Stórir fjárfestar hyggjast setja meira af peningum í tækni til þess að bregðast við lofslagsmálum, ef marka má könnun sem gerð var meðal 497 fagfjárfesta fyrir HSBC-bankann í Bretlandi.
[links]Meira en helmingur þeirra fjárfesta sem tóku þátt í könnuninni sögðust fá „mjög ófullnægjandi“ upplýsingar frá fyrirtækjum um rekstraráhættur vegna þess sem rekja má til loftslagsbreytinga. Þá segjast fjárfestarnir vanta upplýsingar um hver hagnaðargeta fyrirtækja sé við umbreytingu í umhverfisvænni tækni.
Meira en tveir þriðju hlutar þeirra fagfjárfesta sem tóku þátt í könnuninni áætla að auka græna fjárfestingu sína. Frá þessu er greint á vef viðskiptadagblaðsins Financial Times.
Niðurstöður könnunarinnar þykja renna stoðum undir það sem seðlabankastjóri Bretlands, Mark Carney, hefur ítrekað bent á; Fyrirtæki í hlutafélaga- og fjármálarekstri þurfa að upplýsa um loftslagsáhættu í mun meira mæli en nú er gert.
Carney hefur átt sæti í verkefnahóp um gagnsæja loftslagstengda fjármálastarfsemi. Michael Bloomberg fór fyrir þessum verkefnahóp sem skilaði lokaskýrslu sinni í sumar. Kjarninn fjallaði um lokaskýrsluna við það tilefni.

Vantar betri skilning á loftslagstengdri áhættu
Í skýrslu verkefnahópsins er það útskýrt hvernig fyrirtæki ættu að veita loftslagstengdar upplýsingar í fjárhagsskýrslum, svo hægt sé að leggja mat á loftslagstengda áhættu í hagkerfum heimsins. Mælt er með að upplýsingar um beint og óbeint útstreymi gróðurhúsalofttegunda í rekstri fyrirtækisins komi fram. Einnig ættu fyrirtækin að lýsa áhættu og tækifærum fyrirtækisins sem verða til vegna loftslagsbreytinga.
Carney seðlabankastjóri hefur varað fjárfesta við og sagt þá hætta á „mögulega risastórt“ tap vegna áhrifa loftslagsbreytinga á fyrirtæki í margskonar iðnaði. Sem dæmi má nefna að tryggingafélög tapa nú meira en nokkru sinni vegna ofsaveðurs í heiminum, og framleiðendur jarðefnaeldsneytis eru sakaðir um að bera ábyrgð á hlýnun jarðar.
[adspot]
Græn fjárfesting vinsælust í Evrópu
Í niðurstöðum könnunarinnar sem gerð var fyrir HSBC kemur fram að stjórnendur eru nú uppteknari en áður af tækifærum og ógnunum sem tengjast viðbragði við loftslagsbreytingum.
Áhugi á grænni fjárfestingu, eins og til dæmis endurnýjanlegri orku, var mestur í Evrópu. 97 prósent evrópskra þátttakenda í könnuninni sögðust hafa í hyggju að auka fjárfestingu sína í kolefnissnauðari tækni eða tækifærum tengdum slíkri tækni.
85 prósent fjárfesta í Norður- og Suður-Ameríku sem tóku þátt í könnuninni segja slíkt hið sama, eins og 68 prósent fjárfesta í Asíu. Í Mið-Austurlöndum, þar sem mest magn olíu heimsins verður til, sögðust aðeins 19 prósent þátttakenda í könnuninni ætla að auka græna fjárfestingu.
Daniel Klier, yfirmaður stefnumótunar hjá HSBC, sagði í samtali við Financial Times að niðurstöðurnar gæfu til kinna að græn fjárfesting væri ekki lengur aðeins af siðferðilegum toga heldur orðin hluti af daglegri ákvörðunartöku fjárfesta.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir