Þingmenn segjast hafa orðið fyrir bæði einelti og kynbundinni áreitni

Á annan tug þing­manna hafa upp­lifað ein­elti og/eða kyn­bundið áreiti í starfi sínu eða í tengslum við starf sitt, sam­kvæmt nýrri könnun frá Félags­vís­inda­stofnun sem þingið lét vinna og birt var í dag. Nið­ur­stöð­urnar eru „slá­andi“ að sögn for­seta Alþingis.

Fimmtán þing­menn segj­ast hafa orðið fyrir ein­elti í starfi eða í tengslum við starf sitt, eða 35,7 pró­sent þeirra 42 þing­manna sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar í könnun á starfs­um­hverf­inu á Alþingi sem fram­kvæmd var fyrr á árinu og birt var á vef Alþingis í dag.

Alls 20 pró­sent af þeim 153 starfs­mönnum á Alþingi sem svör­uðu könn­un­inni sögð­ust hafa orðið fyrir ein­elti í starfi sínu og 18,4 pró­sent þátt­tak­enda sögðu að þeir hefðu ein­hvern­tím­ann orðið fyrir kyn­bund­inni áreitni á starfs­tíma sínum á Alþingi eða í tengslum við starf sitt þar.

Í síð­ar­nefnda hópnum voru 14 þing­menn, af alls 44 þing­mönnum sem svör­uðu spurn­ing­unni. Meiri­hluti þeirra starfs­manna á Alþingi sem sögð­ust hafa orðið fyrir kyn­bund­inni áreitni sögðu að það hefði verið af hendi fleiri en eins ein­stak­lings.

Þeir sem beittu kyn­bund­inni áreitni voru sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar að miklum meiri­hluta karlar, eða 74 pró­sent. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti þeirra sem sögð­ust hafa orðið fyrir kyn­bund­inni áreitni sögð­ust ekki hafa til­kynnt áreitn­ina, eða 25 af þeim 27 starfs­mönnum á Alþingi sem sögð­ust hafa orðið fyrir slíkri áreitni.

Í til­kynn­ingu frá Alþingi um nið­ur­stöður könn­un­ar­innar segir að hún hafi leitt í ljós að erfið sam­skipti, ein­elti, kyn­ferð­is­leg og kyn­bundin áreitni hafi fremur mælst meðal þing­manna en almennt meðal starfs­fólks skrif­stofu Alþingis.

Helmingur þingmanna telur að starf sitt hafi valdið fjölskyldunni erfiðleikum

Þingmenn beðnir um að svara áttum beinum spurn­ingum um áhrif þing­starfs­ins, sem samdar voru upp úr sam­bæri­legum rann­sóknum sem lagðar hafa verið fyrir á evr­ópskum þjóð­þingum.

Alls svör­uðu 45 þing­menn þessum spurn­ingum og í ljós kom að helm­ingur þeirra taldi að starf þeirra sem þing­menn hefði valdið fjöl­skyldu­með­limum þeirra erf­ið­leikum. Hlut­falls­lega voru svipað margar konur og karlar sem sögðu að svo væri.

Af þeim höfðu einnig 23,3 pró­sent upp­lifað að myndir og/eða ummæli um þau sem höfðu kyn­ferð­is­legar vís­anir eða inn­tak hefðu birst í fjöl­miðlum, Hlut­falls­lega fleiri konur en karlar höfðu slíka reynslu eða 31,6 pró­sent kven­kyns þing­manna og 16,7 pró­sent karla á þingi.

Þá töldu 29,5 pró­sent sig hafa orðið fyrir áreitni og hegðun sem væri ítrekuð og ógn­andi. Hlut­falls­lega fleiri konur en karlar höfðu slíka reynslu eða 36,8 pró­sent kvenna og 24 pró­sent karla á þingi.

Tæp 16 pró­sent þing­mann­anna sem svör­uðu greindu svo frá því að hafa orðið fyrir lík­am­legu ofbeldi í tengslum við starf sitt á Alþingi og þá greindu 14,6 pró­sent svar­enda frá því að nánum fjöl­skyldu­með­limum hefði verið hótað ofbeldi í tengslum við störf sín á Alþingi.

Niðurstöðurnar „sláandi“ að mati forseta Alþingis

Alls var könn­unin send á 206 manns sem vinna á Alþingi, þing­menn, starfs­menn þing­flokka og starfs­fólk Alþingis. Svar­hlut­fallið könn­un­ar­innar, sem Félags­vís­inda­stofnun vann, var því 74,3 pró­sent.

Stein­grímur J. Sig­fús­son for­seti Alþingis sagði við upp­haf þing­fundar fyrr í dag að nið­ur­stöð­urnar væru nokkuð slá­andi og þau skila­boð þing­for­set­ans eru ítrekuð í til­kynn­ingu þings­ins um könn­un­ina.

„Ég tel afar mik­il­vægt að þessi könnun hafi verið gerð sem liður í aðgerðum, í ferli, til að takast á við og laga það sem betur má fara. Við hljótum að taka nið­ur­stöð­urnar alvar­lega, slá­andi sem þær eru, fylgja þeim eftir og halda vinn­unni áfram,“ er haft eftir Stein­grími.

For­sætis­nefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í jan­úar að stofna jafn­réttis­nefnd Alþingis. Nefndin er skipuð þeim Guðjóni Brjáns­syni og Bryndísi Har­alds­dóttur af hálfu for­sætis­nefndar og af hálfu starfs­fólks skrif­stofu Alþingis sitja í henni Ragna Árna­dóttir skrif­stofu­stjóri og Saga Stein­þórs­dóttir starfs­manna­stjóri.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Alþingi er nefnd­inni ætlað að ræða eft­ir­fylgni könn­un­ar­innar og mun jafn­réttis­nefnd Alþingis hafa sam­ráð við jafn­réttis­nefnd skrif­stofu Alþingis eftir því sem til­efni verður til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár