Þuríður Harpa: Fjármálaráðherra úr tengslum við veruleikann sem blasir við flestum

Formaður Öryrkja­banda­lags­ins skrifar opið bréf til Bjarna Bene­dikts­sonar. Hún seg­ist ekki geta skilið aðgerðar- og skeyt­ing­ar­leysi hans á annan hátt en að hann sé algjör­lega úr tengslum við veru­leik­ann sem blasir við flestum öðrum.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands. Mynd: ÖBÍ

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, skrifar opið bréf til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Bjarna Bene­dikts­sonar, og birtir í dag. Hún seg­ist meðal ann­ars ekki geta skilið aðgerð­ar­leysi og skeyt­ing­ar­leysi ráð­herra á annan hátt en að hann sé algjör­lega úr tengslum við veru­leik­ann sem blasir við flestum öðrum: Að fatlað og lang­veikt fólk býr við mikla fátækt.

„Það hlýtur að vera, því, ann­ars hefðir þú senni­lega þegar séð til þess að fólkið með lægstu tekj­urnar geti raun­veru­lega lifað af þeim – rétt eins og þú hefur sýnt í orði og verki að þeir sem mest hafa fyrir skuli ávallt fá meira,“ segir hún í bréf­inu.

Hún seg­ist þó vera bjart­sýn að eðl­is­fari og leggi alltaf af stað með það að hafa trú á fólki, trúa því að þeir sem velj­ast til starfa fyrir þjóð­ina sinni starfi sínu af alúð, heið­ar­leika og rétt­sýni. Hún segir að jákvæðar aðgerðir stjórn­valda í garð örorku­líf­eyr­is­þega séu nauð­syn­legar strax, ára­tuga þol­in­mæði þeirra sé á enda.

Öryrkjar hafa setið eftir

Þuríður Harpa segir að öryrkjar sé sá hópur í sam­fé­lag­inu sem hefur algjör­lega setið eftir þegar kjör ann­arra hafa verið leið­rétt. Þetta sé að stórum hluta fátækt fólk sem bíður eftir rétt­læti.

„Hátt­virti ráð­herra, í dag er brýn nauð­syn að for­gangs­raða í þágu þeirra sem minnsta fram­færslu hafa, í þágu þeirra lægst laun­uðu, í þágu þeirra sem hrekj­ast um í vel­ferð­ar­kerfi sem ekki dugar nokkrum manni. Í dag er ekki þörf á að dæla pen­ingum rík­is­ins í vasa þeirra sem hæstu launin hafa. Það er ekki for­gangs­at­riði, vegna þess að það fólk lifir vel af launum sínum. Getum við verið sam­mála, Bjarni, um að brýnna er að veita vatni á þurran gróður en að bera í bakka­full­ann læk­inn?

Þínu emb­ætti fylgir gríð­ar­leg ábyrgð. Þínar ákvarð­anir hafa áhrif á lands­menn alla. Ekki bara þá rík­ustu heldur líka þá allra fátæk­ustu. Þú ert í því vanda­sama hlut­verki að sjá til þess að þeir íbúar lands­ins sem búa við lægstu fram­færsl­una, geti lifað af henni. Hvað gerir þú til þess að svo megi verða? Í dag býr fjöldi fólks - „alvöru öryrkjar“ – við þá ang­ist að eiga ekki fyrir nauð­synjum og vera eigna­laus með öllu,“ segir Þuríður Harpa.

Hún tekur enn fremur fram að áhyggjur ráð­herra af því að fólk/öryrkjar vilji ekki að vinna séu óþarfar. Fyrsta skrefið því til sönn­unar væri að afnema „krónu á móti krónu“ skerð­ing­una strax. Með því móti myndi hann gera mörgum örorku­líf­eyr­is­þegum kleift að stunda vinnu. Þannig fengi fólk sjálft fyrstu 60.000 krón­urnar af vinnu­launum sínum í stað þess að þetta fé fari beina leið aftur í rík­is­kass­ann í formi skatta og skerð­inga.

Hægt er að lesa bréfið í heild sinni á vef­síðu ÖSÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár