Áforma lög um smágreiðslulausn sem á að geta sparað samfélaginu milljarða

Þrátt fyrir að Seðla­bank­inn hafi unnið að því í sam­starfi við fjár­mála­fyr­ir­tæki síð­ustu miss­eri að koma á fót raf­rænni smá­greiðslu­lausn sem tryggir að við­skipti geti gengið fyrir sig inn­an­lands án þess að erlendir inn­viðir eða teng­ingar við útlönd komi þar nærri, áforma stjórn­völd nú sér­staka laga­setn­ingu um málið, til að veita Seðla­bank­anum m.a. heim­ild til að tryggja þátt­töku fjár­mála­fyr­ir­tækja í smá­greiðslu­lausn sem komið yrði á lagg­irnar.

Smágreiðslur
Smá­greiðslur Horft er til þess að áformuð lög um inn­lenda smá­greiðslu­lausn geti tekið gildi um næstu ára­mót.

Stjórn­völd áforma að setja lög um að koma á fót inn­lendri smá­greiðslu­lausn, í því skyni að þjóna þjóðar­ör­yggi og stuðla að hag­kvæmni fyrir neyt­endur. Áform um laga­setn­ing­una eru nú til kynn­ingar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Í skjali um áformin sem þar má finna segir meðal ann­ars að árangur af laga­setn­ingu og inn­leið­ingu inn­lendrar smá­greiðslu­lausnar verði helst met­inn af því hversu miklu fé verður varið í greiðslu­miðlun hér­lendis til fram­tíðar, en kostn­aður við greiðslu­miðlun hefur verið óvenju hár á Íslandi miðað við nágranna­lönd. 

Árið 2021 var kostn­aður sam­fé­lags­ins við greiðslu­miðlun 47 millj­arðar króna, 1,43 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, en sam­bæri­legur kostn­aður í Noregi er um 0,79 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu. Það er því ljóst að sam­fé­lagið gæti sparað háar upp­hæðir, ef kostn­aður við greiðslu­miðlun hér yrði sam­bæri­legur við Noreg.

Nauðsynlegt sé að tryggja Seðlabankanum heimildir

Seðla­bank­inn hefur verið að vinna að inn­lendri smá­greiðslu­lausn und­an­farin ár í sam­starfi við …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Og af hverju er hann 0:7 I Noregi en 1.4 a Íslandi ? Tæplega dýrari electronur a Íslandi ? Enn ein einkavinavæðing arðsemi og okurs I uppsiglingu.
    0
    • Ólafur Sigurgeirsson skrifaði
      Gæti verið vegna þess að innlend neysla sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu var um 52% á Íslandi en ekki nema 39% í Noregi
      0
    • Pétur Hilmarsson skrifaði
      Gæti verið að credit sé dýrara en debet.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár