Sýklalyfjanotkun Íslendinga eykst en minnkar á Norðurlöndunum

Sýkla­lyfja­notkun á mönnum á Íslandi jókst um rúm­lega 3% á árinu 2017 miðað við 2016 en sýkla­lyfja­notkun hjá dýrum var áfram ein sú minnsta hér á landi miðað við önnur Evr­ópu­lönd.

Sýkla­lyfja­notkun Íslend­inga jókst um rúm­lega 3 pró­sent á síð­asta ári miðað við árið áður en sýkla­lyfja­notkun hjá dýrum var áfram ein sú minnsta hér á landi miðað við önnur Evr­ópu­lönd. Þetta kemur fram í nýrri árlegri skýrslu um sýkla­lyfja­notkun og algengi sýkla­lyfja­ó­næmra bakt­ería á Íslandi hjá mönnum og dýrum.

Í frétt Embættis land­læknis um málið segir að þetta valdi ákveðnum von­brigðum því á sama tíma minnk­aði sýkla­lyfja­notkun hjá mönnum á hinum Norð­ur­lönd­unum. Athygli veki minnk­andi notkun sýkla­lyfja hjá börnum yngri en 5 ára en hins vegar jókst notk­unin hjá ein­stak­lingum 65 ára og eldri.

Sýkla­lyfja­ó­næmi er áfram fremur lágt á Íslandi miðað við nágranna­þjóð­irnar og var það að mestu óbreytt miðað við árið 2016.

Mælt með eftirliti á sýklalyfjaónæmum bakteríum í matvælum

Í apríl 2017 skil­aði starfs­hópur heil­brigð­is­ráð­herra skýrslu um aðgerðir gegn útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmis. Starfs­hóp­ur­inn lagði til tíu til­lögur sem nauð­syn­legar væru í bar­átt­unni gegn sýkla­lyfja­ó­næmi. Þar á meðal voru til­lögur um hvernig hægt væri að draga úr sýkla­lyfja­notkun hjá mönnum og mælt var með eft­ir­liti á sýkla­lyfja­ó­næmum bakt­er­íum í erlendum og inn­lendum mat­vælum.

Á árinu 2018 hófst vinna með læknum sem miðar að því að efla vit­und lækna um bættar ávís­ana­venjur sýkla­lyfja. Embætti land­læknis von­ast til að þetta muni leiða til minnk­andi notk­unar. Einnig var aukið eft­ir­lit með sýkla­lyfja­ó­næmum bakt­er­íum í mat­vælum og rann­sóknir á eðli dreif­ingar sýkla­lyfja­ó­næmis efldar. „Vonandi munu allir þessir þættir reyn­ast gagn­legir í bar­átt­unni við útbreiðslu sýkla­lyfja­ó­næmra bakt­ería sem álitin er vera ein helsta heil­brigðisógn sam­tím­ans,“ segir í frétt Embættis land­læknis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár