Loftslagsáhætta verði opinber í fjármálagjörningum

Ef ógnir og tæki­færi vegna lofts­lags­breyt­inga eru opin­ber og skýr er hægt að leggja mat á lofts­lagstengda áhættu í hag­kerfum heims­ins. Verk­efna­hópur um aðgerðir einka­geirans vegna lofts­lags­breyt­inga kynnti loka­skýrslu.

Fjárfestar munu fá betri upplýsingar um virði fjárfestingar sinnar ef ógnir og tækifæri fjárfestingarinnar vegna loftslagsbreytinga eru opinberar, samkvæmt tillögum verkefnahóps Michael Bloomberg.
Fjár­festar munu fá betri upp­lýs­ingar um virði fjár­fest­ingar sinnar ef ógnir og tæki­færi fjár­fest­ing­ar­innar vegna lofts­lags­breyt­inga eru opin­berar, sam­kvæmt til­lögum verk­efna­hóps Michael Bloomberg. Mynd: EPA

Bankar og fjár­mála­fyr­ir­tæki ættu að birta upp­lýs­ingar um lofts­lagstengda áhættu með fjár­fest­ingum sínum. Þetta er til­laga verk­efna­hóps um gagn­sæja lofts­lag­tengda fjár­mála­starf­semi sem skil­aði loka­skýrslu sinni í gær.

Meðal þeirra sem áttu sæti í verk­efna­hópnum voru Mark Carney, seðla­banka­stjóri Eng­lands­banka, og Michael Bloomberg, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í New York. Verk­efnið var kynnt í tengslum við G20-ráð­stefnunna í Hamborg í næstu viku.

Í skýrsl­unni þar sem til­lagan er lögð fram er það útskýrt hvernig fyr­ir­tæki ættu að veita lofts­lagstengdar upp­lýs­ingar í fjár­hags­skýrslum, svo hægt sé að leggja mat á lofts­lagstengda áhættu í hag­kerfum heims­ins.

Mælt er með að upp­lýs­ingar um beint og óbeint útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins komi fram. Einnig ættu fyr­ir­tækin að lýsa áhættu og tæki­færum fyr­ir­tæk­is­ins sem verða til vegna lofts­lags­breyt­inga.

Verk­efna­hóp­ur­inn var stofn­aður á lofts­lags­ráð­stefn­unni COP21 í París árið 2015 og var Michael Bloomberg falið að leiða vinn­una. Nærri því 200 lönd ákváðu á COP21 að standa saman að aðgerðum gegn lofts­lags­breyt­ingum. Hópur Bloombergs hefur það verk­efni að leggja til leiðir fyrir einka­fyr­ir­tæki í bar­átt­unni gegn hlýnun lofts­lags.

[adspot]

2 billjónir dollara hengdar á tillögurnar

Bloomberg segir lofts­lags­breyt­ing­arnar vera áhættu­þátt sem ekki sé hægt að líta fram hjá í rekstri fyr­ir­tækja. „Þess vegna er mik­il­vægt að sníða ramma utan um birt­ingu lofts­lagstengdra upp­lýs­inga,“ er haft eftir Bloomberg á vef breska blaðs­ins The Guardian.

„Þessi rammi sem verk­efna­hóp­ur­inn leggur til hjálpar fjár­festum að meta hugs­an­lega áhættu og ábata af umskiptum í lág­kolefn­is­hag­kerfi,“ segir Bloomberg.

Það er upp á fyr­ir­tæki og fjár­mála­stofn­anir komið að inn­leiða til­lögur verk­efna­hóps­ins. Hvat­arnir fyrir því eru að til lengri tíma verður mun hag­kvæmara að reka fyr­ir­tæki og stofn­anir í hag­kerfi sem reiðir sig lítið eða ekk­ert á jarð­efna­elds­neyti.

Meira en 100 fyr­ir­tæki sem velta meira en tveimur billjón Banda­ríkja­doll­urum á árs­grund­velli hafa opin­ber­lega lofað að inn­leiða til­lögur verk­efna­hóps­ins.

Loftslagsbreytingar helsta ógn fyrirtækja nútímans

„Ein helsta, og hugs­an­lega mis­skildasta, ógnin sem stafar að fyr­ir­tækjum í dag teng­ist lofts­lags­breyt­ingum,“ segir í frétta­til­kynn­ingu verk­efna­hóps­ins. „Jafnvel þó það sé skiln­ingur flestra að útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda muni auka enn á hlýnun lofts­lags og að sú hlýnun geti haft slæmar efna­hags­legar og félags­legar afleið­ingar, er erfitt að áætla nákvæm­lega hversu slæmar afleið­ing­arnar verða.“

„Stærð vanda­máls­ins gerir það sér­stak­lega ögrandi, einkum þegar kemur að hag­stjórn.“

Í skýrsl­unni eru breið­ustu lín­urnar í aðgerðum fyr­ir­tækja teikn­aðar; Aðgerðir á borð við affjár­fest­ingu í jarð­efna­elds­neyt­is­iðn­aði og tengdum geirum er þar efst á blaði. „Hröð lækkun á kostn­aði og aukin notkun hreinnar orku og orku­spar­andi tækni gætu haft mikil skamm­tíma­á­hrif á fyr­ir­tæki í jarð­efna­elds­neyt­is­iðn­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár