Mótmæli í enska boltanum: Við erum stuðningsmenn, ekki viðskiptavinir

Stuðn­ings­menn þeirra 20 liða sem leika í ensku úrvalds­deild­inni og tíu liða sem leika í næstefstu deild þar í landi taka höndum saman um þessa helgi og mót­mæla háu miða­verði á leiki í deild­unum. Mót­mæl­unum verður komið á fram­færi á leikjum helg­ar­innar þar sem til stendur að breiða úr borðum til að vekja athygli á mál­staðnum. Á meðal þeirra leikja sem til stendur að mót­mæla á eru stór­leikir sunnu­dags­ins, Merseyside-nágranna­slagur Everton og Liverpool og fjand­vina­hitt­ingur Arsenal og Manchester United í London. Báðum leikj­unum er sjón­varpað um allan heim og sjón­varps­á­horf­endur eru mörg hund­ruð millj­ónir.

Skila­boðið eru skýr: stuðn­ings­menn eru ekki við­skipta­vinir sem eru bara til þess að græða á, þeir eru ástæðan fyrir því að enska knatt­spyrnan er það sem hún er, eitt vin­sælasta afþrey­ing­ar­efni í heimi. Und­an­farin ár hefur þróun á miða­verði á leik­ina hins vegar verið með þeim hætti að það er vand­kvæðum bundið fyrir marga stuðn­ings­menn að eiga fyrir þeim. Og það telja stuðn­ings­manna­sam­tök vítt og breitt um England algjöra frá­leita stöðu.

[caption id="attachment_40481" align="alignnone" width="1000"] Einn þeirra leikja sem mót­mælt verður á er einn fræg­asti nágranna­slagur heims, leikur Everton og Liverpool sem fram fer á sunnu­dag.[/caption]

Ótrúlegir sjónvarpssamningar


Enska úrvals­deildin er í raun fyr­ir­tæki þar sem liðin 20 sem í henni spila hverju sinni eru í hlut­verki hlut­hafa. Vin­sældir deild­ar­innar eru nær for­dæma­lausar og hún er sú knatt­spyrnu­deild sem lang­flestir áhorf­endur horfa á í heim­inum. Leikjum úr ensku úrvals­deild­inni er sjón­varpað til yfir 212 svæða í heim­inum þar sem eru 643 millj­ónir heim­ila og 4,7 millj­arðar manns búa.

Einn þeirra leikja sem mótmælt verður á er einn frægasti nágrannaslagur heims, leikur Everton og Liverpool sem fram fer á sunnudag.
Einn þeirra leikja sem mót­mælt verður á er einn fræg­asti nágranna­slagur heims, leikur Everton og Liverpool sem fram fer á sunnu­dag.

Við­skipta­legur árangur þessa fyr­ir­bæris, sem var sett á fót árið 1992, hefur verið ævin­týra­legur. Þar skiptir mestu máli auknar tekjur vegna sölu á sjón­varps­rétti. Þegar úrvalds­deildin var sett á fót greiddu hand­hafar sjón­varps­rétt­ar­ins 191 milljón pund fyrir sex ára samn­ing. Það þýddi að liðin í deild­inni, eig­endur hennar, fengu sam­tals 32 millj­ónir punda til að skipta á milli sín á árunum 1992 til 1997.

Virði sjón­varps­rétt­ar­ins hefur marg­fald­ast í verði síðan þá. Í byrjun árs var gerður nýr samn­ingur sem er að mörgum talin nærri galin. Þá var rétt­ur­inn fyrir árin 2016-2019 seldur fyrir 5,2 millj­arða punda. Það gera rúm­lega eitt þús­und millj­arðar íslenskra króna. Eina íþrótta­deildin í heim­inum sem þénar meira vegna seldra sjón­varps­rétta er banda­ríska NFL-deildin.

[caption id="attachment_25268" align="align­right" width="300"] 365 miðlar halda á sjón­varps­rétt­inum til að sýna frá enska bolt­anum út þetta tíma­bil. Fyr­ir­tækið fær að öllum lík­indum sam­keppni um hann frá Símanum þegar rétt­ur­inn verður boð­inn út að nýju í næsta mán­uði.[/caption]

365 miðlar halda á sjónvarpsréttinum til að sýna frá enska boltanum út þetta tímabil. Fyrirtækið fær að öllum líkindum samkeppni um hann frá Símanum þegar rétturinn verður boðinn út að nýju í næsta mánuði.
365 miðlar halda á sjón­varps­rétt­inum til að sýna frá enska bolt­anum út þetta tíma­bil. Fyr­ir­tækið fær að öllum lík­indum sam­keppni um hann frá Símanum þegar rétt­ur­inn verður boð­inn út að nýju í næsta mán­uði.

Það þýðir að Sky Sports og BT Sport, sem keyptu rétt­inn, borga meira en tíu milljón pund fyrir hvern leik sem stöðv­arnar sýna. Til sam­an­burðar má nefna að samn­ing­ur­inn sem var í gildi fyrir árin 2013 til 2016 kost­aði um þrjá millj­arða punda. Nýi samn­ing­ur­inn er því 70 pró­sent hærri en sá sem var í gildi.

Til við­bótar við þennan samn­ing selur úrvalds­deildin sýn­ing­ar­rétt á sér til 80 ann­arra aðila í heim­inum sem sýna leiki hennar utan Englands. Verið er að ganga frá sölu þess réttar um þessar mundir. Til dæmis verður lík­ast til til­kynnt um hver fékk rétt­inn í Noregi í gær og rétt­ur­inn til að sýna frá enska bolt­anum á Íslandi fer í útboð í nóv­em­ber þar sem fast­lega er búist við því að Síminn muni keppa við núver­andi rétt­hafa, 365 miðla, um að kom­ast yfir hann. Enskir fjöl­miðlar telja að salan á alþjóða­rétt­inum muni skila ensku úrvals­deild­inni þremur millj­örðum punda til við­bótar á samn­ings­tím­anum, eða um 580 millj­örðum íslenskra króna. Því fá liðin 20 sem spila í deild­inni rúm­lega tvo millj­arða punda til skipt­anna á hverju ári sem samn­ing­ur­inn gildir. Það gerir um 100 millj­ónir punda á hvert lið að með­al­tali. Það er alvöru pen­ingur.

Flest ríkustu knattspyrnuliðin í heimi eru ensk


Þessi mikla tekju­aukn­ing hefur gert ensk knatt­spyrnu­lið að risa­fyr­ir­tækjum. Fimm af átta rík­ustu félags­liðum heims eru ensk. Hin þrjú eru Real Madrid,Barcelona og Bayern Munchen. Öll 20 liðin í ensku úrvals­deild­inni eru á meðal 30 rík­ustu liða í heim­inum. Staðan er svo góð að eig­endur Manchester United, sem keyptu liðið með gríð­ar­lega stórri skuld­settri yfir­töku fyrir nokkrum árum og skráð það svo á markað, eru farnir að greiða sér út háan arð án þess að það hafi áhrif á getu liðs­ins til að kaupa leik­menn eða ráð­ast í aðrar nauð­syn­legar fjár­fest­ingar.

En einn hópur nýtur ekki þessa mikla vaxtar: stuðn­ings­menn­irnir sem troð­fylla vell­ina í ensku úrvals­deild­inni hverja helgi. Und­an­farin ár hefur upp­bygg­ing nýrra leik­vanga snú­ist að miklu leyti um að fjölga við­hafnar-gler­stúkum sem ofur­ríkir geta keypt til að fylgj­ast með leikjum í betra yfir­læti. Rík áhersla hefur verið lögð á að fjölga "corporate"-tekjum.

[caption id="attachment_40482" align="alignnone" width="916"] Manchester United er eitt rík­asta knatt­spyrnu­fé­lag heims. Félagið er skráð á markað í Banda­ríkj­unum og eig­endur þess fá háar arð­greiðslur frá því.[/caption]

Miðaverð hækkað gríðarlega


Á sama tíma hefur almennt miða­verð verið hækkað gríð­ar­lega. Frá árinu 2011 hafa ódýr­ustu mið­arnir á leiki í úrvals­deild­inni hækkað um 15 pró­sent. Á sama tíma jókst kostn­aður við fram­færslu í Bret­landi um 6,8 pró­sent. Miða­verðið hækk­aði því mun skarpar en flestar nauð­synja­vörur í land­inu. Eft­ir­spurnin eftir miðum er vit­an­lega gríð­ar­leg. Síðustu tvö tíma­bil hefur sam­an­lögð nýt­ing allra leik­vanga liða í úrvalds­deild­inni verið 96 pró­sent. Og það hafa liðin nýtt sér til að hækka miða­verðið. Í könnun BBC á því hvað knatt­spyrna kosti stuðn­ings­menn, sem birt verður 15. októ­ber næst­kom­andi, kemur fram að dýr­ustu mið­arnir á heima­leiki liða eru á leiki Arsenal, West Ham og Chelsea, þeir kosta á bil­inu 87 til 97 pund, eða allt að 19 þús­und krónum. Með­al­verðið á leik í deild­inni er um 54pund, rúm­lega tíu þús­und krónur. Miðarnir ganga síðan kaupum og sölum á svörtum mark­aði sökum gríð­ar­legrar eft­ir­spurnar en lít­ils fram­boðs og þar getur verðið auð­veld­lega tvö­fald­ast.

Manchester United er eitt ríkasta knattspyrnufélag heims. Félagið er skráð á markað í Bandaríkjunum og eigendur þess fá háar arðgreiðslur frá því.
Manchester United er eitt rík­asta knatt­spyrnu­fé­lag heims. Félagið er skráð á markað í Banda­ríkj­unum og eig­endur þess fá háar arð­greiðslur frá því.

Á hverjum leik er hluti miða frá­tek­inn fyrir stuðn­ings­menn aðkomuliðs­ins, enda gríð­ar­legur fjöldi Breta sem fylgja sínu liði viðs­vegar um landið hverja helgi. Verðið á þessum miðuð hefur hækkað mjög skarpt á und­an­förnum árum. Dýrustu aðkomu­mið­arnir, sem eru hjá sömu liðum og selja dýr­ustu almennu mið­anna, kosta á bil­inu 59 til 70 pund, eða allt að 13.500 krónur. Þá eiga stuðn­ings­menn aðkomuliða eftir að greiða fyrir allan sam­göngu­kostnað og uppi­hald.

Í könnun GoEuro Fotball, sem birt var fyrr á þessu ári, kom fram að það kost­aði stuðn­ings­menn í Englandi að með­al­tali 216,14 pund að ferð­ast á úti­leiki sinna liða, eða um 42 þús­und krónur. Það er fé sem lág- og með­al­tekju­menn í Englandi geta illa sér af í dægra­stytt­ingu 19 helgar á ári. Stuðn­ings­maður sem færi á alla úti­leiki síns liðs í deild­inni á einu tíma­bili væri að eyða tæpum 800 þús­und krónum að með­al­tali í það ævin­týri. GoEuro Fotball segir að það kosti sruðn­ings­menn nán­ast það sama að ferð­ast frá Englandi til Þýska­lands til að fara á leik í Bundesliga-deild­inni og það kostar þá að fara á úti­leik í ensku úrvalds­deild­inni.

[caption id="attachment_40483" align="alignnone" width="600"] Mikil óánægja hefur verið með þróun miða­verðs á leiki um langt skeið.[/caption]

Stuðningsmenn, ekki viðskiptavinir


Stuðn­ings­menn­irnir eru búnir að fá nóg af þessu okri og um helg­ina ætla þeir að grípa til aðgerða. Yfir­skriftin er að þeir seú stuðn­ings­menn, ekki við­skipta­vinir. á því sé mik­ill munur og liðin eigi að taka til­lit til þess.

Mikil óánægja hefur verið með þróun miðaverðs á leiki um langt skeið.
Mikil óánægja hefur verið með þróun miða­verðs á leiki um langt skeið.

Kröfur þeirra eru að miða­verð á alla leiki verði lækkað og að 20 punda þak verði sett á miða­verð á úti­leiki. Samtök stuðn­ings­manna segja að ensku knatt­spyrnu­liðið séu að fjar­læg­ast rætur sínar hratt. Stuðn­ings­menn þeirra, sem eru lyk­il­þáttur í að skapa þá ótrú­lega blóð­heitu umgjörð sem er í kringum þá íþrótta-sápu­óp­eru sem enska deildin er, eru að upp­lagi lang­flestir af lág- og milli­stétt. Fót­bolta­á­horf var afþrey­ingin sem þeir höfðu efni á að veita sér. Nú sé það hins vegar að verða sífellt fjar­læg­ari mögu­leiki að kom­ast á völl­inn. Þeir séu þess í stað fylltir af hálf­drukknum uppum og jakka­fata­klæddum millj­arða­mær­ingum í gler­búrum. Í almennu sæt­unum eru sífellt fleiri ferða­menn, sem virð­ast ótrú­lega oft vera Norðmenn.

Áhuga­vert verður að sjá hvort stjórn­endur lið­anna, og stjórn­endur stór­fyr­ir­tæk­is­ins ensku úrvalds­deild­ar­innar, hlusti á þetta ákall helstu stuðn­ings­manna lið­anna. Eða hvort það sé raun­veru­lega stefna þeirra að gera áhorf á leiki deild­ar­innar úr stúkunni að lúx­usvöru sem venju­legir neyt­endur hafa illa efni á veita sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár