Tug milljarða aðlögun fram undan hjá ríkissjóði til að mæta samdrætti

End­ur­skoðuð fjár­mála­á­ætlun stjórn­valda gerir ráð fyrir því að umfang þeirra ráð­staf­ana sem þurfi að grípa til til að bæta afkomu rík­is­sjóðs vegna sam­dráttar geti numið sjö millj­örðum króna á næsta ári og 25 millj­örðum króna að þremur árum liðnum.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

End­ur­metnar afkomu­horfur hins opin­bera, bæði ríkis og sveit­ar­fé­laga, gera ráð fyrir að afkoma hins opin­bera – ríkis og sveit­ar­fé­laga – versni að óbreyttu um 40 til 46 millj­arða króna á ári.

[links]Höggið er mest á ríkið en ef ekk­ert verður að gert mun afkoma rík­is­sjóðs verða 35 millj­ónum krónum lak­ari í ár en fyrri afkomu­horfur gerðu ráð fyrir. Sama yrði upp á ten­ingnum á næsta ári.

Til að bregð­ast við þess­ari stöðu hefur Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagt fram til­lögu um breyt­ingu á fimm ára fjár­mála­stefnu stjórn­valda. Í henni segir að nauð­syn­legt verði að grípa til ráð­staf­ana til að bæta afkomu rík­is­sjóðs. Að óbreyttu megi gera ráð fyrir því að umfang slikra ráð­staf­ana geti numið um sjö millj­örðum króna á næsta ári til 25 millj­arða króna að þremur árum liðnum. „Þannig end­ur­spegli afkomu­mark­mið end­ur­skoð­aðrar fjár­mála­á­ætl­unar lægri afkomu í ljósi breyttra efna­hags­horfa en jafn­framt það stefnumið stjórn­valda að rekstur rík­is­sjóðs fari ekki í halla við núver­andi aðstæður.“

[adspot]Þetta þýðir að annað hvort þarf að skera niður um áður til­greinda upp­hæð í rík­is­rekstr­inum á tíma­bil­inu, afla nýrra tekna með til dæmis skatt­lagn­ingu eða fara bland­aða leið nið­ur­skurðar og nýrrar tekju­öfl­unar.

Þetta kemur fram í til­lögu um breyt­ingu á fjár­mála­stefnu sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra birti í gær.

WOW air og loðnubrestur

Ástæður þess að end­ur­skoða þarf fjár­mála­á­ætlun, sem þó var ein­ungis lögð fram í mars síð­ast­liðnum, ætti að vera flestum aug­ljós. Gjald­þrot WOW air í lok mars, sem er lyk­il­breyta í að gert sé ráð fyrir ell­efu pró­sent fækkun ferða­manna á árinu 2019, er þar lyk­il­breyta ásamt algjörum afla­bresti í loðnu­veiðum sem mun leiða til 18 millj­arða króna minni útflutn­ings en árið 2018.

Þessi staða hefur leitt til þess að hag­vaxt­ar­spár hafa farið úr því að vera jákvæðar í að vera nei­kvæðar. Hagstofa Íslands spáir nú 0,2 pró­sent sam­drætti á Íslandi í ár en Seðla­banki Íslands er enn svart­sýnni og spáir 0,4 pró­sent sam­drætti. Seðla­bank­inn hefur auk þess bent á, í frá­viks­grein­ingum í nýjasta hefti Pen­inga­mála, að frek­ari áföll í ferða­þjón­ustu og áhrif af útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu, geti aukið nei­kvæð áhrif umtals­vert á skömmum tíma.

  • Tillagan um end­ur­skoðun fjár­mála­stefn­unnar, sem birt var í gær, tekur við af þess­ari þróun. Helstu áherslur hennar eru að:
  • Aðhalds­stig opin­berra fjár­mála auki ekki á sam­drátt eða hjöðnun hag­vaxtar umfram þá aðlögun sem hag­kerfið er að ganga í gegnum.
  • Gerðar verði við­eig­andi afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir til að varna því að halli mynd­ist á starf­semi hins opin­bera.
  • Aðlögun stefn­unnar verði ekki það veiga­mikil að víkja þurfi tíma­bundið frá tölu­settum fjár­mála­reglum laga um opin­ber fjár­mál.
  • Fellt verði inn í end­ur­skoð­aða fjár­mála­stefnu nokk­urt svig­rúm fyrir lak­ari fram­vindu í efna­hags­for­sendum en áætl­un­ar­gerðin er reist á, sem ekki verði gengið á af öðrum ástæðum.
  • Felldur verði inn í stefn­una ásetn­ingur um að ef efna­hags­fram­vindan verður hag­felld­ari en nú er spáð verði afgangur á afkomu auk­inn í sam­ræmi við auknar tekjur af meiri hag­vexti.

Aldrei betri aðstæður til að bregðast við

Í nið­ur­lagi grein­ar­gerðar sem fylgir áætl­un­inni er farið yfir að það sé nú ger­legt að bregð­ast við sam­drætti með hætti sem lík­ast til hefur aldrei áður verið í Íslands­sög­unni. Þ.e. að staða þjóð­ar­bús­ins sé svo sterk að hægt verði að stuðla að mjúkri lend­ingu og hraðri upp­risu inn í næsta hag­vaxt­ar­skeið. „Það að ger­legt sé að bregð­ast við erf­ið­ari aðstæðum en áður var miðað við án þess að afkoma hins opin­bera verði nei­kvæð er til marks um trausta stöðu þjóð­ar­bús­ins og þann innri styrk rík­is­fjár­mál­anna sem tek­ist hefur að byggja upp. Þær umbætur í hag­kerf­inu sem stjórn­völd hafa staðið fyrir á síð­ustu árum og miss­erum gera það að verkum að hag­kerfið og hið opin­bera eru mun betur í stakk búin en áður til að mæta tíma­bund­inni ágjöf.“

[adspot]Í grein­ar­gerð­inni er meðal ann­ars nefnt að fjár­mála­kerfið hafi verið end­ur­reist á heil­brigðum grunni og að það starfi nú eftir skýru reglu­verki. Þá hafi fjár­magns­höft verið afnumin, rétt­indi í líf­eyr­is­sjóðum á opin­berum og á almennum vinnu­mark­aði hafi verið sam­ræmd, tollar og vöru­gjöld á iðn­að­ar­vörur verið felld niður og trygg­ing­ar­gjald á launa­stofn fyr­ir­tækja verið lækkað. „Nýverið hafa verið ákveðnar kostn­að­ar­samar ráð­staf­anir til að greiða fyrir kjara­samn­ingum á vinnu­mark­aði sem sam­rým­ast núver­andi stöðu atvinnu­lífs­ins og stuðla að efna­hags­legum stöð­ug­leika, öllum til hags­bóta, fremur en að raska honum. Tekju­skattur, einkum á þá sem eru undir með­al­launum, hefur verið lækk­aður sam­hliða því að barna­bætur og greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi hafa verið hækk­aðar. Það eykur ráð­stöf­un­ar­tekjur og lyftir undir eft­ir­spurn í hag­kerf­inu.“

Þar segir einnig að sam­fellt og þrótt­mikið hag­vaxt­ar­skeið und­an­farin átta ár hafi skilað heim­il­unum meiri kaup­mátt­ar­aukn­ingu en dæmi séu um áður. „Heimili og fyr­ir­tæki hafa nýtt sér vaxt­ar­skeiðið til að lækka skuldir sínar svo um munar og hafa nú borð fyrir báru. Skuldir sem rík­is­sjóður axl­aði í tengslum við end­ur­reisn fjár­mála­kerf­is­ins hafa verið greiddar upp að fullu og aðrar skuldir vegna halla­rekst­urs í kjöl­far falls banka­kerf­is­ins hafa einnig verið lækk­aðar mikið. Við það og með end­ur­fjár­mögnun lána á langtum hag­stæð­ari kjörum en boð­ist hafa til þessa hefur vaxta­byrði rík­is­sjóðs lækkað til muna. Vegna þessa góða árang­urs er hið opin­bera nú í ágætri stöðu til að standa af sér tíma­bund­inn mót­vind á meðan hag­kerfið aðlag­ast breyttum skil­yrðum og fær við­spyrnu fyrir nýtt hag­vaxt­ar­skeið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár