Fyrrverandi borgarfulltrúi dæmdur fyrir peningaþvætti

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur verið dæmdur fyrir pen­inga­þvætti. Hann hafði við­ur­kennt skatta­laga­brot við rann­sókn máls­ins en það var fyrnt.

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var í morgun dæmdur í tíu mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrir pen­inga­þvætti. Frá þessu er greint á vef Frétta­blaðs­ins. Sak­sókn­ari í mál­inu hafði farið fram á átta til tólf mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi.

Kjarninn greindi fyrstur miðla frá því að Júlíus Vífill hefði verið ákærður í ágúst síð­ast­liðnum. Júl­íus Víf­ill við­ur­kenndi við rann­sókn á meintum efna­hags­brotum hans að hann hefði framið skatta­laga­brot. Þetta kom fram í ákæru á hendur honum sem hér­aðs­sak­sókn­ari gaf út 28. júní síð­ast­lið­inn. Í þeirri játn­ingu fólst að Júl­íus Víf­ill við­ur­kenndi að hann gaf ekki upp til skatts tekjur sem honum hlotn­uð­ust árið 2005, eða fyrr, og geymdar eru á aflands­reikn­ingi. Júl­íus Víf­ill hefur ekki viljað upp­lýsa um hvenær umræddra tekna var aflað og því er ekki hægt að segja með vissu hver ávinn­ingur hans af skatta­laga­brot­unum hefur ver­ið.

[adspot]Skatta­laga­brot fyrn­ast hins vegar á sex árum. Það þýðir að ef við­kom­andi fremur slík, og kemur sér þannig undan að greiða lög­bund­inn skatt eins og aðrir þegnar ríkja þurfa að gera, en nær að hylja þau í þann tíma þá kemst hann upp með það.

Öðru máli gegnir hins vegar um pen­inga­þvætti. Lögum lands­ins var breytt árið 2009 þannig að refsi­vert var að þvætta ávinn­ing af eigin afbrot­um. Því var Júl­íus Víf­ill ákærður fyrir pen­inga­þvætti frá þeim tíma sem lögin tóku gildi, eða frá 30. des­em­ber 2009. Dómur hefur nú fallið í því máli.

Var í Panamaskjölunum

Júl­­íus Vífill var einn þeirra stjórn­­­mála­­manna sem voru opin­beraðir í Pana­ma­skjöl­unum og greint var frá í sér­­­stökum Kast­­ljós­þætti sem sýndur var 3. apríl í 2016. Þar kom meðal ann­ars fram að hann hefði í árs­­byrjun 2014 stofnað félagið Silwood Foundation á Panama. Rík áhersla var lögð á það við stofnun félags­­ins að nafn Júl­í­usar Víf­ils kæmi hvergi fram í tengslum við félag­ið, sam­kvæmt umfjöll­un­inni.

Tveimur dögum áður en að Kast­ljós­þátt­ur­inn var sýndur sendi Júlíus Vífill frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann sagði að til­gang­ur­inn með stofnun aflands­fé­lags­ins væri að stofna eft­ir­launa­sjóð í Sviss. „Allt sem við kemur þessum sjóði er í sam­ræmi við íslensk lög og reglur, enda naut ég sér­fræði­ráð­gjafar til að tryggja að rétti­lega og lög­lega væri að málum staðið. Mér var ráð­lagt að skrá stofnun sjóðs­ins í Panama. Ég hef hvorki fengið neitt greitt úr sjóðnum né haft af honum ann­ars konar tekjur og hef ekki heim­ild til að ráð­stafa fjár­munum úr honum.”

Júlíus Vífill sagði af sér sem borg­ar­full­trúi 5. apríl 2016, tveimur dögum eftir að þátt­ur­inn var sýndur.

Sakaðir um að koma ættarauð undan

Systk­ini Júl­í­usar Vífils og erf­ingjar for­eldra hans hafa sakað hann og bróður hans, Guðmund Ágúst Ingv­ars­son, um að komið ætt­ar­auð for­eldra þeirra undan og geymt hann á aflands­reikn­ing­um. Það gerðu þau meðal ann­ars í Kast­ljós­þætti sem sýndur var í maí 2016. Meintur ætt­a­r­auður eru sjóðir sem urðu til vegna starf­semi Ingvars Helga­sonar hf., sem um ára­bil var eitt stærsta bíla­um­boð lands­ins.

[adspot]Þessum ávirð­ingum hefur Júlíus Vífill ávallt hafnað með öllu. Í við­tali við Morg­un­blaðið í maí 2016 sagði hann þvert á móti að systk­ini hans hefðu dregið af sér tugi millj­óna króna af banka­reikn­ingi móður þeirra og í yfir­lýs­ingu sem Júlíus Vífill sendi frá sér sagði hann að ásak­anir systk­ina sinna væru algjör ósann­indi og ómerki­leg ill­mælgi.

Þann 5. jan­úar 2017 kærði skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóri Júl­íus Vífil til emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara vegna meintra brota á skatta­lögum og vegna gruns um pen­inga­þvætti. Við síð­­­ara brot­inu getur legið allt að sex ára fang­els­is­­dóm­­ur.

Í kærunni kom fram að Júl­­íus Víf­ill hafi átt fjár­­muni á erlendum banka­­reikn­ingum að minnsta kosti frá árinu 2005. Frá árinu 2014 hafi þeir verið hjá svis­s­­neska bank­­anum Julius Bär í nafni aflands­­fé­lags Júl­í­us­­ar Vífils.

Ráðleggingar „svo þetta endi ekki allt í skatti“

Hér­­aðs­sak­­sókn­­ara barst hljóð­­upp­­­taka frá emb­ætti skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra þann 27. mars 2017. Um svipað leyti var sama upp­­­taka send á fjöl­miðla.

[links]Á upp­­tök­unni, sem er af fundi sem fór fram þremur dögum eftir birt­ingu Panama­skjal­anna, mátti heyra Júl­­íus Víf­ill og lög­­­mann hans, Sig­­urð G. Guð­jóns­­son, ræða um þá fjár­­muni sem vistaðir voru í svis­s­­neska bank­­anum við ætt­­ingja Júl­í­usar Víf­ils, sem höfðu ásakað hann um að hafa komið ætt­­­ar­auð for­eldra sinna undan og geymt á aflands­­reikn­ing­­um. Júl­­íus Víf­ill vildi að Sig­­urður G. Guð­jóns­son myndi verja sig í mál­inu sem hér­­aðs­sak­­sókn­­ari hefur rann­sakað á hendur hon­­um. Á það vildi hér­­aðs­sak­­sókn­­ari ekki fall­­ast þar sem emb­ættið vildi kalla Sig­­urð til skýrslu­­töku í mál­inu og það úti­­lok­aði ekki að Sig­­urður fái stöðu sak­­born­ings í því. Ástæðan eru þær ráð­­legg­ingar sem Sig­­urður veitir á hljóð­­upp­­tök­unni, um hvernig sé hægt að kom­­ast hjá því að greiða fjár­­mun­ina til syst­k­ina Júl­í­usar Víf­ils án þess að „þetta endi ekki allt í skatt­i.“

Þessi upp­taka átti þátt í því að ákæra var gefin út á hendur Júlíusi Vífli sem nú er lokið með dómi í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár