Geta peningar keypt árangur og öryggi í ensku úrvaldsdeildinni í knattspyrnu?

Enska úrvalds­deildin hófst í dag. Þetta fyr­ir­bæri á sér­stakan stað í hjarta Íslend­inga af ein­hverri ástæðu. Áhorf og fylgni á þessa vin­sæl­ustu knatt­spyrnu­deild í heimi hér­lendis er ótrú­lega mikið og ófáar umræð­urnar á kaffi­stof­unum á mánu­dögum, á barnum á fimmtu­dögum eða í spjall­kerfum sam­fé­lags­miðl­anna hvenær sem er sem snú­ast um hana.

Annar hver full­orð­inn maður, og margar konur, virð­ist vera búinn að setja upp lið í Fantasy-deild­inni fyrir kom­andi tíma­bil og gíra sig upp í ánægj­una ,eða von­brigðin, sem rétt úrslit geta skapað. Hvað það er sem fær fólk til að týna sér í þess­ari afþr­ey­ingu með jafn glóru­lausum hætti og raun ber vitni er erfitt að segja til um. Og kannski hluti af sjarm­anum að vera ekki að greina það of mikið.

Það þýðir samt ekki að það megi ekki greina ensku deild­ina í ræmur, enda hluti af aðdrátt­ar­afl­inu að búa til rök­semd­ar­færslur fyrir því að þess­ari og hinni þróun mála innan hennar út frá allskyns töl­fræði. Sú töl­fræði sem skiptir mestu máli í dag er, því miður, fjár­mála­töl­fræðin. Nánar til­tekið er það orðin ófrá­víkj­an­leg breyta í árang­urs­upp­skrift að eyða for­múu fjár í að kaupa leik­menn og eng­inn hirðir lengur deild­ar­titil án þess að vera með að með­al­tali tvo lands­liðs­menn til taks í hverri stöðu.

Það getur hins vegar verið mjög áhuga­vert að greina fjár­út­látin og reyna að setja þau í sam­hengi við væntan árangur.

Stefnir í enn eitt metárið


Í raun má segja að liðin í ensku deild­inni fái þorra pen­ing­anna sina með þrennu móti. Í fyrsta lagi úr almennum rekstri. Þar eru lið með fjölda fylg­is­manna út um allan heim, t.d. Manchester United, Liverpool og Arsenal, með tölu­vert for­skot á aðra enda geta þau selt varn­ing á borð við bún­inga, sem eru auð­vitað end­ur­nýj­aðir árlega til að tryggja aukna sölu, til þeirra.

Í öðru lagi eru sum lið með syk­ur­pabba. Þ.e. ofur­ríka menn sem dæla fé í félögin sem þeir kaupa til að gera þau sam­keppn­is­hæf um titla á sem skemmstum tíma. Chelsea og Manchester City eru auð­vitað skýr­ustu dæmin um þetta. Og þessi pen­inga­dæl­ing er að virka. Pen­inga­liðin tvö hafa unnið sex af síð­ustu ell­efu deild­ar­meist­aratitlum.

Í þriðja lagi fá liðin fé vegna sjón­varps­rétt­ar­samn­inga. Umfang þeirra hefur eðli­lega auk­ist gríð­ar­lega sam­hliða auknum vin­sældum ensku úrvals­deild­ar­innar og fleiri kepp­ast nú um að kom­ast yfir rétt­inn en áður. Í byrjun árs var gerður nýr samn­ingur sem er að mörgum talin nærri galin. Þá var rétt­ur­inn fyrir árin 2016-2019 seldur fyrir 5,2 millj­arða punda. Það þýðir að Sky Sports og BT Sport, sem keyptu rétt­inn, borga meira en tíu milljón pund fyrir hvern leik sem stöðv­arnar sýna. Til sam­an­burðar má nefna að samn­ing­ur­inn sem var í gildi fyrir árin 2013 til 2016 kost­aði um þrjá millj­arða punda. Og þegar úrvals­deildin var sett á fót árið 1992 var sjón­varps­rétt­ur­inn seldur til sex ára fyrir 191 milljón punda. Til að setja þann vöxt á sölu­tekjum sjón­varps­réttar í sam­hengi þá fengu liðin í deild­inni sam­tals 32 millj­ónir punda á með­al­tali á árið á tíma­bil­inu 1992 til 1997. Á árunum 2016 til 2019 fá þau um 1,3 millj­arða punda til skipt­anna.

[caption id="attachment_36030" align="alignnone" width="768"] Liverpool eyddi rúm­lega 32 millj­ónum punda í Christian Benteke.[/caption]

Metið verður nær örugglega slegið


Auknar tekjur lið­anna vegna sölu sjón­varps­réttar end­ur­spegl­ast í eyðslu þeirra í leik­menn á liðnu sumri. Í fyrra­sumar var sett met í eyðslu þegar liðin 20 sem þá spil­uðu í deild­inni eyddu 857,7 millj­ónum punda í leik­menn. Þá eyddu þrettán lið meira en 25 millj­ónum punda í leik­manna­kaup.

Liverpool eyddi rúmlega 32 milljónum punda í Christian Benteke.
Liverpool eyddi rúm­lega 32 millj­ónum punda í Christian Benteke.

Í dag, þegar tæpur mán­uður er enn eftir þar til leik­manna­glugg­inn lokar, hafa liðin þegar eytt 517 millj­ónum punda. Búist er við því að sú tala muni hækka hratt á næstu vikum, enda sum liðin enn að leita sér að lyk­il­leik­mönnum. Á meðal þeirra kaupa sem hafa verið í umræð­unni eru kaup Chelsea á Baba Rahman (17,5 millj­ónir punda) og hinn lævísa og und­ir­förla til­raun þeirra til að kaupa John Stones (30 millj­ónir punda). Búist er við því að Manchester City kaupi að minnsta kosti einn mjög dýran leik­mann í við­bót og þykir Kevin De Bruyne (45 millj­ónir punda) tal­inn lík­leg­astur. Hitt Manchester liðið þarf að kaupa ein­hver til að fylla skarð hins fok­dýra Angel Di Maria, sem hefur verið seldur til Frakk­lands, og er talið að Pedro (um 20 millj­ónir punda) sé lík­leg­astur. Þá virð­ast flestir spek­ingar sam­mála um að Arsenal þurfi að kaupa sér fram­herja til að geta keppt um tit­il­inn og bresku blöðin hafa sagt að mestar likur séu á að Arsene Wenger reyni við Karim Benzema (45-50 millj­ónir punda).

Ef öll þessi kaup stóru lið­anna myndu ganga eftir myndu 162,5 millj­ónir punda bæt­ast við eyðsl­una og ýta henni upp í 679,5 millj­ónir punda. Og það yrði bara hluti af við­bót­areyðslu fjög­urra liða. Hin 16 munu ugg­laust ná að eyða að minnsta kosti sam­bæri­legri upp­hæð og þvi virð­ist blasa við að eyðslu­metið fyrir einn glugga verði slegið.


Stóru eyddu mikið í fyrra


Í fyrra­sumar voru það stóru liðin sem eyddu mestu. Manchester United fór af hjör­unum og keypti leik­menn fyrir 153 millj­ónir punda. Liverpool voru litlu skárri og eyddu 117 millj­ónum punda, að mestu í vafa­sama sókn­ar­menn og leik­menn frá Southampton sem stóðu síðan alls ekki undir vænt­ingum. Chelsea (88 millj­ónir punda) Arsenal (78 millj­ónir punda) og Manchester City (54,5 millj­ónir punda) komu þar á eftir. Eina liðið sem náði að troða sé á milli þeirra stóru í eyðslu var Southampton (58 millj­ónir punda), en það þurfti líka nán­ast að kaupa sér nýtt lið eftir að Liverpool ofborg­aði fyrir flesta lyk­il­menn þess frá árinu áður.

Í ár er staðan aðeins öðru­vísi. Liverpool heldur áfram að eyða stjarn­fræði­lega og hefur þegar keypt leik­menn fyrir 77,6 millj­ónir punda. Líkt og oft áður þá hefur liðið selt stór­stjörnu fyrir morðfé (Fernando Torres, Luis Suarez og nú Raheem Sterling) og keypt kippur af nýjum leik­mönnum á stórar fjár­hæðir í stað­inn. Að frá­dregnu því sem komið hefur í kass­ann vegna sölu á leik­mönnum þá er eyðsla Liverpool því „aðeins“ 23,5 millj­ónir punda.

Manchester United heldur áfram að eyða stórum fjár­hæðum, þótt að hæðum síð­asta árs sé enn ekki náð. Nú þegar hefur félagið eytt 69 millj­ónum punda í nýja leik­menn og er alls ekki hætt. Salan á Di Maria náði þó stórum hluta þess­arrar eyðslu til baka. City er svo auð­vitað ekki langt fjarri og hefur þegar eytt 59 millj­ónum punda, að lang­mestu í Raheem Sterling.

[caption id="attachment_36032" align="alignnone" width="590"] Þótt Chelsea og Arsenal hafi ekki eytt miklu enn sem komið er í sumar þá gæti það breyst á næstu vikum. Chelsea hefur til að mynda reynt mikið að kaupa John Stones frá Everton. Hann myndi kosta yfir 30 millj­ónir punda ef Everton myndi selja hann.[/caption]

"Minni" liðin að eyða stórum fjárhæðum


Það sem vekur hins vegar athygli er hóf­leg eyðsla Chelsea (17 millj­ónir punda) og Arsenal (10 millj­ónir punda), að minnsta kosti enn sem komið er. Og ekki síðri athygli vekur mikil eyðsla „minni“ liða.

Þótt Chelsea og Arsenal hafi ekki eytt miklu enn sem komið er í sumar þá gæti það breyst á næstu vikum. Chelsea hefur til að mynda reynt mikið að kaupa John Stones frá Everton. Hann myndi kosta yfir 30 milljónir punda ef Everton myndi selja hann.
Þótt Chelsea og Arsenal hafi ekki eytt miklu enn sem komið er í sumar þá gæti það breyst á næstu vikum. Chelsea hefur til að mynda reynt mikið að kaupa John Stones frá Everton. Hann myndi kosta yfir 30 millj­ónir punda ef Everton myndi selja hann.

Bæði Newcastle (35,9 millj­ónir punda) og Aston Villa (38,4 millj­ónir punda) hafa eytt miklum fjár­hæðum. Þá hafa Totten­ham, Southampton, Crystal Palace, West Ham, Leicester, Sund­er­land og Watford öll eytt um 20 millj­ónum punda eða meira í nýja leik­menn. Meira að segja nýliðar Bournemouth hafa eytt 18 millj­ónum punda og West Bromwich fer með heildar­eyðslu sína nálægt 30 millj­ónum punda ef félagið nær að klára kaupin á sókn­ar­mann­inum Solomon Rondon, líkt og lík­legt þykir.

Hóf­leg­ustu lið deild­ar­innar, og þau einu ásamt Arsenal sem hafa eytt undir tíu millj­ónum punda í leik­menn í sumar, eru Norwich (8,2 millj­ónir punda), Swansea (8,9 millj­ónir punda), Stoke (8,7 millj­ónir punda) og auð­vitað Everton (sem hefur ein­ungis eytt 4,4 millj­ónum punda).

Líkt og svo oft áður þá skiptir eyðslan samt ekki öllu máli heldur gæði þeirra ell­efu leik­manna sem spila hverju sinni. Í fyrra eyddi Hull til að mynda tæpum 40 millj­ónum punda og QPR um 36,5 millj­ónum punda í nýja leik­menn. Bæði lið féllu samt.

Það er því ljóst að þótt pen­ingar geti oft keypt árangur handa topp­lið­unum þá fer því fjarri að þeir geti keypt öryggi og áfram­hald­andi deild­ar­veru hjá minni liðum deild­ar­innar. Áhuga­vert verður að bera eyðslu lið­anna í sumar saman við árangur þeirra að loknu því tíma­bili sem hefst í dag að ári liðnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár