Í september árið 2006 ríkti sannkallað fjölmiðlafár á Íslandi í kringum sjónvarpsþáttinn Rock Star Supernova sem sýndur var á Skjáeinum. Um var að ræða sjónvarpsþáttaröð, raunveruleikaþætti, sem gengu út á það að verið var að velja söngvara í hljómsveitina Supernova. Það sem olli fárinu á Íslandi var að íslenska poppstjarnan Magni Ásgeirsson, sem þekktur var sem aðalsprauta hljómsveitarinnar Á móti sól, vann hvern sigurinn af öðrum í raunveruleikaþættinum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir