„Enski boltinn er í útboði nú í nóvember með réttinn til þriggja ára frá og með haustinu 2016. Síminn fylgist spenntur með öllum spennandi útsendingarréttum,“ segir í formlegu svari Gunnhildar Örnu Gunnarsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans, við fyrirspurn Kjarnans um það, hvort Síminn eða SkjárEinn ætli sér að bjóða í réttinn til útsendinga á ensku úrvalsdeildinni.
365 miðlar eru með útsendingaréttinn á ensku úrvalsdeildinni fram til hausts 2016. Líklegt er að nokkuð hörð samkeppni verði um réttinn að þessu sinni, samkvæmt heimildum Kjarnans, og þá á milli 365 og Símans.
[caption id="attachment_25267" align="alignnone" width="606"] 365 hefur haft réttinn til útsendinga á ensku úrvalsdeildinni hér á landi um árabil, og hefur hug á því að endurnýja hann. Búast við nokkurri samkeppni um réttinn að þessu sinni.[/caption]

Á Norðurlöndunum er hart barist um réttinn og er búist við því að metupphæðir verði greiddar fyrir rétt til útsendinga til þriggja ára frá hausti 2016. Samkvæmt skrifum VG í Noregi, er reiknað með því að greiða þurfi yfir milljarð norskra króna, eða um fimmtán milljarða króna á núverandi gengi, fyrir rétt til útsendingar þar í landi en mikill áhugi er á enska boltanum í Noregi, eins og hér á landi. Sé mið tekið af þeirri upphæð sem nefnd er í umfjöllun VG, og hún sett hlutfallslega niður á íslenskan markað miðað við mun á íbúafjölda, þá gæti rétturinn á útsendingum enska boltans hér á landi til þriggja ára farið á tæpan milljarð króna.
[caption id="attachment_37150" align="alignnone" width="1500"] Síminn hefur opnað SkjaEinn á nýjan leik, en selur áskrifendum aðgang að efnisveitu.[/caption]

Síminn er sem kunnugt er á leið á markað, en fjárhagsstaða félagsins, eftir endurskipulagningu, er sterk. Eigið fé félagsins er tæplega 30 milljarðar króna. Almennt útboð á bréfum Símans til fjárfesta fer fram 5. til 7. október, en það er Arion banki sem er að selja á bilinu 18 til 21 prósent í félaginu. Búist er við því að viðskipti með bréf félagsins í kauphöll geti hafist 15. október.
Fjárhagur 365 er einnig sterkur, sé horft til ársreiknings félagsins fyrir árið 2013, en þá nam eigið fé félagsins 3,3 milljörðum króna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir