bakslag í þennan far­aldur.“

Furðar sig á fjölda undanþágubeiðna

Þórólfur sagð­ist á fund­inum furða sig á þeim fjölda beiðna um und­an­þágur frá sótt­kví og sam­komu­banni sem ber­ast. Ekki væri hægt að veita mörgum und­an­þágu ein­fald­lega af því að þá eykst hættan á því að smitum fjölgi hratt.

[links]Þá vildi hann ítreka að það að fara í sýna­töku í sótt­kví og fá nei­kvætt út úr henni muni ekki létta á sótt­kvínni. „Það er alls ekki svo,“ sagði Þórólfur með áherslu. „Prófið sýnir stöð­una akkúrat þegar það er tekið. [...] Þannig að próf styttir ekki sótt­kví.“

Alma Möller land­læknir sagði að vel væri fylgst með álagi á heil­brigð­is­kerfið og að núna væri það mest á Land­spít­ala og heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. „Við vitum að álagið mun vaxa enn frekar,“ sagði hún. „Við vinnum að því að hindra smit og hægja á far­aldri, sinna sjúk­lingum með covid eins vel og hægt er og að veita aðra nauð­syn­lega heibrigð­is­þjón­ustu.“

Hún sagði að farið væri að bera á þreytu meðal heil­brigð­is­starfs­manna og skyldi engan undra. „Ég vil biðja fólk að hlúa að sjálfu sér og öðrum, við verðum að hafa úthald fyrir þær vikur sem framundan eru.“

Þórólfur tók í svip­aðan streng: „Við skulum muna að þetta er lang­hlaup og að við erum kannski um það bil hálfnuð. Við verðum að sýna þol­gæði, úthald og jákvæðni til að kom­ast vel í gegnum þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár