„Það er vond hugmynd“ að ferðast um páskana – „Ekki gera það“

Það þarf að sýna „þol­gæði“ og „bið­lund“ til að ljúka far­aldr­inum. Alls ekki er ráð­legt að Íslend­ingar legg­ist í ferða­lög um pásk­ana. Það skapar ótelj­andi vanda­mál sem hægt er að kom­ast hjá með því að vera heima.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, var til svara á upplýsingafundinum í dag.
Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, var til svara á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. Mynd: Lögreglan

„Ferðumst inn­an­húss um pásk­ana,“ sagði Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Það er mjög mik­il­vægt þegar svona mikið mæðir á heil­brigð­is­kerf­inu og við erum að beina öllu okkar að COVID-19 að við þurfum ekki líka að glíma við hópslys eða annað.“

Páll sagð­ist hafa heyrt af því að fólk væri farið að skipu­leggja ferða­lög um landið um pásk­ana. „Það er vond hug­mynd. Ekki gera það. Besta hug­myndin er að ferð­ast inn­an­húss.“

Hann sagði gríð­ar­lega mik­il­vægt að sýna nú bið­lund. Það þurfi þol­gæði til að ljúka far­aldr­inum. „Við þurfum að nota alla okkar orku í að sinna covid-far­aldr­inum.“

[adspot]

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði að ekki stæði til að herða reglur um sam­komu­bann um pásk­ana en að ekki yrði hikað við það ef þörf krefði. „Við viljum frekar biðla til fólks og höldum að það muni virka.“

Hann sagð­ist hafa veru­legar áhyggjur af því að fólk legð­ist í ferða­lög um pásk­ana. „Því fleiri sem eru á ferð­inni þeim mun meiri líkur eru á slysum og pressa eykst á heil­brigð­is­kerfið sem er mjög þanið fyrir.“

Ef fólk safn­ast saman í sum­ar­húsa­byggðum í þús­unda­vís, þar sem heil­brigð­is­þjón­usta er af skornum skammti, bjóði það hætt­unni heim. Nefndi hann sem dæmi að heil­brigð­is­stofn­anir í Árnes­sýslu væru ekki byggðar upp til að sinna þús­undum nýrra íbúa í þessu ástandi.

Hætta á að fólk gleymi sér

En fleira komi til sem valdi áhyggjum. „Ef fólk fer að hóp­ast mikið saman ann­ars staðar en heima hjá sér er aukin hætta á því að það gleymi regl­unum sem það hefur tamið sér und­an­farið,“ sagði Víðir og nefndi sem dæmi það að heils­ast ekki eða snert­ast og að halda tveggja metra fjar­lægð frá næsta manni. „Ef fólk er allt í einu komið í nýtt umhverfi, til dæmis upp í sum­ar­bú­stað, er hætta á að það gleymi sér og þá eykst smit­hætta.“

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur sagt að fólk geti verið ein­kenna­laust í viku og jafn­vel lengur eftir að hafa smit­ast. Á þessu tíma­bili getur það þó smitað aðra. Þetta er stóra hættan þegar fólk safn­ast saman.

Víðir sagð­ist þekkja til vélsleða­manna sem eflaust væri farið að klæja í fing­urna að kom­ast á sleða uppi á hálendi. „En ég held að lang­flestir þeirra hugsi sér að bóna bara sleð­ann um páska og ferð­ast inn­an­húss.“

Víðir minnti á að við erum „langt frá því komin yfir hól­inn“.

Hann lauk svo fund­inum á hvatn­ing­ar­orðum eins og vana­lega: „Við skulum halda áfram að vera í þessu saman. Við sjáum fréttir af fólki sem er að gera mis­tök og hegða sér ein­kenni­lega. Við skulum vera með náunga­kær­leik­ann að vopni, tala saman og vera kurt­eis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár