Lífeyrissjóður fer fram á skýringar á því að Samherji fékk að sleppa við yfirtökutilboð

Einn þeirra líf­eyr­is­sjóða sem á stóran hlut í Eimskip ætlar að krefj­ast þess að Fjár­mála­eft­ir­litið skýri betur ákvörðun sína um að sleppa Samherja við því að gera yfir­tökutil­boð í félagið. Í rök­stuðn­ingi eft­ir­lits­ins var vísað í „sér­stakar aðstæður“.

Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson eru helstu stjórnendur og eigendur Samherja.
Kristján Vil­helms­son og Þor­steinn Már Bald­vins­son eru helstu stjórn­endur og eig­endur Samherja. Mynd: Samherji


Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta ætlar að fara fram á það við Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands að það veiti frek­ari rök­stuðn­ing fyrir þeirri ákvörðun sinni að sleppa Samherja við yfir­töku­skyldu í Eimskip.

Frá þessu er greint í Við­skipta­blað­inu í dag þar sem Ólafur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri Birtu, segir að sjóð­ur­inn sé fyrst og fremst að hugsa um for­dæm­is­gildið sem felist í því að veita Samherja und­an­þágu frá yfir­töku­skyld­unni, fram­tíð­ar­túlkun á henni og hug­tak­inu „sér­stakar aðstæður“ sem notað var til að rök­styðja ákvörð­un­ina. „Í ljósi þess að for­dæmin eru mjög fá og ólík finnst okkur að það þurfi að veita mark­að­inum fyllri upp­lýs­ingar.“

Birta á sex pró­sent hlut í Eimskip.

Hættu við á tíu dögum

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um málið eftir und­an­farnar vikur. Það snýst um að Samherji Holding, annar hluti Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, keypti 3,05 pró­sent hlut í Eimskip 10. mars síð­ast­lið­inn. Við það fór eign­ar­hlutur félags­ins í flutn­ing­aris­anum yfir 30 pró­sent og lögum sam­kvæmt mynd­að­ist þá skylda á Samherja að gera öðrum hlut­höfum yfir­tökutil­boð.

[adspot]Ástæða þess er sú að þegar einn fjár­festir er far­inn að ráða yfir meira en 30 pró­sent í félagi þá eru tök hans á því orðin svo mikil að þær aðstæður geta skap­ast að hann geti tekið ákvarð­anir, og hrint þeim í fram­kvæmd, sem þjóna hags­munum fjár­fest­is­ins, ekki félags­ins eða ann­arra hlut­hafa. Því er um lyk­il­skil­yrði í lög­unum sem ætlað er að vernda minni hlut­hafa fyrir því að stórir fjár­festar geti valdið þeim skaða.

Ástæða þess er sú að þegar einn fjár­festir er far­inn að ráða yfir meira en 30 pró­sent í félagi þá eru tök hans á því orðin svo mikil að þær aðstæður geta skap­ast að hann geti tekið ákvarð­anir, og hrint þeim í fram­kvæmd, sem þjóna hags­munum fjár­fest­is­ins, ekki félags­ins eða ann­arra hlut­hafa. Því er um lyk­il­skil­yrði í lög­unum sem ætlað er að vernda minni hlut­hafa fyrir því að stórir fjár­festar geti valdið þeim skaða.

Tíu dögum síðar, 20. mars, hafði staðan í heim­inum breyst hratt. Þann dag sendi Samherji Holding Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands erindi þar sem félagið óskaði eftir að fá und­an­þágu frá yfir­töku­skyld­unni sem hafði mynd­ast. Sú und­an­þágu­beiðni var rök­studd vegna þeirra „sér­stöku aðstæðna sem hefðu skap­ast á fjár­mála­mark­aði vegna útbreiðslu Covid-19. Í lögum um verð­bréfa­við­skipti er fjár­mála­eft­ir­lit­inu veitt heim­ild til að veita slíka und­an­þágu ef sér­stakar ástæður mæla með því.“

Þremur dögum síðar seldi Samherji 2,93 pró­sent hlut í Eimskip. Sú sala gerði það að verkum að atkvæða­vægi Samherja í Eimskip fór niður í 29,99 pró­sent, eða í hæsta mögu­lega fjölda atkvæða sem halda má á án þess að mynda yfir­töku­skyldu. Ekki liggur fyrir keypti þann hlut.

Vísuðu í tvö ólík fordæmi

Daginn eftir að Samherji seldi sig undir við­mið­un­ar­mörk ákvað Eimskip að fella afkomu­spá sína fyrir árið 2020 úr gildi vegna óvissunnar sem væri uppi vegna COVID-19.

Um síð­ustu mán­aða­mót ákvað Fjár­mála­eft­ir­litið svo að sam­þykkja beiðni Samherja Holding um að sleppa við yfir­töku­skyldu. Virði bréfa í Eimskip voru í lok þess dags voru 2,2 pró­sent minna en það var þegar yfir­töku­skyldan skap­að­ist. Síðan að und­an­þágan var veitt hefur verðið haldið áfram að falla og var í lok við­skipta á í gær var það 5,5 pró­sent lægra en 10. mars. Alls hefur um þriðj­ungur af virði Eimskips þurrkast út frá ára­mótum.

[links]Kjarninn spurði Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hvort að ákvörðun sem þessi, að hleypa fjár­festi undan yfir­töku­skyldu, ætti sér for­dæmi. Í svari þess segir að áður hafi verið veitt tví­vegis und­an­þága frá yfir­töku­skyldu, en að þau mál séu ekki að öllu leyti sam­bæri­leg við mál Samherja. Bæði þau mál snerta Icelandair og snú­ast um sitt hvorn end­ann á end­ur­skipu­lagn­ing­ar­ferli þess þjóð­hags­lega kerf­is­lega mik­il­væga fyr­ir­tækis eftir banka­hrunið haustið 2008.

Fjár­mála­eft­ir­litið sagð­ist enn fremur ekki hafa upp­lýs­ingar um „hug­læga afstöðu ann­arra hlut­hafa“ í Eimskip til ákvörð­unar þess að heim­ila Samherja að losna undan yfir­töku­skyld­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár