Sláandi niðurstöður könnunar kalli á afgerandi viðbrögð af hálfu forseta Alþingis

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar segir að sú staða sem uppi er á Alþingi sé ekki ein­göngu óboð­leg þeim ein­stak­lingum sem um ræðir, heldur sverti ímynd Alþingis og hafi hamlandi áhrif á getu og vilja fólks til þess að starfa á vett­vangi stjórn­mál­anna.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

„Nið­ur­stöður könn­unar á starfs­um­hverfi og vinnu­staða­menn­ingu Alþingis eru slá­andi og kalla á afger­andi við­brögð af hálfu for­seta Alþingis.“ Þetta kemur fram í bréfi þing­flokks­for­manns Við­reisnar, Hönnu Katrínar Frið­riks­son, til Stein­gríms J. Sig­fús­sonar for­seta Alþingis sem sent var til hans í dag.

Í könn­un­inni sem fram­kvæmd var fyrr á árinu kemur fram að fimmtán þing­menn hafi orðið fyrir ein­elti í starfi eða í tengslum við starf sitt, eða 35,7 pró­sent þeirra 42 þing­manna sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Alls 20 pró­sent af þeim 153 starfs­mönnum á Alþingi sem svör­uðu könn­un­inni sögð­ust hafa orðið fyrir ein­elti í starfi sínu og 18,4 pró­sent þátt­tak­enda sögðu að þeir hefðu ein­hvern­ tím­ann orðið fyrir kyn­bund­inni áreitni á starfs­tíma sínum á Alþingi eða í tengslum við starf sitt þar.

Aðför að lýðræðinu

[links]Í bréfi Hönnu Katrínar segir að könn­unin sýni að óásætt­an­legur fjöldi þing­manna, starfs­fólks Alþingis og starfs­fólks þing­flokka hafi upp­lifað ein­elti og kyn­ferð­is­legt eða kyn­bundið áreiti í starfi sínu. Þessi staða sé ekki ein­göngu óboð­leg þeim ein­stak­lingum sem um ræðir, heldur sverti ímynd Alþingis og hafi hamlandi áhrif á getu og vilja fólks til þess að starfa á vett­vangi stjórn­mál­anna. Það síð­ast­nefnda sé alvar­leg aðför að lýð­ræð­inu.

„Fram hefur komið að jafn­réttis­nefnd Alþingis er ætlað að ræða eft­ir­fylgni könn­un­ar­innar. Af hálfu Við­reisnar vil ég leggja áherslu á að þeirri vinnu sé hraðað eins og kostur er. Jafn­framt sé þess gætt að eiga sam­starf við þá flokka sem sæti eiga á Alþingi um nauð­syn­legar breyt­ingar á vinnu­að­stæðum og vinnu­staða­menn­ingu. End­ur­skoðun á þing­skap­ar­lögum hlýtur að vera undir í þeirri vinnu.

Til við­bótar við það að bæta starfs­um­hverfi á Alþingi til fram­búðar, er mik­il­vægt að koma strax til móts við þá sem nú upp­lifa ein­elti eða áreiti í starfi sínu. Af því til­efni má nefna að Viðreisn samdi fyrir ári við Hagvang um að taka í notkun þjón­ustu Sið­ferð­is­gátt­ar­innar fyrir skráða félaga og starfs­fólk Við­reisnar. Sið­ferð­is­gáttin er vett­vangur til að koma á fram­færi kvört­unum eða ábend­ingum um ein­elti, áreiti, ofbeldi eða van­líðan í starfi til óháðs aðila sem kemur þeim í réttan far­veg. Reynslan af þessum stuðn­ingi er jákvæð og ekki úr vegi að jafn­réttis­nefnd Alþingis skoði svip­aða nálgun,“ segir í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár