Í takt við umhverfið – Klappir grænar lausnir hf. á markað

Hluta­bréf í upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tæk­inu Klöppum verða tekin til við­skipta á First North mark­aði Kaup­hall­ar­innar á morgun.

Félagið Klappir grænar lausnir verður skráð á Nasdaq First North markað Kaup­hall­ar­innar á fimmtu­dag, en hug­bún­að­ar­lausnir fyr­ir­tæk­is­ins á sviði umhverf­is­mála eru meðal allra fyrstu upp­lýs­inga­kerfa sinnar teg­undar í heim­inum.

Klappir hefur vaxið jafnt og þétt, en skrán­ingin markar nokkur tíma­mót á skráðum mark­aði hér á landi. Félagið gefur ekki út nýtt hlutafé en öll bréf í B flokki hluta­bréfa verða skráð, eins og rakið er í skrán­ing­ar­lýs­ingu.

[links]For­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins er dr. Jón Ágúst Þor­steins­son, en hann stofn­aði meðal ann­ars fyr­ir­tækið Marorku, og hefur víð­tæka reynslu af þróun umhverf­is­lausna.

Mikil tækifæri, miklar áskoranir

Lausnir fyr­ir­tæk­is­ins miða meðal ann­ars að því að hjálpa fyr­ir­tækjum, sveit­ar­fé­lögum og stofn­unum að byggja upp inn­viði á sviði upp­lýs­inga­tækni til að takast á við miklar áskor­anir sem framundan í umhverf­is­málum, ekki síst vegna alþjóð­legra skuld­bind­inga um að draga úr mengun. Þar er Par­ís­ar­sam­komu­lagið áhrifa­mikið en það er fyrsti laga­lega bind­andi alþjóða­samn­ingur sem gerður hefur verið til að draga úr losun gróðu­húsa­loft­teg­unda og hægja á hlýnun jarðar. Samtals hafa 195 ríki sam­þykkt hann og inn­leitt í lög.

Framundan eru miklar áskor­anir fyrir þjóðir heims - fyr­ir­tæki, sveit­ar­fé­lög og stofn­anir þar undir - til að ná þeim mark­miðum sem hafa verið lögð til grund­vallar. Við Íslend­ingar höfum meðal ann­ars ákveðið að fylgja mark­miðum ESB um að draga úr losun um 40 pró­sent miðað við árið 1990, fyrir 2030. Óhætt er að segja það, að þetta sé bæði háleitt og krefj­andi mark­mið fyrir Ísland. Ef það á að ganga eftir þá þarf að verða nær algjör kúvend­ing á stefnu lands­ins, svo dæmi sé tekið. Mörg þjóð­ríki standa frammi fyrir víð­líka krefj­andi stöðu, og má búast við stór­tækum og áhrifa­miklum aðgerðum til að ná mark­mið­unum sem fel­ast í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Klappir hafa ekki síst miklu hlut­verki að gegna í þess­ari þróun.

Sterk heild

Félagið Klappir verður í reynd til í núver­andi mynd í byrjun þessa árs, með sam­runa þriggja fyr­ir­tækja, KGS, Data­drive og Ark Technology. Ákveðið var að efla heild­ina sem þessi fyr­ir­tæki mynd­uðu með fjöl­breytt­ara og öfl­ugra vöru­fram­boði, ekki síst til að sam­þætta hug­bún­að­ar­lausnir fyr­ir­tækja þeirra þannig að þær næðu yfir alla mik­il­væg­ustu þætti umhverf­is­mála.

Með þessu móti yrði hægt að bjóða fyr­ir­tækjum, sveita­stjórnum, borgum og ríkjum heild­stæðar hug­bún­að­ar­lausnir fyrir umhverf­is­mál á alþjóð­legum mark­aði.

[adspot]

Ört vaxandi markaður

Markaður með lausnir eins og þær sem Klappir hefur þróað og hefur innan sinna vébanda er ört vax­andi, enda fyr­ir­sjá­an­legt að þjón­usta sem miðar að því að aðstoða við að ná settu marki, við að draga úr mengun, muni vaxa hratt um allan heim, sam­hliða metn­að­ar­fullum mark­miðum fyr­ir­tækja, sveit­ar­fé­laga, stofn­anna og þjóð­ríka.

Meðal þess sem mörg fyr­ir­tæki munu þurfa að huga vel að eru meng­un­ar­kvótar. Yfirsýn er lyk­il­at­riði þegar kemur að þessum þáttum, ekki síst til að ná mark­miðum með hag­kvæmum hætti.

Sýn frumkvöðla ráði för

Í til­kynn­ingu vegna skrán­ing­ar­innar var haft eftir Jóni Ágústi að skrán­ingin á fyr­ir­tæk­inu væri mik­il­vægur liður í fram­tíð­arund­ir­bún­ingi fyr­ir­tæk­is­ins. Það byggir á sér­þekk­ingu starfs­fólks­ins og frum­kvöðla­starfi þess, en það hefur mikla reynslu af hinum ýmsu snerti­flötum umhverf­is­mála, svo sem skipu­lags­heilda, flota­stýr­ingu bif­reiða og skipa, hug­bún­að­ar­þró­unar og sölu- og mark­aðs­starfi á alþjóða­mörk­uðum.

Jón Ágúst segir að Klappir hafa valið að fara þá leið, sem vel er þekkt hjá tækni­fyr­ir­tækjum í Banda­ríkj­unum, Evrópu og á Norð­ur­löndum, þ.e. að vera með fleiri en einn flokk hluta­bréfa þar sem hluta­bréfa­flokk­arnir eru með mis­mun­andi atkvæða­vægi en að öðru leiti með sömu rétt­indi. „Þekkt fyr­ir­tæki sem hafa þessa sam­setn­ingu hluta­bréfa eru t.d. Google og Facebook en til­gang­ur­inn er að tryggja að sýn frum­kvöðl­anna ráði för í upp­bygg­ingu félag­anna til fram­tíðar,“ segir Jón Ágúst. Hann segir jafn­framt að ekki sé verið að gefa út nýtt hlutafé við skrán­ing­una. „Klappir völdu að vera með tvo hluta­bréfa­flokka þar sem A-flokkur hluta­bréfa heldur um atkvæða­vægi félags­ins og er í eigu frum­kvöðl­anna og B-flokk hluta­bréfa sem nýtur að öllu leiti sömu rétt­inda og A-flokkur hluta­bréfa nema að hann er ekki með atkvæða­vægi. Öll hluta­bréf í B-flokki hluta­bréfa verða skráð á First North mark­að­inn en A-bréfin verða ekki skráð. Ekki verður gefið út nýtt hlutafé við skrán­ing­una,“ segir Jón Ágúst.

Í stjórn félags­ins eru Ágúst Sindri Karlsson, for­maður stjórnar, Jón Ágúst for­stjóri, sem er jafn­framt er vara­for­maður stjórnar, Hildur Jóns­dóttir, Geir Valur Ágústs­son, Linda Björk Ólafs­dóttir, Sigrún Hildur Jóns­dóttir og Þor­steinn Svanur Jónsson. Sigrún Hildur Jóns­dóttir og Þor­steinn Svanur Jónsson eru fram­kvæmda­stjórar hjá félag­inu.

Efna­hagur félags­ins er traustur, en í lok síð­asta árs var eig­in­fjár­hlut­fallið tæp­lega 70 pró­sent, nam 182,5 millj­ónum króna. Heild­ar­eignir voru þá 268,7 millj­ónir og skuldir 86,2 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár