Lagasetningaráform fara öfugt í fjármálafyrirtæki

Lands­bank­inn og greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tækið Rapyd gera miklar athuga­semdir við fram­lögð áform for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, um að setja lög til að heim­ila Seðla­bank­anum að koma á fót nýrri inn­lendri greiðslu­lausn. Rík­is­bank­inn hvetur stjórn­völd til að falla frá áformum sínum og end­ur­hugsa þau alveg frá grunni.

Landsbankinn
Lands­bank­inn Stjórn­endur Lands­bank­ans hvetja stjórn­völd til að falla frá áformum um laga­setn­ingu og end­ur­hugsa málið alveg frá grunni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Áform stjórn­valda um laga­setn­ingu um inn­lenda smá­greiðslu­lausn, sem kynnt voru af hálfu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í sam­ráðs­gátt stjórn­valda undir lok júní, hljóta afar dræmar und­ir­tekir frá Lands­bank­anum, greiðslu­miðl­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Rapyd og Samtökum fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF), en þetta má lesa úr umsögnum sem fyr­ir­tækin og sam­tökin skil­uðu inn í sam­ráðs­gátt­ina í lok júlí­mán­aðar.

Í kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins á mál­inu kom fram að fyr­ir­hug­aðri laga­setn­ingu væri bæði ætlað að þjóna þjóðar­ör­yggi og stuðla að hag­kvæmni fyrir neyt­endur, en árangur af laga­setn­ing­unni og inn­leið­ingu inn­lendrar smá­greiðslu­lausnar var helst sagður verða met­inn af því hve miklu fé yrði varið í greiðslu­miðlun hér­lendis til fram­tíðar.

Stjórnvöld reyni að breyta markaði undir yfirskini þjóðaröryggis

Í umsögnum frá bæði Lands­bank­anum og Rapyd er ljóst að þar á bæ eru stjórn­endur hugsi yfir því hvaða hlut­verk íslenska ríkið virð­ist opna á að taka sér á greiðslu­miðl­un­ar­mark­aði. Rapyd segir að ætla verði að mark­mið for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sé ekki ein­göngu að bregð­ast við því neyð­ar­á­standi sem skap­ast geti, t.d. ef raf­rænt sam­band Íslands við umheim­inn myndi rofna, heldur að „hafa bein og var­an­leg áhrif á greiðslu­miðl­un­ar­mark­að­inn með þeim hætti að núver­andi leiðir yrðu ekki reknar áfram, að minnsta kosti í því formi sem raunin er“. 

Þá segir fyr­ir­tækið, eða öllu heldur Garðar Stef­áns­son for­stjóri þess, sem skrifar undir umsögn­ina, að ekki sé hægt að lesa annað úr þeim skjölum sem for­sæt­is­ráðu­neytið birti undir lok júní en að „til­gangur ráðu­neyt­is­ins sé, að minnsta kosti öðrum þræði, að sjá til þess að inn­lend greiðslu­miðlun komi í stað núver­andi leiða“. Í umsögn Rapyd er vísað til þess að í áformum stjórn­valda sé vikið að því að inn­láns­stofn­unum kunni að verða skylt að taka þátt í fyr­ir­hug­aðri greiðslu­miðlun að við­lögðum dag­sektum og því verði inn­láns­stofn­anir þving­aðar til þátt­töku á mark­aði sem þær séu ekki hluti af í dag.  

RapydGarðar Stef­áns­son er for­stjóri Rapyd.

Rapyd telur „að nauð­syn­legt sé að ráðu­neytið geri hreint fyrir sínum dyrum um það hvort raun­veru­legt mark­mið áform­aðrar laga­setn­ingar sé að tryggja þjóðar­ör­yggi, og þeirra almanna­hags­muna sem að því stendur, eða lækka kostnað af greiðslu­miðlun, sem er allt annað og ótengt mark­mið, sem ekki verður séð að teng­ist hinum fyrr­greindu hags­munum á nokkurn hátt“. 

Fyr­ir­tækið telur liggja ljóst fyrir að nægi­legt sé að koma upp vara­leið, til þess að ná þeim mark­miðum um þjóðar­ör­yggi sem stefnt er að, en í áforma­skjali stjórn­valda var sú leið, sem farin var í Finn­landi nýlega, slegin út af borð­inu. 

Til við­bótar við þetta telur Rapyd að væntur ábati neyt­enda af inn­lendri óháðri greiðslu­lausn sé stór­lega ofmet­inn af hálfu ráðu­neyt­is­ins, en í skjal­inu frá ráðu­neyt­inu var vísað til þess að met­inn kostn­aður við greiðslu­miðlun væri um 1,43 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu hér en ein­ungis 0,79 pró­sent í Noregi. Þessar tölur koma frá Seðla­bank­anum, sem tekur reglu­lega saman kostnað við smá­greiðslu­miðlun á Íslandi. Rapyd segir „bein­línis ekk­ert“ í þeim skjölum sem for­sæt­is­ráðu­neytið hefur lagt fram renna stoðum undir að svokölluð RÍR (reikn­ing í reikn­ing) lausn, eða önnur inn­lend greiðslu­lausn, myndi lækka kostnað sam­fé­lags­ins við greiðslu­miðlun eða færa okkur nær sam­an­burð­ar­löndum í þeim efnum.

Fyr­ir­tækið seg­ist gera alvar­legar athuga­semdir við áformin í heild sinni og for­send­urnar sem þau grund­vall­ast á. „Fyr­ir­liggj­andi gögn benda til þess að áformað sé umtals­vert inn­grip á markað sem þegar er til staðar og hefur verið um ára­tuga­skeið, án þess að ljóst sé hvort fullt til­efni er til og hvort þau áform sem sett hafa verið fram stand­ist grunn­kröfur um með­al­hóf og skyn­sam­lega stjórn­sýslu,“ segir í umsögn­inni frá Rapyd.

Hvetja stjórnvöld til að endurskoða málið frá grunni

Í umsögn Lands­bank­ans, sem er í fullri eigu íslenska rík­is­ins, er hvatt til þess að áform um laga­setn­ingu verði dregin til baka og málið „end­ur­skoðað frá grunni“, en undir umsögn­ina rita Lilja B. Ein­ar­dóttir banka­stjóri og Arin­björn Ólafsson, sem er fram­kvæmda­stjóri upp­lýs­inga­tækni­s­viðs bank­ans. 

Lands­bank­innLilja Björk Ein­ars­dóttir banka­stjóri Lands­bank­ans.

Þau segja eðli­leg­ast að leyfa áhrifum af inn­leið­ingu svo­kall­aðrar PSD2-greiðslu­til­skip­unar að skila sér og sjá hvort og þá hvernig inn­lendir eða erlendir aðilar sjái sér hag í því að bjóða greiðslu­þjón­ustu sem upp­fyllt geti við­mið um öryggi smá­greiðslu­miðl­unar m.t.t. þjóðar­ör­yggis.

Í umsögn bank­ans kemur fram að hætta sé að „lög um rík­is­lausn“ sem ná eigi til allra inn­láns­stofn­ana á Íslandi geti haft veru­lega nei­kvæð áhrif á nýsköpun og sam­keppni frá sprota­fyr­ir­tækjum á sviði greiðslu­þjón­ustu. Bankinn bendir einnig á að ekki sé ljóst hvernig eigi að tryggja notkun og útbreiðslu inn­lendrar smá­greiðslu­lausnar. 

„Nýjar lausnir, hvort sem það er þessi lausn eða aðrar, þurfa að stand­ast sam­keppni, t.d. við greiðslu­kort. Það eitt er heil­mikil áskorun því greiðslu­korta­fyr­ir­tæki hafa þróað sínar lausnir í ára­tugi og hafa náð miklum árangri við að gera þær sem not­enda­vænastar og öruggastar. Not­enda­ferli við greiðslur með greiðslu­kortum verður ekki ein­faldað mikið umfram það sem nú hefur verið gert nema á kostnað öryggis og rétts neyt­enda. Þá er óvíst hvernig fram­leið­endur snjall­tækja (far­síma og úra), sem gjarnan er hugsað til sem helstu burða­laga nútíma smá­greiðslu­miðla, muni bregð­ast við beiðnum og óskum fámenns eyríkis um að fá heim­ildir til að nota tæki þeirra sem burða­lag fyrir smá­greiðslu­miðlun,“ segir í umsögn Lands­bank­ans. 

Ljúka þurfi samtali Seðlabankans og fjármálafyrirtækja áður en lög verði sett

Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja segja í umsögn sinni um málið að þau telji mik­il­vægt að nið­ur­stöður liggi fyrir í við­ræðum á milli Seðla­bank­ans og fjár­mála­fyr­ir­tækja um sam­vinnu við að koma á fót greiðslu­lausn, áður en lög verði sett um málið. Einnig kemur fram af hálfu SFF að gæta þurfi með­al­hófs í því hve mik­ill kostn­aður leggst á inn­láns­stofn­anir, vegna greiðslu­þátt­töku í smíði greiðslu­lausn­ar­innar.

Samtökin telja svo skorta á rök­stuðn­ing um hvernig lausnin eigi að ná alvöru útbreiðslu og vera meira en bara kostn­að­ar­söm vara­leið með óljósri virkni og þekk­ingu við­eig­andi aðila ef skyndi­lega verði þörf á notkun hennar vegna rofs á öðrum leiðum. 

„Að mati SFF standa líkur til þess þessi leið nái ekki alvöru útbreiðslu og verði virk greiðslu­leið. Norrænu leið­irnar náðu útbreiðslu þar sem skortur var á þægi­legri lausn til að borga milli ein­stak­linga og þær eru fyrst og fremst not­aðar í það í dag auk net­versl­unar, en lítið í versl­unum. Mjög erfitt er að fá neyt­endur til að skipta þegar lausn sem þeim líkar er þegar til staðar líkt og kunn­ugt er,“ segir í umsögn Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja um málið.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mammon er mikið öflugri hérna en á Norðurlöndunum, uss, uss, það þarf ekki nema einn pínulítin "kall,, sem engist af k(h)völum til þess að fá meðaumkun hjá stórum hluta þjóðarinnar. Buddan er alltaf viðkvæm.
    0
  • JÍ
    Jón Ívarsson skrifaði
    Það er búið að vera að vinna að þessu máli í fjölda mörg ár. Fyrst hjá Reiknistofu bankanna og svo Seðlabankanum án nokkurs árangurs. Nú skilur maður hvers vegna. Norðurlöndin öll hafa verið með svona kerfi til margra ára með frábærum árangri. Í Noregi t.d. heitir það Vipps.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár